Misstu miðjuna

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur aldrei mælst jafnilla og hann gerði í maí. Vara­for­maður flokks­ins, Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, segir hann þó ekki hafa tapað erindi sínu.

Misstu miðjuna
Út af þingi Lilja Dögg var ráð­herra í síð­ustu tveimur rík­is­stjórnum en hún féll af þingi – eins og margir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins – í síð­ustu kosn­ingum. Hún er enn vara­for­maður flokks­ins og íhugar nú fram­haldið. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Við erum miðju­flokkur en svo misstum við bara miðj­una frá okkur,“ segir Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, um slæma stöðu flokks­ins. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur aldrei mælst jafnilla hjá Gallup – í rúma þrjá ára­tugi – og í nýbirtum Þjóð­ar­púlsi, þar sem flokk­ur­inn nýtur aðeins stuðn­ings 5,5 pró­sent kjós­enda. Það er enn minna en flokk­ur­inn upp­skar í síð­ustu kosn­ingum þegar flokk­ur­inn beið þó afhroð. 

„Þetta lítur auð­vitað ekki vel út en þetta er bara vinna,“ segir hún víg­reif. Sókn Sam­fylk­ingar inn á miðju stjórn­mál­anna og sam­keppni við Mið­flokk­inn á sama tíma og Framsókn hafi ekki talað nógu skýrt fyrir grunn­gildum sínum skýri stöð­una. 

Kvittur hefur verið uppi um að Lilja Dögg hygg­ist bjóða sig fram til for­manns í flokknum og fara gegn Sigurði Inga Jóhanns­syni, sitj­andi for­manni. Mikil ólga er innan flokks­ins og er staða Sigurðar Inga nokkuð óljós en til­raunir voru gerðar til að flýta flokks­þingi – án árang­urs. Lilja Dögg seg­ist ekki búin að taka ákvörðun um hvort hún taki slag­inn. For­manns­kjör mun fara fram á lands­þingi flokks­ins snemma á næsta ári. „Ég hef ekki tekið ákvörðun um það en ég er í mjög góðu sam­tali við flokks­fólk um allt land,“ segir hún.

Hann leiddi flokk­inn í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokki og Vinstri grænum, sem end­aði með hvelli síð­ast­liðið haust, þegar Bjarni Bene­dikts­son, þá for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, sleit óvænt sam­starf­inu. Lilja Dögg hefur áður velt því upp hvort ekki hafi átt að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu fyrr. Verð­bólga, ósætti í rík­is­stjórn og Íslands­banka­sala eru erfið mál sem Lilja telur hafi leikið flokk­inn grátt. Verð­bólgan komi sér­stak­lega illa við kjós­enda­hóp Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem séu venju­leg heim­ili. 

„Það nennir eng­inn í mat­ar­boð með svona liði. Þú hugsar bara: ég ætla að halda nýtt mat­ar­boð og bara bjóða skemmti­legu fólki“

En getur verið að flokk­ur­inn hafi bara ekki sama erindi og hann hafði áður? „Bless­aður vertu,“ segir Lilja og bendir á að stjórn­málin séu dýnamísk í eðli sínu. „Þetta er bara vinna og meiri vinna, og fara aftur í grunn­gildin: Heimilin, verð­mæta­sköpun og land­bún­að­inn.“

Lilja Dögg segir að rík­is­stjórnin hafi líka talað sjálfa sig niður. Það hafi stjórn­ar­liðar raunar gert á hverjum degi í aðdrag­anda stjórn­ar­slit­anna. Það komi því ekki á óvart að þjóðin hafi hrein­lega viljað eitt­hvað nýtt og annað, jafn­vel þó að lífs­kjör hafi til að mynda hvergi mælst jafn­mikil og á Íslandi rétt undir lok stjórn­ar­sam­starfs­ins. Verð­bólga hafi líka verið á nið­ur­leið. „Það nennir eng­inn í mat­ar­boð með svona liði. Þú hugsar bara: ég ætla að halda nýtt mat­ar­boð og bara bjóða skemmti­legu fólki,“ segir hún og hlær. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár