Himnaríki eða heimsendir þegar gervigreindin tekur yfir

Mun gervi­greindin skapa allsnægta­sam­fé­lag þar sem mann­eskjan er í fyr­ir­rúmi? Eða munu ein­ungis millj­arða­mær­ingar græða og við hin sitja eftir atvinnu­laus og menn­ing­ar­snauð? Eða förum við bil beggja? Áhuga­maður seg­ist ótt­ast afleið­ingar gervi­greindar til skamms tíma en vera bjart­sýnn til lengri tíma.

Himnaríki eða heimsendir þegar gervigreindin tekur yfir
Fram­tíðin teiknuð af spuna­greind Blaða­manni var þvert um geð að nota spuna­greind til að teikna upp þá útópíu eða þann heimsendi sem hann ímynd­aði sér eftir sam­talið við Björg­mund. En þrátt fyrir þá sóun á vatni or orku sem fylgir notkun ChatGPT og svika við mann­lega lista­menn þurfti form mynd­skreyt­ing­ar­innar að fylgja við­fangs­efn­inu. Mynd: ChatGPT

„Ég trúi því að til­raunir okkar til að búa til þenkj­andi vél muni hjálpa okkur veru­lega við að kom­ast að því hvernig við sjálf hugsum.“

Svo mælti enski stærð­fræð­ing­ur­inn Alan Turing í við­tali við BBC árið 1951. En síðan þá hefur margt vatn runnið til sjávar.

Fjórða iðn­bylt­ingin svo­kall­aða, sem nú stendur yfir, snýr að því að tölvur og vél­menni taki fram úr greind mann­eskj­unnar og geti því leyst með ein­fald­ari og skil­virk­ari hætti þau verk­efni sem mann­fólk hefur þurft að bis­ast við frá örófi alda. Stór áhrif hennar eru þegar komin fram, í snjall­símunum sem við öll erum með í vas­anum, sýnd­ar­veru­leika­tækjum, þrí­vídd­ar­prentun, streym­isveitum og „inter­neti hlut­anna“, það er ísskápum, kaffi­vélum og brauðristum og með inn­byggðum nettengdum tölvum.

Síðustu ár hefur staðið yfir kapp­hlaup stór­fyr­ir­tækja um þróun gervi­greindar. Veðmál tæknirisanna gerir ráð fyrir að sá fyrsti til að þróa …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár