Tvær Kóreur: Yfirmaður herafla Bandaríkjanna krafðist þess að fá að varpa 34 atómsprengjum

Eftir miklar svipt­ingar á fyrstu mán­uðum Kóreu­stríðs­ins 1950 setti Douglas MacArthur yfir­maður herja Banda­ríkj­anna fram ógn­væn­legar kröfur

Tvær Kóreur: Yfirmaður herafla Bandaríkjanna krafðist þess að fá að varpa 34 atómsprengjum
Þessi sjón hefði víða blasað við á víg­völl­unum í Kóreu 1950-1951 ef MacArthur hefði fengið að ráða. Raunar er myndin tekin í Nevada-eyði­mörk­inni af kjarn­orku­til­raun í Banda­ríkj­unum 1951.

Snemma í nóv­em­ber 1950 horfði væg­ast sagt hræði­lega fyrir Kim Il-sung, leið­toga komm­ún­ista­rík­is­ins Norður-Kóreu. Í júní hafði hann hafið inn­rás í Suður-Kóreu og virt­ist í byrjun sept­em­ber í þann veg­inn að ná öllu land­inu undir sig og þar með sam­eina Kóreu­skaga undir sinni komm­ún­ista­stjórn.

En þá höfðu Banda­ríkja­menn, vernd­arar Suður-Kóreu­rík­is­ins, snúið vörn hressi­lega í sókn og jafn skjótt og Norður-Kóreu­menn höfðu sótt suður skag­ann þurftu þeir nú að hörfa norður aftur og nú var svo komið að algjör ósigur blasti við her­sveitum Kims.

Um upp­haf Kóreu­ríkj­anna skrif­aði ég á dög­unum þessa grein hér.

Og svo má lesa um fyrstu mán­uði Kóreu­stríðs­ins hér.

Her­sveitir Banda­ríkja­manna, sem börð­ust raunar undir fána Sam­ein­uðu þjóð­anna, voru í nóv­em­ber komnar upp í fjöllin í norð­an­verðri Norður-Kóreu og áttu skammt eftir að landa­mærum Kína.

Kim Il-sung grát­bað bæði Stalín leið­toga Sov­ét­ríkj­anna og Maó Zedong í Kína um beina hern­að­ar­að­stoð.

Hermenn.

Sovéskir flugmenn

En Stalín sendi þá á laun flug­menn sem flugu hinum öfl­ugu sov­ésku orr­ustu­þotum MiG-15, sem afhentar voru Kim, en þeir gengu til leiks klæddir norður-kóreskum ein­kenn­is­bún­ingum og var bannað að tala rúss­nesku í tal­stöðv­ar­sam­skiptum.

Kóreu­stríðið var fyrsta styrj­öldin þar sem orr­ustu­þotur átt­ust við.Þetta er hin sov­éska MiG-15.

Annan þátt vildi Stalín ekki eiga í sjálfum stríðs­rekstr­inum.

Það hent­aði honum ágæt­lega að Banda­ríkin ættu í erf­iðu og umdeildu stríði í Kóreu en hann lang­aði ekki vit­und til að lenda hugs­an­lega sjálfur í alls­herjar stríði við Banda­ríkin.

Þó ekki væri annað, þá átti Stalín þá í fórum sínum 5-6 kjarn­orku­sprengjur en Banda­ríkja­menn 369. Það yrði ójafn leikur ef átök stór­veld­anna í Kóreu þró­uð­ust yfir í alls­herjar kjarn­orku­stríð.

Maó for­manni í Kína var hins vegar vandi á höndum. Hann gat ekki hugsað sér að missa banda­mann sinn Kim Il-sung en hann vildi heldur ekki lenda í alls­herjar og opin­beru stríði við Banda­ríkin.

Þá var enn rúmur ára­tugur þangað til Kín­verjar smíð­uðu sína fyrstu kjarn­orku­sprengju.

Kínverskir „sjálfboðaliðar“ halda í stríð

Lausn Maós var sú að senda her­menn yfir Yalu-fljótið á landa­mærum Kína og Norður-Kóreu og skyldu þeir vissu­lega þátt í vörn­inni gegn her­sveitum Banda­ríkj­anna. Þeir voru hins vegar kall­aðir „sjálf­boða­liðar“ er hefði runnið blóðið til skyld­unnar að hjálpa sínum komm­ún­ísku bar­áttu­bræðrum í Norður-Kóreu er öfl auð­valds og heims­valda­stefnu sýnd­ust þess albúin að þjarma að þeim

Strax í nóv­em­ber 1950 voru því skyndi­lega mættir 250 þús­und kín­verskir „sjálf­boða­liðar“ á skrið­drekum til Norður-Kóreu og tóku hraust­lega á móti sókn Banda­ríkj­anna/Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Þegar leið að ára­mótum voru kín­versku „sjálf­boða­lið­arnir“ orðnir hálf milljón eða meira.

Auðvitað blekkti það í raun­inni engan að kalla þennan fjöl­menna her „sjálf­boða­liða“. Allir vissu að þetta voru bara ósköp venju­legir kín­verskir her­menn sem lutu stjórn kín­verskra hers­höfð­ingja.

Banda­ríkin lang­aði hins vegar ekki að lenda í stór­styrj­öld við Kína og létu því duga að svara gagn­sókn „sjálf­boða­lið­anna“ á víg­vell­inum í Kóreu en færa stríðið ekki í auk­ana.

Hroðaleg áætlun MacArthurs

En um það voru reyndar veru­lega skiptar skoð­anir meðal æðstu manna í Banda­ríkj­unum, sér­stak­lega eftir að her­lið þeirra tók að fara hinar mestu hrak­farir gegn kín­versku „sjálf­boða­lið­unum“.

Svo fór nefni­lega að Banda­ríkja­menn urðu nú að hrökkva hratt til baka undan þeim gríð­ar­lega mann­fjölda sem Maó sendi inn í Norður-Kóreu. Þegar leið að ára­mótum 1950-1951 voru kín­versku her­sveit­irnar búnar að reka her­sveitir Banda­ríkj­anna og banda­manna þeirra út úr nálega allri Norður-Kóreu aftur.

Harry Truman og Douglas MacArthur.

Og þá krafð­ist yfir­for­ingi her­liðs Banda­ríkj­anna, Douglas MacArthur, þess að fá að grípa til kjarn­orku­vopna.

Og það ekki í smáum stíl.

MacArthur lagði fyrir Harry Truman for­seta Banda­ríkj­anna áætlun sem fól í sér að varpa hvorki fleiri né færri en 34 atóm­sprengjum á norður-kóreskar og kín­verskar borgir við landa­mærin. Sprengja skyldi upp her­sveitir, birgða­leiðir, hafnir og her­stöðvar.

Kóreu­stríðið var líka fyrsta stríðið þar sem þyrlur komu veru­lega við sögu.Þær voru bæði not­aðar mjög til birgða- og mann­flutn­inga en einnig til að flytja særða burt af víg­vell­inum eins og þessi banda­ríska þyrla.

Þá skyldi skapa svo­kallað „geisl­un­ar­belti“ við landa­mæri Kína og Norður-Kóreu, með því að sprengja þar röð af Hírósjíma-sprengjum svo stór svæði væru menguð af geislun. Þá myndi Maó — sem ann­ars var óspar á mann­afla sinn — ekki dirfast að senda dáta sína yfir það belti.

Nú er Harry Truman Banda­ríkja­for­seti afar umdeildur maður og ekki síst fyrir að hafa fyr­ir­skipað kjarn­orku­árás­irnar á Hírósjíma og Nagasakí.

Truman hafði lært sína lexíu

Hins vegar má segja að með því hafi Truman lært sína lexíu og í hans huga kom aldrei til mála að nota kjarn­orku­sprengjur framar, nema mögu­lega í ýtr­ustu neyð ef Banda­ríkin sjálf væru í hættu.

Hann hafn­aði því alger­lega kröfum MacArthurs um að grípa til kjarn­orku­vopna.

Gilti þá einu þótt sókn Kínverja héldi áfram þangað til hún varð loks stöðvuð með hefð­bundnum vopnum í byrjun árs 1951, reyndar mjög í grennd við þann 38. breidd­ar­baug sem upp­haf­lega hafði skilið Norður- og Suður-Kóreu að.

Vit­an­lega voru ýmsar „stra­tegískar“ ástæður fyrir því að Truman hafn­aði algjör­lega kröfu MacArthurs um beit­ingu atóm­vopna. Hann ótt­að­ist að Stalín kynni að svara með stríðs­yf­ir­lýs­ingu og hinir miklar ara­grúar hans af skrið­drekum í Evrópu færu af stað.

Það er þó engum blöðum um það að fletta að Truman vildi þegar þarna var komið ein­fald­lega alls ekki beita kjarn­orku­vopnum vegna reynsl­unnar frá Japan.

MacArthur rekinn!

Truman gekk lengra, því hann rak MacArthur úr emb­ætti yfir­manns her­afla Banda­ríkj­anna í Kóreu í apríl 1951 þótt með því kall­aði hann yfir sig miklar óvin­sældir meðal almenn­ings, sem hafði látið sér vel líka hve glæsi­legt hörku­tól MacArthur virt­ist vera.

Uppsögn MacArthurs vakti mikla athygli og úlfúð í Banda­ríkj­unum og töldu Repúblikanar hana mjög til marks um að Truman væri ekki með nógu mikið bein í nef­inu til að eiga við „rauðu hætt­una“ en hann sat við sinn keip.

Eftir þetta breytt­ist víg­línan í Kóreu nán­ast ekk­ert í rúm tvö ár, þótt iðu­lega væri barist af hörku.

Þegar leið að for­seta­kosn­ingum í Banda­ríkj­unum 1952 hefði Truman getað boðið sig fram að nýju fyrir Demókrata. Hann hafði að vísu setið óslitið frá 1945 og nú var búið að setja form­legar reglur um að for­setar mættu aðeins sitja tvö kjör­tíma­bil.

En þar eð Truman hafði setið fyrra tíma­bil sitt, 1945-1949, eftir að hafa tekið við sem vara­for­seti Frank­lins Roosevelts, þá átti hann í raun eitt tíma­bil inni.

Óvin­sældir hans voru hins vegar slíkar að hann gaf fram­boð 1952 upp á bát­inn.

Vopnahlé samið

Ein helsta ástæðan fyrir óvin­sældum Trumans var einmitt sú að hann þótti ekki hafa sýnt komm­ún­istum næga hörku í Kóreu­stríð­inu. Banda­rískur almenn­ingur var orð­inn þreyttur á stríð­inu og vildi að ráða­menn tækju á sig rögg og lykju því, nán­ast með hvaða ráðum sem var.

Fram­bjóð­andi Repúblik­ana, Dwight Eisenhower hers­höfð­ingi, gaf ólíkt Demókrötum óhikað til kynna að hann gæti vel hugsað sér að beita kjarn­orku­vopnum í Kóreu ef „á þyrfti að halda“.

Eisenhower vann öruggan sigur í for­seta­kosn­ing­unum en svo var samið um vopna­hlé og óbreytt ástand á Kóreu­skag­anum í júlí 1953.

Ekki voru hins vegar gerðir raun­veru­legir frið­ar­samn­ingar og hafa ekki verið gerðir enn.

Syngman Rhee for­seti Suður-Kóreu var sáró­á­nægður og heimt­aði af Eisenhower að stríð­inu yrði haldið áfram þar til sigur ynn­ist og hann gæti ríkt yfir öllum Kóreu­skaga, en ekki var á hann hlustað.

Kim Il-sung mátti hins vegar kall­ast góður að hafa sloppið frá feigð­ar­flani sínu í júní 1950 með völd sín í norðr­inu óskert.

Það feigð­ar­flan hafði kostað að minnsta kosti þrjár millj­ónir manns­lífa.

En saga Kóreu­ríkj­anna tveggja var rétt að hefj­ast og um það má lesa hér.

„Og loks var eins og ekk­ert hefði gerst“ — nema þrjár millj­ónir manna höfðu dáið.Kóreu­skag­inn við upp­haf inn­rásar Norður-Kóreu í suð­ur­átt í júní 1950 og staðan þegar samið var vopna­hlé í júlí 1953.

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár