Viðbrögð hafi einkennst af kerfislegum lausatökum og úrræðaleysi

Rík­is­end­ur­skoðun er harð­orð í garð yfir­stjórnar heil­brigð­is­mála í nýrri skýrslu um mönnun og flæði sjúk­linga innan Land­spít­al­ans. Árið 2024 voru ómönnuð stöðu­gildi hjúkr­un­ar­fræð­inga 50 og lækna 30.

Viðbrögð hafi einkennst af kerfislegum lausatökum og úrræðaleysi

„Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar hefur úrræða­leysi og kerf­is­leg lausa­tök ein­kennt við­brögð yfir­stjórnar heil­brigð­is­mála við áskor­unum tengdum mönnun og afkasta­getu Land­spít­ala og heil­brigð­is­þjón­ust­unnar í heild. Eftirlit emb­ættis land­læknis hefur ítrekað stað­fest staðan sé bág­borin og að það bitni á gæðum þjón­ust­unnar og öryggi sjúk­linga. Heil­brigð­is­ráðu­neyti þarf að styrkja yfir­stjórn sína, bæði í stefnu­mótun og virkri yfir­sýn um heil­brigð­is­kerfið.“ 

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar um mönnun og flæði sjúk­linga á Land­spít­al­anum. Er því miðlað til heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins að ráð­ast í heild­ræna skipu­lagn­ingu á mönnun heil­brigð­is­þjón­ust­unar. 

Til að gera úrbætur á mönn­unar- og flæð­is­vanda Land­spít­ala er kallað eftir því að horft sé í auknum mæli til stjórn­unar. Segir í skýrsl­unni að  efla þurfi mið­læga ferla og stjórn­un­ar­kerfi spít­al­ans, ekki síst með áherslu á áætl­ana­gerð um mönnun, útfærslu á vinnu­skipu­lagi og sam­ræmda stjórn og eft­ir­lit með mannauðs­málum. 

Helstu heilbrigðisstéttir undirmannaðar

Í nið­ur­stöðum skýrsl­unnar kemur fram að frá árinu 2019 hafi sjúk­lingum sem leitað hafi til Land­spít­ala fjölgað um 20 pró­sent en starfs­fólki um 13 pró­sent. Rúmum á legu­deildum hafi að með­al­tali fækkað.

Í fyrra voru helstu heil­brigð­is­stéttir spít­al­ans und­ir­mann­aðar miðað við áætl­anir, sér­stak­lega sjúkra­liðar. „Þessari mann­eklu er mætt með breyti­legri yfir­vinnu heil­brigð­is­starfs­fólks og umfram­fjölda ófag­lærðs starfs­fólks,“ stendur í skýrsl­unni. Er þetta bæði á sviði hjúkr­unar og umönn­unar.

„Skortur á hjúkr­un­ar­fræð­ingum og læknum hefur haft nei­kvæð áhrif á afköst og gæði þjón­ust­unnar en fjöldi stöðu­gilda sjúkra­liða sem eru ómönnuð eru jafn­framt áhyggju­efni. [...] Þegar fjöl­mennir árgangar sjúkra­liða kom­ast á eft­ir­launa­aldur á næstu árum mun vand­inn að óbreyttu aukast enn frekar sam­hliða öldrun þjóð­ar­innar og auk­innar eft­ir­spurnar eftir þjón­ustu sjúkra­liða utan spít­al­ans.“

Mönnun ræðst af fjárhagsáætlun, ekki öfugt

Segir Rík­is­end­ur­skoðun að aðgerðir heil­brigð­is­ráðu­neytis og spít­ala til að takast á við mönn­un­ar­vand­ann hafi sumar haft jákvæð áhrif. „En heild­ar­á­hrifin hafi verið tak­mörkuð og því ljóst að frek­ari aðgerða er þörf.“

„Fjár­hags­á­ætl­anir spít­al­ans varð­andi stöðu­gildi heil­brigð­is­starfs­fólks taka orðið mið af þeim mönn­un­ar­vanda sem spít­al­inn hefur staðið frammi fyrir síð­ustu ár frekar en æski­legum fjölda“

Bent er á að þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir ákveðnum stöðu­gildum í fjár­hags­á­ætl­unum spít­al­ans hafi ekki tek­ist að manna þau. „Þannig voru 50 stöðu­gildi hjúkr­un­ar­fræð­inga, 14 stöðu­gildi ljós­mæðra og 30 stöðu­gildi lækna ómönnuð árið 2024.“

Í skýrsl­unni er einnig bent á að mönn­un­ar­líkön spít­al­ans hafi lítið þró­ast síð­ast­liðin ár. „Er svo komið að mönn­un­ar­þátt­ur­inn ræðst af for­sendum fjár­hags­á­ætl­unar hvers árs frekar en að fjár­hags- og rekstr­ar­á­ætl­anir séu lagðar fram á grund­velli mönn­un­ar­við­miða fyrir þá þjón­ustu sem spít­al­inn ætti að veita. Fjár­hags­á­ætl­anir spít­al­ans varð­andi stöðu­gildi heil­brigð­is­starfs­fólks taka orðið mið af þeim mönn­un­ar­vanda sem spít­al­inn hefur staðið frammi fyrir síð­ustu ár frekar en æski­legum fjölda.“

Útfærðar kröfur eða leið­bein­ingar um grein­ingar á mann­afla­þörf og mönn­un­ar­á­ætl­anir eru ekki til staðar, bendir Rík­is­end­ur­skoðun á. Sú vinna sé þó hafin fyrir til­teknar greinar innan spít­al­ans og heil­brigð­is­ráðu­neytis.

Rík­is­end­ur­skoðun miðlar því til heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins að bæta yfir­stjórn sína á mannauði heil­brigð­is­þjón­ust­unnar. „Afar mik­il­vægt er að starfs­um­hverfið verði með þeim hætti að Land­spít­ali og aðrar heil­brigð­is­stofn­anir sem veita lyk­il­þjón­ustu verði ekki hall­oka í sam­keppni um starfs­fólk.“ 

Þá þurfi bæði Land­spít­al­inn og ráðu­neytið að leita leiða til að styrkja mönnun spít­al­ans til fram­tíðar. Til dæmis með því að styðja í auknum mæli við upp­bygg­ingu sér­náms, sér­stak­lega þeirra greina sem mest mun mæða á sam­hliða öldrun þjóð­ar­innar.

Of fá hjúkrunarrými og plássleysi á legudeildum skapa álag á bráðamóttöku

Úrbætur skortir einnig í tengslum við flæði sjúk­linga en sam­kvæmt skil­greindum inn­lagn­ar­stigum spít­al­ans ríkti að jafn­aði ofur­á­lag allan síð­ari hluta árs­ins í fyrra.

Vandinn sem snýr að flæði sjúk­linga birt­ist hvað skýr­ast á bráða­mót­tök­unni í Fossvogi, þar sem með­al­lengd komu á bráða­mót­töku sem þarfn­að­ist inn­lagnar var meira en sól­ar­hringur árið 2024. 

Ástæða þessa álags er einkum vegna þeirra sem ekki hægt er að inn­rita á legu­deildir spít­al­ans, þrátt fyrir að hafa lokið þjón­ustu á bráða­mót­töku. Árið 2024 lágu að með­al­tali 29 sjúk­lingar á bráða­mót­tök­unni sem voru til­búnir til inn­lagnar á legu­deild en komust ekki að.

Rúmnýt­ing­ar­hlut­fall hefur farið hækk­andi og er yfir 100 pró­sent á þremur þjón­ustu­sviðum.

Þá hafa fá hjúkr­un­ar­rými einnig gríð­ar­leg áhrif á flæði sjúk­linga á Land­spít­al­anum. Bent er á í skýrsl­unni að hjúkr­un­ar­rýmum hafi ekki fjölgað að ráði frá árinu 2019 þrátt fyrir auknar heim­ildir til fjár­mögn­unar. Áætl­arnir um fjölda hjúkr­un­ar­rýma og með­al­bið­tíma frá árinu 2019 hefðu „engan veg­inn stað­ist.“

„Rými eru tæp­lega 470 færri en gert var ráð fyrir, með­al­bið­tími um 176 dagar og um 500 ein­stak­lingar eru á biðlista. [...] Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar er tölu­verð óvissa um hvort fyr­ir­huguð fjölgun nýrra hjúkr­un­ar­rýma sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi fram­kvæmda­á­ætlun nái að svara væntri þörf.“ 

Vilja eflda stjórn heilbrigðismála

Rík­is­end­ur­skoðun telur upp fjölda ábend­inga sem miðlað er til Land­spít­ala, heil­brigð­is­ráðu­neytis og félags - og hús­næð­is­mála­ráðu­neytis.

Meðal ábend­inga eru inn­leið­ing mönn­un­ar­lík­ana, það að fylgja eftir inn­leið­ingu gæða­stjórn­un­ar­kerfis, efla sér­nám og að styðja starfs­fólk til náms.

Þá er heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu meðal ann­ars bent á að það þurfi að efla stjórn heil­brigð­is­mála þvert á mál­efna­svið. „Heil­brigð­is­ráðu­neyti þarf að taka yfir­stjórn heil­brigð­is­þjón­ust­unnar fast­ari tökum, skipu­leggja hana sem eina heild og gæta þess að skil­greind árang­urs­mark­mið og mæli­kvarðar sem tengd eru fjár­veit­ingum Land­spít­ala end­ur­spegli betur stefnumið til lengri og skemmri tíma.“

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár