„Karlarnir ætla allir á Miðflokkinn“

„Ef það væru kosn­ingar á morgun, hvern mynd­irðu kjósa?“ spyr Ásgeir Bolli Krist­ins­son menn reglu­lega sem hafa kosið Sjálf­stæð­is­flokk­inn í ára­tugi – jafn­vel hálfa öld. „Ekki Sjálf­stæð­is­flokk­inn“ er svarið. „Mið­flokk­inn“ fylgir gjarnan í kjöl­farið. Bolli ákvað að grípa til sinna ráða til þess að smala óánægju­fylg­inu „heim“ en telur hæpið að Valhöll verði við beiðni hans um svo­kall­aðan DD-lista.

„Karlarnir ætla allir á Miðflokkinn“
Flokks­maður Framtíð for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur ítrekað borið á góma und­an­farið, eftir að fylgi flokks­ins mæld­ist lægra en fylgi Mið­flokks­ins.

Ásgeir Bolli Krist­ins­son – Sjálf­stæð­is­maður til ára­tuga, sem gjarnan er þekktur sem Bolli í 17 þar sem hann rak versl­un­ina lengi vel – var staddur á Spáni, þar sem hann er búsettur, í 35 stiga hita þegar hann tók við sím­tali blaða­manns.

„Ef ég segði: „Ég skal skipta við þig um veður,“ þá myndir þú eftir 5–6 klukku­tíma hringja í mig og segja: „Ég vil skipta aftur“.“

En Bolli vill helst ekki skipta um flokk og vill raunar að fleiri menn eins og hann, Sjálf­stæð­is­menn til ára­tuga, geri það ekki heldur.  En það eru þeir farnir að gera. Svara: „Ekki Sjálf­stæð­is­flokk­inn“ þegar Bolli spyr og hall­ast frekar að Mið­flokknum.

„Bjarni á ekk­ert að vera vondur út í mig, ég styð Bjarna“
Ásgeir Bolli Krist­ins­son
Sjálf­stæð­is­maður með meiru

„Örfáar eig­in­konur þeirra segj­ast myndu kjósa Flokk fólks­ins. Karl­arnir ætla allir á Mið­flokk­inn,“ segir Bolli.

Til þess að smala þessum óánægðu kjós­endum heim lagði Bolli til í sumar að stofn­aður yrði svo­kall­aður DD-listi, auka­listi sem myndi byggja á grunn­stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins en renna inn í Sjálf­stæð­is­flokk­inn að loknum þing­kosn­ingum. Bolli sér fyrir sér að koma að val­inu á þeim sem leiða list­ann í hverju kjör­dæmi fyrir sig en svo fái þeir hinir sömu – Bolli nefnir Sigríði Á. Andersen, fyrr­ver­andi ráð­herra, Brynjar Níelsson, fyrr­ver­andi þing­mann og Elliða Vign­is­son, bæj­ar­stjóra í Ölfusi, sem væn­lega kandídata í topp­sætin – að raða rest eftir sínu höfði. Hann bætti því þó við í sam­tali við Vísi á mið­viku­dag að hann væri ekki að leita að „nýút­skrif­uðum stúlkum sem ætla bara að blása á sér hárið og nagla­lakka sig“. Ummæli hans voru gagn­rýnd harð­lega í kjöl­farið, meðal ann­ars af Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Bolli baðst loks afsök­unar.

Flokkur í basli

Vegna til­lögu sinnar um DD-lista, sem hann krafð­ist svars við frá mið­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir 20. ágúst síð­ast­lið­inn en hefur enn ekki fengið svar við, hefur Bolli sann­ar­lega verið í hring­iðu umræð­unnar í vik­unni. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, tók fremur illa í spurn­ingar frétta­manns RÚV fyrr í vik­unni um til­lögu Bolla. „Hvað er þetta annað en gagn­rýni á mín störf sér­stak­lega?“ spurði Bjarni.

„Bjarni á ekk­ert að vera vondur út í mig, ég styð Bjarna,“ segir Bolli, sem býst ekki við því að Val­hell­ingar taki vel í til­lög­una um DD-lista. „Svo getur VG haldið ein­hvern lands­fund og úthúðað for­mann­inum mínum. Hann bara brosir og segir: „Þetta er bara í fínu lagi“ en ef ég opna munn­inn þá bara bil­ast hann af vonsku út í mig og missir kúlið.“

Því þó að Bolli sé ósáttur vill hann mjög gjarnan að flokk­ur­inn sem hann hefur kosið í öll þessi ár haldi velli. Sem stendur er tví­sýnt um það. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn virð­ast berj­ast um fylgið og mæld­ist sá fyrr­nefndi fylg­is­lægri en sá síð­ar­nefndi í nýlegri könnun Maskínu. Bolli telur að þetta megi útskýra með því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi ekki fylgt sinni grunn­stefnu nægi­lega vel, meðal ann­ars hvað varði rík­is­fjár­mál, hæl­is­leit­enda­mál, orku­mál, hval­veiðar og mál­efni eldri borg­ara.

„Ég er bara mjög óánægður Sjálf­stæð­is­maður með það að stór hluti af gömlu fólki eigi ekki ofan í sig að borða. Mér finnst það vond til­hugsun. Það er ekki það sam­fé­lag sem ég vil að sé á Íslandi og þarf ekki að vera.“

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Ég tók eftir orðalaginu "Valhellingar". Eftir mínum orðaskilningi eru þetta menn og konur sem eiga heima í Valhelli en ekki í Valhöll. Er þá höllin orðin að helli?
    3
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Það er meira og minna skemmt í þjóðfélaginu eftir þetta lið.
    5
  • Megi þessi flokkur þurrkast út !
    17
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár