Stjórnarformaður Arnarlax er einn af fáum sem hefur grætt á auðlindinni

Stjórnar­formaður Arnarlax, Kjartan Ólafsson, ráðgerði að greiða sér 75 milljóna króna arð af hluta­bréfum sínum í Arnarlaxi árin 2018 og 2019. Kjartan leiðir uppbyggingu stærsta laxeldis­fyrirtækis landsins fyrir hönd norskra eigenda þess, aðallega laxeldis­risans Salmar AS.

200 milljóna arður
200 millj­óna arður Síð­ast­liðin þrjú ár eru arð­greiðslur og ætl­aðar arð­greiðslur frá fyr­ir­tæki stjórn­ar­for­manns Arnarlax, Kjartans Ólafsson, til hans, 200 millj­ónir króna. Verð­mætið í Arn­ar­laxi felst í aðgang­inum að nátt­úru Íslands sem er nán­ast ókeypis en er seldur dýru verði í Noregi.

Stjórnar­formaður Arnarlax, Kjartan Ólafsson, ætlaði að láta eignarhalds­félag í hans eigu, sem heldur utan um hlutabréfa­eign í laxeldis­fyrirtækinu, greiða 40 milljóna arð út úr fyrir­tækinu, Gyðu ehf., í fyrra. Þetta kemur fram í ársreikningi Gyðu ehf. sem skilað var til ársreikninga­skrár ríkis­skattstjóra í desember í fyrra. 

Eigandi Gyðu ehf. er félagið Berg fjár­festing, sem greiddi út 125 milljóna arð til Kjartans árið 2017 vegna sölu stjórna­formannsins á hluta­bréfum í fyrir­tækinu. Samkvæmt ársreikningi Bergs fjár­festingar fyrir 2018 ætlaði félagið að greiða út 25 milljóna króna arð til Kjartans í fyrra. Arðurinn af hlutabréfa­eign Kjartans í Arnarlaxi rennur því frá Gyðu, til Bergs fjár­festingar og þaðan til Kjartans. Hlutabréf Kjartans, eða Gyðu ehf., í Arnarlaxi voru eignfærð á tæplega 199 milljónir króna í árslok 2018 og voru rúmlega 64 milljónum króna hærri en í lok árs 2017. 

Mikill styr hefur staðið um laxeldismál á Íslandi síðastliðin ár í kjölfarið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár