Segir blóðmerahald byggja á kerfisbundnu ofbeldi

Andrés Ingi Jónsson, fram­kvæmda­stjóri Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands, segir Mat­væla­stofnun hafa brugð­ist eft­ir­lits­hlut­verki sínu. Sam­bandið hefur kært blóð­mera­hald til lög­reglu vegna dýra­níðs og illrar með­ferðar, sem fram­kvæmda­stjór­inn segir kerf­is­bund­inn hluta af blóð­mera­haldi.

Segir blóðmerahald byggja á kerfisbundnu ofbeldi
Andrés Ingi Jónsson Fram­kvæmda­stjóri Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands Mynd: Davíð Þór

Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands, DÍS, hefur í sam­starfi við þýsk-sviss­nesk dýra­vernd­un­ar­sam­tök kært grófa með­ferð á hryssum í blóð­mera­haldi til lög­reglu. Málin höfðu upp­haf­lega verið lögð á borð Mat­væla­stofn­unar sem kaus að taka það ekki til frek­ari með­ferðar.

Andrés Ingi Jónsson, fram­kvæmda­stjóri DÍS, segir að Mat­væla­stofnun sé hlið­vörður inn í rétt­ar­kerfið þegar kemur að dýra­vel­ferð­ar­málum. Það hafi því verið eðli­legt að byrja þar. „Við erum nú að beina því til lög­regl­unnar að taka málið til sjálf­stæðrar athug­unar þó að Mat­væla­stofnun hafi ekki vísað því þangað,“ segir hann.

Slegnar með spýtum

Í kærunni sem lögð hefur verið fram til lög­reglu er greint frá dýra­níð og brotum á lögum um vel­ferð dýra. Í henni er að finna nákvæma atvika­lýs­ingu og upp­tökur frá sex mis­mun­andi býlum sem stunda blóð­mera­hald. Því er meðal ann­ars lýst hvernig hryss­urnar eru slegnar og lamdar með spýtum og pískum þegar þær eru und­an­komu­lausar og þær bundnar með haus­inn reigðan upp og settar í ónátt­úru­lega stöðu. Einnig eru þar dæmi um að dýra­læknar geri ítrek­aðar til­raunir til að stinga hol­nálum í háls hryssa í hræðslu­á­standi og að nálar sem detti í jörð­ina séu ekki sótt­hreins­aðar en slíkt getur valdið sýk­ing­ar­hættu.  

„Oft sýna dýrin þess merki að vera í hræðslu­á­standi og alveg upp í sturlun­ar­á­stand af ótta en samt er haldið áfram að reyna að taka úr þeim blóð – þó svo að öll heil­brigð skyn­semi og verk­lags­reglur Ísteka og Mat­væla­stofn­unar segi að eigi að hætta blóð­töku við þær aðstæður,“ segir Andrés. 

Ill meðferð kerfisbundinn hluti af blóðmerahaldi

Andrés segir mark­mið DÍS vera að fá við­brögð áður en blóð­töku­tíma­bilið hefst í ágúst. „Við erum komin á þann stað að við treystum okkur til þess að segja að þetta sé kerf­is­bundið og að þetta sé hluti af blóð­mera­haldi,“ segir Andrés. „Ill með­ferð á dýrum virð­ist ekki geta verið skilin frá blóð­mera­haldi sem slíku.“

Þetta séu heldur ekki fyrstu mynd­böndin sem koma upp um illa með­ferð, „og það er sama hvaða býli er valið, alltaf koma fram brot á mynd­bönd­unum“.

„Ill með­ferð á dýrum virð­ist ekki geta verið skilin frá blóð­mera­haldi sem slíku
Andrés Ingi Jónsson
fram­kvæmda­stjóri Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands

Andrés vonar að þegar núver­andi starfs­leyfi rennur út í lok sum­ars verði ekki veitt ný leyfi. Það veltur á atvinnu­vega­ráð­herra.

Óskiljanleg niðurstaða Matvælastofnunar

Hann furðar sig á því að Mat­væla­stofnun hafi ekki tekið málið lengra. „Það er eig­in­lega óskilj­an­legt af því að mynd­bönd­unum sem var deilt með þeim í nóv­em­ber sýna ótal dæmi þess að bæði umsjón­ar­menn og dýra­læknar séu ýmist að beita aðferðum sem eiga ekki að vera í boði, eða ekki bregð­ast við þegar komið er illa fram við dýrin.“

Andrés segir að þetta séu atriði sem Mat­væla­stofnun eigi að bera kennsl á og fara með lengra en „það eina sem þau sáu út úr þessum mynd­böndum var það sem þau köll­uðu eitt frá­vik“.

Í kvörtun DÍS til Mat­væla­stofn­unar fylgdi skýrsla með áliti frá erlendum sér­fræð­ingi í dýra­lækn­ingum en í henni var greint frá því hversu víð­tæk brotin eru. „Það var í raun búið að benda Mat­væla­stofnun á allt sem hún gæti fundið í þessu, en samt ákvað hún að finna ekki neitt.“

„Það var í raun búið að benda Mat­væla­stofnun á allt sem hún gæti fundið í þessu, en samt ákvað hún að finna ekki neitt
Andrés Ingi Jónsson
fram­kvæmda­stjóri Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands

Sam­bandið hefur sent stjórn­sýslu­kæru til atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins vegna aðgerð­ar­leysis Mat­væla­stofn­unar. Til við­bótar hefur umboðs­maður Alþingis síðan í apríl rann­sakað að eigin frum­kvæði stjórn­sýslu stofn­un­ar­innar.

Andrés gagn­rýnir einnig hversu langt Mat­væla­stofnun hafi gengið í að rétt­læta blóð­mera­hald þegar hún hefur svarað fyrir ákvörðun sína í fjöl­miðlum. „Miklu lengra en maður myndi reikna með af eft­ir­lits­stofnun sem á að hafa hags­muni dýr­anna í fyr­ir­rúmi.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Undarlegt líka að ekkert heyrist um þetta mál frá hestamannafélögum víða um landið. Maður gæti haldið að þau beri hag besta vina sinna fyrir brjósti.
    1
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þarna eru framdir blóðpeningar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár