Talsmaður Arnarlax á rúmlega tveggja milljarða hagsmuni undir í laxeldi

Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­maður og hlut­hafi í Arn­ar­laxi, á hluta­bréf í félag­inu fyrir rúma tvo millj­arða króna. Hann keypti hluta­bréfin með kúlu­láni frá stærsta hlut­hafa Arnarlax. Kjartan hefur líkt eld­is­laxi við Teslu og sagt að ræktun hans sé lausn á lofts­lags­vanda­mál­inu.

Talsmaður Arnarlax á rúmlega tveggja milljarða hagsmuni undir í laxeldi
Hluti af lausn­inni Kjartan Ólafsson segir að ræktun á eld­is­laxi sé hluti af lausn heims­ins við lofts­lags­vand­anum. Hann á ríf­lega tveggja millj­arða króna hluta­bréf í Arn­ar­laxi.

Helsti tals­maður Arnarlax hér á landi, Kjartan Ólafsson, á ríf­lega tveggja millj­arða króna fjár­hags­lega hags­muni undir í fyr­ir­tæk­inu í gegnum hluta­bréfa­eign í því. Hluta­bréf hans í fyr­ir­tæk­inu eru metin á tæp­lega 2,2 millj­arða króna sam­kvæmt síð­asta árs­reikn­ingi eign­ar­halds­fé­lags hans, Gyðu ehf., sem nýlega var skilað til árs­reikn­inga­skrár Rík­is­skatt­stjóra. 

Hluta­bréfin voru keypt með kúlu­láni, láni sem er á greiðslu í heilu lagi ásamt vöxtum á einum gjald­daga, frá stærsta hlut­hafa Arnarlax, norska lax­eld­is­ris­anum Salmar AS. Þannig eru per­sónu­legir hags­munir Kjartans, sem í dag er stjórn­ar­maður í Arn­ar­laxi en var áður stjórn­ar­for­maður, og Salmar AS tengdir saman með beinum hætti í Arn­ar­laxi.

Stundin, annar af fyr­ir­renn­urum Heim­ild­ar­innar, hefur áður fjallað um hluta­bréfa­eign Kjartans í Arn­ar­laxi en hann hefur ekki viljað svara frek­ari spurn­ingum um við­skiptin síð­ast­liðin ár. 

Þegar hann tjáði sig um hluta­bréfa­við­skipti sín á sínum tíma …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HR
    Hilmar Ragnarsson skrifaði
    Landráðamaður, fór beint með heimildir frá vinum sínum hjá MAST til sjókvíaeldis til Norðmanna og fékk greitt í hlutabréfum. Hvað gerum við með svona menn?
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hvers vegna vill sjálfstæðisflokkurinn eyðileggja Vestfirði ?
    Finnst sjálfstæðisflokknum þeir ekki gert nóg með kvótamálin ?
    Guggan verður alltaf gul fyrir vestan ?
    Hvað fær Einar Kristinn Guðfinsson marga milljarða í spillingargreiðslu ?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár