Uppgötvaði einn af leyndardómum lífsins

Þormar Melsted upp­götv­aði nýja teg­und af ást þegar hann eign­að­ist barn. En það að verða faðir segir hann vera það besta sem hann hafi gert.

Uppgötvaði einn af leyndardómum lífsins
Ný teg­und af ást Þormar bjóst ekki við því hvað það hefði mikil áhrif á hann að verða faðir. Mynd: Ragnhildur Helgadóttir

Það er mjög gaman að verða faðir. Það er það besta sem ég hef gert. Það er ný til­finn­ing sem kemur, sem maður hélt að maður myndi vera búinn að upp­lifa. En svo þegar maður lendir í því sjálfur þá er eitt­hvað nýtt sem kviknar. Einhver ný teg­und af ást.

Ég er með litla strák­inn minn og við erum að fá okkur ís. Hann verður tveggja ára núna í júní. Ég er 46 ára, svo ég telst seinn að eign­ast fyrsta barn. Ég hefði ekki viljað sleppa þessu. Þetta er einn af leynd­ar­dómum lífs­ins, sem maður upp­götvar þegar maður eign­ast barn. 

Maður finnur að maður hefur aldrei elskað svona mikið. Það er bara þannig til­finn­ing. Þú myndir gera allt. Maður hefur kannski ekki fundið það beint með kærustur og svo­leiðis. Jú, jú, maður elskar auð­vitað. En þetta er eitt­hvað dýrs­legt sem kviknar. Því maður er dýr. Þetta er eitt­hvað sem maður veit ekki hvað er – eitt­hvað sem býr í gen­unum okkar – að vernda sitt og vilja því fyrir bestu. Þar kemur svona ólýs­an­leg ást. Skil­yrð­is­laus ást. Það er þannig sem þú finnur.

Ég bjóst ekki við því að það myndi hafa svona mikil áhrif á mig. Bara á fæð­ing­ar­deild­inni þá kemur þetta. Við þurftum að vera á spít­al­anum í ein­hverja þrjá daga. Og á degi tvö þá fór ég á ein­hverja bens­ín­stöð að ná í Subway-sam­loku og ég fór bara að hágráta. Ég vissi ekki af hverju. Til­finn­ing­arnar eru þannig.“ 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár