Gleðiganga undir vökulu auga lögreglu

Kári Garð­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna ´78, seg­ir upp­lif­un­ina hafa ver­ið magn­aða á ólög­legri gleði­göngu í Búdapest. Þátt­tak­end­um göng­unn­ar fjölg­aði úr 30 þús­und í 200 þús­und í ár. Lög­regla var með við­bún­að og greindi and­lit fólks til að beita sekt­um.

Gleðiganga undir vökulu auga lögreglu
Gleðiganga í Búdapest Hópur frá Samtökunum 78 sótti ólöglega gleðigöngu. Mynd: Samtökin 78

„Þetta var í raun og veru alveg mögnuð upplifun fyrir mann eins og mig,“ segir Kári Garðarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ´78. Hann sótti gleðigöngu sem haldin var í Búdapest síðustu helgi þrátt fyrir bann yfirvalda við viðburðinum. „Þetta er fyrsta gangan sem ég fer í sem er bönnuð – það er náttúrlega magnað að segja þetta upphátt. Að það sé Evrópuland sem banni Pride-göngu.“

Gergely Karácsony, borgarstjóri Búdapest, greip til þess ráðs að leyfa gönguna sem borgarviðburð. „Hann fór fram hjá lögunum sem Viktor Orbán setti og stóð vel með skipuleggjendum í aðdraganda göngunnar,“ segir Kári. 

Ákall frá skipuleggjendum göngunnar, Budapest Pride, til alþjóðasamfélagsins um að koma og styðja viðburðinn kom í vor. Var það í kjölfar þess að yfirvöld í Ungverjalandi lögðu bann á viðburðinn. Sex manna hópur frá Samtökunum ´78 og Hinsegin dögum var viðstaddur gönguna en hópurinn fór í ferðina á eigin kostnað. „Ég held að það hafi tekist mjög vel,“ segir Kári. 

Kári GarðarssonFramkvæmdastjóri Samtakanna ´78.

Kári segir að fjölbreyttur hópur hafi sótt gönguna: „Alveg frá því að vera aktífistar – Amnesty var með stóran hóp. Við hittum systurfélög okkar frá Svíþjóð, Danmörku og Noregi og kunnugleg andlit úr baráttunni. Svo ekki síst almenni borgarinn í Búdapest og Ungverjalandi sem ég held að hafi hugsað með sér að nú væri tími til að stíga upp og mótmæla.“

Lögreglan andlitsgreindi þátttakendur

Blaðamaður spyr hvort viðburðurinn hafi verið öruggur í ljósi bannsins. „Eftir á að hyggja var hann öruggur,“ segir Kári og bætir við: „Það voru örfáir andmótmælendur sem maður sá svartklædda á leiðinni. En ég svo sem sá þá líka í Eistlandi og Litáen.“ Þessi hópur stóð til hliðar og mótmælti göngunni. Snemma í göngunni lokuðu þessir andmótmælendur brú sem átti að vera hluti af göngunni. „Skipuleggjendur brugðu á það ráð að færa gönguna á aðra brú,“ segir Kári og heldur áfram: „Það var alveg mögnuð upplifun þegar skarinn fór yfir þá brú og lét sér ekki segjast.“

„Það var alveg mögnuð upplifun þegar skarinn fór yfir þá brú og lét sér ekki segjast
Kári Garðarsson
framkvæmdastjóri Samtakanna ´78

Þá var lögreglan líka með mikla viðveru: „Hún var með myndbandsupptökuvélar til að andlitsgreina fólk,“ segir Kári en viðurlög við þátttöku í göngunni áttu að vera sektir. „Það er mjög langsótt að við Íslendingar fáum eitthvað í heimabankann frá ungverskum yfirvöldum,“ bætir hann við. Blaðamaður spyr hvort lögreglan hafi verið á svæðinu til þess að passa upp á þátttakendur göngunnar. Kári svarar: „Ég veit ekki alveg hvernig ég á að skilgreina það. Það var eitthvað sem fólk óttaðist. Að ef andmótmælendur hefðu haft sig meira í frammi, að lögreglan myndi þá standa meira til hliðar.“ Hann hafi ekki heyrt um tilfelli þar sem lögreglan hafi gripið inn í eða að einhverjar árásir hafi átt sér stað.

Fangelsisvist möguleiki

„Það situr eftir að skipuleggjendurnir gætu átt yfir höfði sér árs fangelsi samkvæmt lögunum,“ segir Kári og einnig: „Ég get ímyndað mér að þau sem skipulögðu þetta séu stolt. En ábyggilega pínulítið hrædd um það hvert framhaldið verður og hvað verði gert við þau sem stóðu að þessum frábæra viðburði.“

Budapest Pride hafa kallað eftir fjárstuðningi en Kári segir viðburðinn bæði hafa verið dýrari í framkvæmd þar sem mun fleiri komu en vanalega og svo vegna þess að viðburðurinn var ólöglegur. Stjórn Hinsegin daga hafi keypt boli í göngunni sem verða seldir á Hinsegin dögum í Reykjavík til styrktar samtökunum úti. „Það eru ekki stórar fjárhæðir en við reynum eins og við getum að styðja við þetta.“ 

Tónninn að breytast

„Það horfir hrikalega við okkur,“ segir Kári og heldur áfram: „Það er alveg ótrúlegt að það sé vegið að mannréttindum og fundafrelsi og almennt að grundvallarrétti fólks til að koma saman.“ Hann segir það sorglegt að slíkt sé gert undir því yfirskini að vernda börn. „Þetta er eitthvað sem við tökum mjög alvarlega. Enda sá maður að viðburðurinn, sem er vanalega með þrjátíu þúsund manns í Búdapest, var 200 þúsund núna.“ Í Ungverjalandi hefur lögum verið breytt í skólakerfinu. Kári segir að bókmenntir sem sýni hinseginleika þurfi til að mynda að vera í svörtu plasti.

„Því miður er Ungverjaland ekki eitt um þetta. Við höfum séð þetta í öðrum löndum, bæði í Evrópu og Ameríku. Maður er sleginn. Langar að hlæja – þetta er svo fáránlegt – en grátur er eiginlega nær. Þetta er skelfileg staða.“ 

Blaðamaður spyr hvort Samtökunum ´78 þyki líklegt að slíkt bakslag geti orðið hér á landi. Kári segir það langsótt að bönn við gleðigöngu yrðu innleidd en að tónninn í umræðunni sé þó að breytast. „Það á ekki bara við í málefnum hinsegin fólks heldur líka í málum útlendinga og hælisleitenda. Það er verið að þrengja að og orðræðan er oft mjög skrítin. Þetta helst allt í hendur – réttindi jaðarsettra hópa.“ 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Halldór Jörgen Olesen
3
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár