Óléttur hjúkrunarfræðingur tekinn hálstaki

Þær eru kýldar og teknar háls­taki. Kyn­ferð­is­leg áreitni gagn­vart starfs­fólki bráða­mót­tök­unnar er algengt. „Algeng­ara en við tölum um,“ segir hjúkr­un­ar­fræð­ingur. Starfs­fólk á vakt­inni hefur verið lamið, það er káfað á því og hrækt á það. Hótanir sem starfs­fólk verður fyrir eru bæði um líf­lát og nauðg­anir. Í sumum til­vikum er ofbeldið það alvar­legt að starfs­fólk hefur hætt störfum eftir alvar­legar árásir.

Þeim er hótað lík­am­legu ofbeldi. Þær verða fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti. Það er káfað á þeim. Þær fá alvar­legar hót­anir sem bein­ast gegn fjöl­skyldu þeirra og börnum og það er hrækt á þær. Þetta er veru­leiki sem kven­kyns starfs­fólk bráða­mót­tök­unnar hefur upp­lifað í vinnu sinni. Þær segja karl­kyns starfs­menn standa þétt við bakið á þeim þegar svona til­vik koma upp. Stjórn­endur bráða­mót­tök­unnar segj­ast taka öll ofbeld­is­mál alvar­lega og yfir­lækn­ir­inn segir að þótt starfs­fólkið sé alltaf í liði með sjúk­lingum þá sé  ofbeldi aldrei liðið og sjúk­lingar sem beiti ofbeldi eða hót­unum sé umsvifa­laust vísað frá deild­inni og fái ekki þjón­ustu. 

„Hann allt í einu tók mig háls­taki og hélt mér uppi við vegg“
Stella, hjúkr­un­ar­fræð­ingur

Fyrir tveimur árum var Stella hjúkr­un­ar­fræð­ingur ólétt og var á vakt á bið­stof­unni. Hún var að for­gangs­flokka sjúk­linga inn á deild­ina. Hún var inni á básnum, kall­aður tri­age, þar sem hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir ræða við sjúk­ling­ana og hún …

Kjósa
49
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Josef Gunnlaugsson skrifaði
    Eru thetta islendingar? Eda utlendingar?
    0
  • GEJ
    Gudmundur Eyjólfur Jóelsson skrifaði
    Þetta er ólíðandi og sé ekki betur en að ráða þurfi öryggisverði sem eru til taks öllum stundum.
    2
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Mesta furða að konur fáist til starfa við þessar aðstæður. Það þarf að ráða öryggisverði, hafi það ekki þegar verið gert.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Vont að senda varnarlausar konur aftur í sömu stöðu
Á vettvangi

Vont að senda varn­ar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár