Rannsókn á Samherjamálinu lokið

Fimm ára rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á Samherja er lokið. Níu Íslend­ingar eru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings.

Rannsókn á Samherjamálinu lokið
Bernhard Esau og Þor­steinn Már Bald­vins­son Sam­herj­a­málið varð­aði meintar mútu­greiðslur Samherja til að kom­ast yfir fisk­veiði­heim­ildir í Namibíu.

Rannsókn hér­aðs­sak­sókn­ara á Sam­herj­a­mál­inu er lokið og sak­sókn­ari mun taka ákvörðun um hvort ákært verði í því.

Níu eru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings, þar á meðal Þor­steinn Már Bald­vins­son sem nýhættur er sem for­stjóri Samherja. RÚV greinir frá.

Upplýst var um málið í frétta­þætt­inum Kveik í nóv­em­ber 2019 í sam­starfi við Stundina (for­vera Heim­ild­ar­innar), Wikileaks og Al Jazeera. Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Samherja, steig fram sem upp­ljóstr­ari í mál­inu.

Málið varðar meintar mútu­greiðslur Samherja til hátt settra emb­ætt­is­manna í Namibíu til að kom­ast yfir fisk­veiði­heim­ildir í land­inu. Þá var hagn­að­ur­inn tek­inn út í gegnum flókið net félaga sem teygðu sig víða heim og vöktu upp spurn­ingar um skattaund­an­skot.

Rann­sóknin tók 5 ár og mikið af gögnum eru undir, þar á meðal á annað þús­und smá­skila­boð á milli Þor­steins Más og Jóhann­esar.

Þor­steinn Már steig tíma­bundið til hliðar sem for­stjóri Samherja eftir að málið kom upp en tók svo við starf­inu aftur. Hann hætti sem for­stjóri 26. júní síð­ast­lið­inn og Baldvin Þor­steins­son sonur hans tók við sem for­stjóri.

Þá höfðu Þor­steinn Már og Kristján Vil­helms­son fært hluti sína í Samherja til barn­anna sinna sem eiga nú fyr­ir­tækið.

Tveir namibískir ráð­herrar sögðu af sér út af mál­inu, dóms­mála­ráð­herra og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra.

Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari tók fram í sam­tali við frétta­stofu RÚV að málið hefði verið umfangs­mikið og náð yfir langt tíma­bil. Það sé því áfangi, ákveðin kafla­skil, að klára þetta stóra mál.

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár