Uppsögnin fær kannski að standa

Magnea Arn­ar­dóttir leik­skóla­kenn­ari seg­ist ætla að skoða kjara­samn­inga kenn­ara áður en hún tekur ákvörðun um hvort hún ætli að draga upp­sögn sína til baka. „En ég held að þetta sé góður samn­ingur. Samn­inga­nefnd­irnar okkar hefðu ekki skrifað undir hvað sem er,“ segir hún.

Uppsögnin fær kannski að standa
Leik­skóla­kenn­ari Magnea segir kjara­bar­átt­una hafa tekið á kenn­ara á síð­ustu vikum. Mynd: Aðsend

„Ég ætla klár­lega að skoða samn­ing­inn áður en ég dreg upp­sögn­ina til baka. En eins og ég hef sagt þá vil ég hvergi ann­ars staðar vinna.“

Þetta segir Magnea Arn­ar­dóttir, leik­skóla­kenn­ari og þroska­þjálfi, í sam­tali við Heim­ild­ina. Hún sagði starfi sínu lausu í síð­ustu viku eftir að Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga hafn­aði inn­an­hús­s­til­lögu rík­is­sátta­semj­ara í kjara­deilu kenn­ara.

Spurð út í aðdrag­anda þeirrar ákvörð­unar segir Magnea að síð­ustu mán­uði hafi henni fund­ist talað illa um kenn­ara­stétt­ina. Því hefði verið haldið fram að kenn­arar tækju ekki samn­ingum og segðu sífellt nei. „En samt á sama tíma erum við rosa­lega ómissandi. Svo þegar sam­bandið segir nei á föstu­dag­inn þá missti ég alveg gleð­ina í þessu öllu saman. En þetta er besta vinna í heimi,“ segir hún. 

Glöð en full vantrausts

Magnea segir að blendnar til­finn­ingar hafi vaknað eftir að til­kynnt var að kjara­samn­ingur Kenn­ara­sam­bands Íslands við ríki og sveit væri í höfn. „Ég er rosaglöð en að sama skapi er maður enn fullur van­trausts eftir síð­ustu vikur að fylgj­ast með fjöl­miðlum og umræðu um kennslu og kenn­ara­starfið. Blendnar til­finn­ingar, en ég held að það sé bjart fram undan.“

„Við erum glöð að sjá að þetta sé heild­ar­hækkun en ekki ein­hvers konar fríð­inda­dans
Magnea Arn­ar­dóttir

Magneu líst ágæt­lega á það sem hefur þegar verið kynnt um samn­ing­ana. „Þetta eru hlutir sem við höfum átt inni síð­ustu ár. Ég held að þetta komi bara vel út fyrir okkur. Leik­skóla­kenn­arar eru bara á ber­stríp­uðum grunn­launum. Við erum glöð að sjá að þetta sé heild­ar­hækkun en ekki ein­hvers konar fríð­inda­dans með yfir­vinnu­tíma eða annað sem við vinnum ekki og höfum ekki tæki­færi til að vinna hvort eð er,“ segir hún. 

Spurð hvort hún hefði viljað sjá meiri hækkun svarar hún því þó ját­andi. „Mér finnst að ég eigi ekki að fá lægri laun en fólk í banka, þannig að ég verð að segja já. En ég held að þetta sé góður samn­ingur. Samn­inga­nefnd­irnar okkar hefðu ekki skrifað undir hvað sem er, þau eru alveg búin að sýna það. Það voru stór skref tekin.“

Fögnuðu með vöfflukaffi

Magnea segir sam­starfs­fólk hennar virð­ast sömu­leiðis nokkuð bjart­sýnt eftir að samn­ingar náð­ust.

„Við hentum nú í vöfflu­kaffi [á mið­viku­dag­inn]. En þetta er alveg búið að taka á fólk. Það er búið að ganga í gegnum ýmsar hæðir og lægðir í til­finn­ingum hérna und­an­farnar vikur. Mér finnst kannski ekki koma nógu mikið fram að leik­skóla­kenn­ara­stéttin hefur aldrei, aldrei, farið í verk­fall fyrr en þessar aðgerðir hófust í haust.“ 

Magnea bætir því við að henni þyki jákvætt hve mikil sam­staða var hjá kenn­ara­stétt­inni allri í bar­átt­unni. „Það er svo­lítið magnað að öll félögin voru saman í þessu. Okkur hefur oft verið egnt upp á móti hvert öðru og það er ákveð­inn flótti á milli skóla­stiga. Okkur þykir vænt um það sem kenn­arar að við höfum öll verið saman í þessu.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár