„Á kaldasta landi Evrópu fann ég hlýju“

Bruno Pineda Ball­ester fann ást­ina á Íslandi eftir tveggja ára dvöl.

„Á kaldasta landi Evrópu fann ég hlýju“
Bruno Pineda Ball­ester Hefur búið á Íslandi í tvö ár og stefnir á vit ævin­týr­anna eftir sum­arið. Mynd: Eik Arnþórsdóttir

Ég heiti Bruno Pineda Ball­ester og er 29 ára. Núna bý ég á Lauga­veg­inum en það stytt­ist í að ég flytji í burtu frá Íslandi eftir tveggja ára dvöl. 

Ég lærði hót­el­stjórnun á Írlandi og kom fyrst hingað vegna náms­ins en ákvað svo að vera áfram. Þá var ég ekki viss um hvað það væri við Ísland sem tog­aði í mig en svo kynnt­ist ég land­inu og öllu frá­bæra fólk­inu, bæði erlendu og inn­lendu. Það hefur gert mér kleift að taka þátt í íslenskri menn­ingu sem hefur verið ein­stak­lega skemmti­legt.

Fann ástina

Nýlega kynnt­ist ég konu hér á Íslandi. Ég velti því fyrir mér hvort það sé ástæðan fyrir því að ég ákvað að flytja hingað og fann að eitt­hvað tog­aði í mig.

Þetta hljómar klisju­kennt en Ísland býr yfir miklum töfrum og fyrir mig voru töfr­arnir að hitta kon­una sem gæti mögu­lega verið minn lífs­föru­nautur. Á kaldasta landi Evrópu fann ég hlýju. Sjáum hvað setur en núna líður mér svona. 

Yfir pásk­ana fór ég í skírn á Fuerta­ventura með vinum mínum. Við vorum að fara í þessa klass­ísku íslensku ferð til Kanarí­eyja. Ég er upp­runa­lega þaðan. Skírn­ar­barnið heitir Einar Pedro sem er skemmti­leg blanda úr menn­ing­ar­heimum tveggja eld­fjalla­eyja. 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár