Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 2 árum.

Félag stjórnarformannsins hagnaðist um sjöfalt meira á laxeldisauðlindinni en Arnarlax greiddi til ríkisins

Eign­ar­halds­fé­lag stjórn­ar­for­manns Arn­ar­lax, Kjart­ans Ólafs­son­ar, held­ur ut­an um hluta­bréfa­eign hans í lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu. Fyr­ir­tæk­ið hagn­að­ist um tæp­lega 690 millj­ón­ir króna í fyrra vegna verð­hækk­ana á hluta­bréf­um Arn­ar­lax og sölu þess á hluta­bréf­um í því. Til samamburð­ar greiddi Arn­ar­lax rúm­ar 97 millj­ón­ir króna til ís­lenska rík­is­ins í auð­linda- og leyf­is­gjöld.

Félag stjórnarformannsins hagnaðist um sjöfalt meira á laxeldisauðlindinni en Arnarlax greiddi til ríkisins

Eignarhaldsfélag í eigu stjórnarformanns Arnarlax, Kjartans Ólafssonar, hagnaðist um tæplega 688 milljónir króna í fyrra vegna verðhækkana á hlutabréfum þess í Arnarlaxi og sölu þess á hlutabréfum í félaginu. Þetta kemur fram í ársreikningi eignarhaldsfélags hans, Gyðu ehf., í fyrra sem skilað var til ársreikningaskrár í lok september síðastliðinn. 

Arnarlax var skráð á Merkur-hlutabréfamarkaðinn í Noregi í fyrra og leiddi þessi skráning til mikilla verðhækkana á hlutabréfum í félaginu.

Verðmætin í Arnarlaxi liggja í laxeldisleyfum félagsins, leyfum til að framleiða eldislax í fjörðum Íslands. Þessi leyfi ganga kaupum og sölum í Noregi fyrir há verð en ekki á Íslandi. Í fyrrra hafði Arnarlax yfir að ráða leyfum til að framleiða 22 þúsund tonn af eldislaxi.  Eitt af því sem mikið hefur verið í umræðunni á Íslandi er af hverju íslensk stjórnvöld nær gefi þessi leyfi til framleiðslu á eldislaxi á meðan þau eru seld dýrum dómum í Noregi. 

„Allir sem hafa verið með hingað til hafa í raun komið mjög vel út úr því.“
Kjartan Ólafsson

Bréfin fjármögnuð með kúluláni frá Arnarlaxi 

Eins og Stundin hefur greint frá keypti Kjartan hlutabréf í Arnarlaxi í gegnum Gyðu ehf. með láni frá stærsta hluthafa Arnarlax, norska laxeldisrisanum Salmar AS. Um var að ræða tæplega 500 milljóna króna kúlulán til að kaupa 2,41 prósents hlutabréf í norsku móðurfélagi Arnarlax af Salmar AS. 

Um hlutabréfaviðskipti sín í Arnarlaxi hefur Kjartan sagt, í samtali við Stundina: „Ég veit að þetta eru orðin umtalsverð verðmæti. Allir sem hafa verið með hingað til hafa í raun komið mjög vel út úr því. Og ég gæti hoppað út núna því það liggur fyrir tilboð í hlutabréfin en ég kýs að gera það ekki.“

Í ársreikningi félags Kjartans fyrir árið  fyrra kemur fram að félag hans keypti hlutabréf fyrir tæplega 157 milljónir króna það árið en seldi bréf í Arnarlaxi fyrir 467 milljónir. Við þetta myndaðist söluhagnaður upp á 310 milljónir króna. 

Við þennan hagnað bætist svo matsbreyting hlutabréfa Gyðu í Arnarlaxi upp á 438 milljónir króna. 

Þetta tvennt leiðir til þess að félag Kjartans skilaði hagnaði upp á 688 milljónir króna, eftir greiðslu fjármagnsgjalda. 

Á grundvelli þessa hagnaðar gat félagið greitt út 115 milljóna króna arð til eignarhaldsfélags Kjartans sem á félagið Gyðu ehf. 

Arnarlax greiddi 97 milljónir til ríkisins fyrir leyfin

Eins og Stundin hefur fjallað um áður er Kjartan einn af fáum, í þó stækkandi hóp íslenskra fjárfesta, sem hefur hagnast á íslensku laxeldi hingað til. Tilraunir til að koma á fót stórfelldu laxeldi á Íslandi hafa hingað til runnið út í sandinn út af ýmsum ástæðum, meðal annars hörðum veðurskilyrðum við Ísland. En svo virðist sem nú hafi félög eins og Arnarlax og Arctic Sea Farm, sem og Fiskeldi Austfjarða, ná að festa sig í sessi þannig að útlit er fyrir að þau nái að halda velli. Öll félögin eru í eigu norskra laxeldisfyrirtækja að stóru leyti. 

Í ársreikningi Arnarlax fyrir árið í fyrra kemur fram að félagið hafi greitt samtals tæplega 650 þúsund evrur í auðlinda- og leyfisgjöld til íslenska ríkisins vegna framleiðslu á eldislaxi. Auðlindagjaldið nama 133 þúsund evrum og gjald í Umhverfissjóð fiskeldis. Samtals nam þessi upphæð 97 milljónum íslenskra króna eða um 1/7 hluta af því sem lítill hluthafi í Arnarlaxi, félag Kjartans Ólafssonar, hagnaðist á um á hlutabréf sinni í fyrirtækinu í fyrra.

Upphæðin sem Arnarlax greiddi fyrir leyfin til íslenska nam einnig 18 milljónum króna minna en arðgreiðslan út úr félagi Kjartans í fyrra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Umdeilt frumvarp matvælaráðherra um lagareldi bíður líklega næsta þings
FréttirLaxeldi

Um­deilt frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi bíð­ur lík­lega næsta þings

Gísli Rafn Ólafs­son, þing­mað­ur Pírata og vara­formað­ur at­vinnu­vega­nefnd­ar, seg­ir að enn sé ver­ið að ræða við hags­mun­að­ila út af lagar­eld­is­frum­varp­inu. Hann seg­ir lík­legra en ekki að frum­varp­ið bíði næsta þings. Frum­varp­ið er um­deilt og hafa mat­væla­ráð­herr­ar Vinstri grænna ver­ið gagn­rýnd­ir fyr­ir það.
Búið að ráða nýjan mann í starfið hjá MAST eftir innanhúsátök
FréttirLaxeldi

Bú­ið að ráða nýj­an mann í starf­ið hjá MAST eft­ir inn­an­húsátök

Mat­væla­stofn­un hef­ur ákveð­ið að Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir verði nýr sviðs­stjóri yf­ir með­al ann­ars lax­eldi hjá stofn­un­inni. Átök urðu inn­an­húss hjá stofn­un­inni eft­ir að Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn í starf­ið en hann hafði með­al ann­ars skrif­að grein­ar þar sem hann lýsti yf­ir stuðn­ingi við sjókvía­eldi sem at­vinnu­grein.
SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýn­ir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og tal­ar um hann eins og eign

Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skil­að gagn­rýnni um­sögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráð­un­um hjá SFS er að rekstr­ar­leyf­in í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bund­in leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt ann­að í því.

Mest lesið

„Þetta var eins og það væri verið að taka af mér barnið mitt“
1
Fréttir

„Þetta var eins og það væri ver­ið að taka af mér barn­ið mitt“

Ásta María H. Jen­sen seg­ir það hafa ver­ið mik­ið áfall þeg­ar hunda­rækt­andi mætti á heim­ili henn­ar og tók af henni hvolp sem hún hafði keypt. Ástæð­an var sú að rækt­and­inn hafði frétt að Ásta væri með geð­sjúk­dóm og treysti henni ekki leng­ur fyr­ir hund­in­um. Kær­u­nefnd vöru- og þjón­ustu­kaupa komst að þeirri nið­ur­stöðu að þessi fyr­ir­vara­lausa rift­un selj­and­ans hafi ver­ið ólög­mæt en Ásta fékk eng­ar bæt­ur, og held­ur ekki hvolp­inn sinn til baka
Endalokin eru ekki í ruslatunnunni
4
ViðtalLoftslagsvá

Enda­lok­in eru ekki í rusla­tunn­unni

Sjálf­bærni er meg­in­stef í lífi Hrefnu Bjarg­ar Gylfa­dótt­ur, teym­is­þjálfa hjá Mar­el. Sem barn fannst henni skrít­ið að henda hlut­um í rusl­ið, það áttu ekki að vera enda­lok­in. Sjálf­bærni­veg­ferð Hrefnu Bjarg­ar hófst með óbilandi áhuga á end­ur­vinnslu. Hún próf­aði að lifa um­búða­lausu lífi sem reynd­ist þraut­in þyngri en hjálp­aði henni að móta eig­in sjálf­bærni.
Yazan og fjölskylda ekki flutt úr landi
7
Fréttir

Yaz­an og fjöl­skylda ekki flutt úr landi

„Mið­að við þann tím­aramma sem al­mennt er gef­inn til und­ir­bún­ings er ljóst að ekki verð­ur af flutn­ingi fjöl­skyld­unn­ar að svo komnu þar sem frá og með næst­kom­andi laug­ar­degi, þann 21. sept­em­ber, mun fjöl­skyld­an geta ósk­að eft­ir efn­is­legri með­ferð um­sókn­ar sinn­ar um al­þjóð­lega vernd hér á landi,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá rík­is­lög­reglu­stjóra.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sérfræðingar senda út neyðarkall: Hafa aldrei farið nær mörkunum
7
GreiningLoftslagsvá

Sér­fræð­ing­ar senda út neyð­arkall: Hafa aldrei far­ið nær mörk­un­um

Á sama tíma og hita­met voru sleg­in víða í sum­ar og vís­inda­fólk tal­aði um for­dæma­lausa hita af völd­um hlýn­un­ar jarð­ar voru gul­ar og app­el­sínu­gul­ar við­v­arn­ir í gildi á Ís­landi, með­al ann­ars vegna snjó­komu. Veð­ur­stofa Ís­lands tel­ur „vel mögu­legt“ að vegna hugs­an­legr­ar trufl­un­ar á varma­flutn­ingi inn á hluta af Norð­ur-Atlants­hafi kólni hér á með­an hitn­ar víð­ast hvar ann­ars stað­ar.
Illugi Jökulsson
10
Pistill

Illugi Jökulsson

Sigr­aði VG Sjálf­stæð­is­flokk­inn? Nei, all­ir töp­uðu og Yas­an líka

Hinni ótrú­legu at­burða­rás gær­kvölds­ins — þeg­ar lög­reglu­menn mættu á sjúkra­hús til þess að vísa úr landi 11 göml­um fötl­uð­um og veik­um dreng og fluttu hann með valdi suð­ur á Kefla­vík­ur­flug­völl — henni lauk sem bet­ur fer með því að hætt var við allt sam­an. Mað­ur get­ur haft ýms­ar skoð­an­ir á mál­efn­um út­lend­inga og hæl­is­leit­enda en brott­vís­un Yas­ans litla — og...

Mest lesið í mánuðinum

Óli Þórðar græddi pening en tapaði heilsunni
5
FréttirHátekjulistinn 2024

Óli Þórð­ar græddi pen­ing en tap­aði heils­unni

„Já ég seldi und­an mér vöru­bíl­inn og er hrein­lega ekki að gera neitt,“ seg­ir Ólaf­ur Þórð­ar­son, knatt­spyrnugoð­sögn og vöru­bif­reið­ar­stjóri á Skag­an­um. Óli dúkk­aði nokk­uð óvænt upp á há­tekju­lista árs­ins eft­ir að fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­ið var selt. Hann gæti virst sest­ur í helg­an stein. Það er hann þó ekki, í það minnsta ekki ótil­neydd­ur.
Tilgangsleysi og gáleysi lýst í rannsókn slyssins í Grindavík
10
AfhjúpunFéll í sprungu í Grindavík

Til­gangs­leysi og gá­leysi lýst í rann­sókn slyss­ins í Grinda­vík

Það svar­aði ekki kostn­aði að fara í fram­kvæmd­ir við að bjarga hús­inu við Vest­ur­hóp 29 í Grinda­vík, sam­kvæmt skýrslu tveggja mats­manna sem skoð­uðu hús­ið rúm­um mán­uði áð­ur en að verktaki lést við sprungu­fyll­ingu við hús­ið. Nátt­úru­ham­fara­trygg­ing vís­ar ábyrgð á und­ir­verk­taka sinn, Eflu, sem seg­ir eng­ar kröf­ur hafa ver­ið gerð­ar um áhættumat á verkstaðn­um. Lög­regla hafði lok­ið rann­sókn en hóf hana aft­ur, af ókunn­um ástæð­um.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár