Brutu gegn siðareglum í máli Ásthildar Lóu

RÚV og Sunna Karen Sig­ur­þórs­dóttir brutu gegn Ásthildi Lóu Þórs­dóttur ráð­herra í umfjöllun um son hennar og sam­skipti við barns­föður. Siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags­ins vís­aði hins vegar frá öllum kröfum ráð­herra nema einni.

Brutu gegn siðareglum í máli Ásthildar Lóu
Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir Ást­hildur sagið af sér sem mennta- og barna­mála­ráð­herra í kjöl­far frétta­flutn­ings af mál­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslands komst að þeirri nið­ur­stöðu á mánu­dag að RÚV og Sunna Karen Sig­ur­þórs­dóttir hafi framið ámæl­is­vert brot með umfjöllun um mál Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur, þá mennta- og barna­mála­ráð­herra, fyrr í ár. Ást­hildur sagði af sér ráð­herra­emb­ætti í kjöl­far umfjöll­unar RÚV um að hún hafi átt barn með pilti á tán­ings­aldri.

Ást­hildur kærði Rík­is­út­varpið, RÚV, Ara Pál Karlsson, Sunnu Karen og frétta­stofu RÚV til siða­nefndar fyrir umfjöllun um mál­efni hennar sem hófst þann 20. mars 2025. Siða­nefndin fékk kæruna í hendur 18. maí og birti úrskurð nú á mánu­dag þar sem öllum kröfum Ást­hildar Lóu var vísað frá nema einni.

Nið­ur­staða siða­nefndar var að RÚV og Sunna Karen hefðu ein­ungis gerst brot­leg við 2. grein siða­reglna með því að vísa til almennra hegn­ing­ar­laga án fyr­ir­vara og gefa þannig í skyn að Ást­hildur Lóa hefði gerst brot­leg við lög með sam­band sínu við pilt­inn.

2. grein siða­reglna hljóðar svo: „Blaða­maður setur fram upp­lýs­ingar á heið­ar­legan og sann­gjarnan hátt sam­kvæmt bestu vit­und hverju sinni, meðal ann­ars með því að leita and­stæðra sjón­ar­miða þegar við á. Blaða­maður hag­ræðir ekki stað­reyndum og setur ekki fram órök­studdar ásak­anir.“

Átti barn með unglingspilti

Þann 20. mars birt­ist á vef RÚV frétt með fyr­ir­sögn­inni „Barna­mála­ráð­herra átti barn með ung­lings­pilti sem hún leið­beindi“, en síðar var fyr­ir­sögn hennar breytt í „Barna­mála­ráð­herra átti barn með ung­lings­pilti sem hún kynnt­ist í trú­ar­söfn­uði“.

Í frétt­inni kom fram að Ást­hildur Lóa hefði fyrir rúmum þremur ára­tugum, þegar hún var 22 ára gömul, átt í ást­ar­sam­bandi með fimmtán ára dreng. „Þess var getið að þau hefðu kynnst þegar kær­andi leiddi ung­linga­starf í trú­ar­söfn­uði, hvar dreng­ur­inn hefði leitað hald­reipis vegna aðstæðna heima fyrir,“ segir í umfjöllun siða­nefndar. „Eftir sam­neyti þeirra varð kær­andi þunguð og eign­að­ist son en í frétt­inni segir að þá hafi móð­irin verið orðin 23 ára en fað­ir­inn sextán ára. Enn fremur var sagt frá því að umgengni föður við barnið hefði verið tak­mörkuð og að fað­ir­inn hafi upp­lifað fram­komu kær­anda sem tálmun. Í frétt­inni er þess getið að fað­ir­inn hafi ekki viljað veita frétta­stofu við­tal en stað­fest fram­an­greindar upp­lýs­ingar.“

Í frétt­inni var málið sett í sam­hengi við 198. grein almennra hegn­ing­ar­laga þar sem segir að óheim­ilt sé að eiga sam­neyti með ein­stak­lingi undir átján ára aldri sé „við­kom­andi til dæmis kenn­ari eða leið­bein­andi“ og hið sama gildi eigi maður sam­ræði við ein­stak­ling undir átján ára aldri sem sé „háður við­kom­andi fjár­hags­lega, í atvinnu sinni eða skjól­stæð­ingur í trún­að­ar­sam­bandi· Slíkt brot geti varðað allt að þriggja ára fang­elsi.

Ást­hildur Lóa sagði af sér sem ráð­herra í beinu fram­haldi af frétta­flutn­ingnum.

Leiðréttu aldur og báðust velvirðingar

28. mars birti RÚV leið­rétt­ingu þar sem kom fram að hið rétta hafi verið að þau hafi bæði verið árinu eldri og þau beðin vel­virð­ingar.

Með bréfi til RÚV 10. maí fór Ást­hildur Lóa fram á að RÚV mundi leið­rétta rang­færslur og aðdrótt­anir um refsi­vert athæfi í umfjöllun um málið og leit­ast við að leið­rétta fréttir sem miðlað var til erlendra sjón­varps­stöðva. RÚV svar­aði með bréfi 15. maí og sagði ekki til­efni til frek­ari leið­rétt­inga.

Ást­hildur Lóa bendir á að sam­band þeirra hafi haf­ist þegar dreng­ur­inn var sextán ára og því sjálf­ráða í skiln­ingi þágild­andi laga. Þá hafi hún ekki leitt trú­ar­starf í söfn­uð­inum heldur verið jafn­sett mann­inum innan hans.

„Að mati kær­anda hefðu frétta­menn RÚV getað, út frá fæð­ing­ar­degi sonar kær­anda, reiknað út hvenær umrædd sam­skipti áttu sér stað“

„Að mati kær­anda hefðu frétta­menn RÚV getað, út frá fæð­ing­ar­degi sonar kær­anda, reiknað út hvenær umrædd sam­skipti áttu sér stað, enda hefur kær­andi greint svo frá að sam­neyti þeirra hafi ekki haf­ist fyrr en getn­aður átti sér stað. Með „ein­földum hug­ar­reikn­ingi, og öflun upp­lýs­inga um venju­bund­inn með­göngu­tíma mann­fólks, hefðu frétta­menn RÚV getað fundið út að barns­faðir [kær­anda] var 16 ára þegar barn hans og [kær­anda] var getið.“

Fram­setn­ing RÚV hafi því hvorki verið heið­ar­leg né sann­gjörn eins og siða­reglur kveða á um. Þá segir Ást­hildur Lóa að hún hafi aldrei hafnað við­tali heldur aðeins óskað eftir upp­lýs­ingum um til­efni þess áður en það yrði veitt. Hún hafi ekki fengið ráð­rúm til að bregð­ast við ásök­unum og stað­reyndir því ekki verið leiddar í ljós.

Loks hafi aðdrótt­anir um refsi­vert athæfi ekki verið sann­gjarnar, því  ein­föld gagna­öflun hefði leitt í ljós að til­vitn­uðu ákvæði hegn­ing­ar­laga var breytt í núver­andi horf árið 1992, auk þess að sjálf­ræðis- og sam­ræð­is­aldur hafi tekið breyt­ingum á tíunda ára­tug síð­ustu aldar.

Öllum atriðum vísað frá nema einu

Í svari þeirra kærðu í mál­inu var bent á að Ari Páll Karlsson hefði enga aðkomu haft að mál­inu og því óljóst af hverju hann hafi verið kærður. Féllst siða­nefnd á það sjón­ar­mið og vís­aði kæru á hendur honum frá og einnig gegn frétta­stofu RÚV í heild sinni enda ótækt að bendla alla starfs­menn hennar við málið.

Þá kom fram að Sunna Karen hafi ítrekað óskað eftir við­brögðum frá Ásthildi Lóu og sett sig í sam­band við aðstoð­ar­mann hennar og fleiri sem gætu haft milli­göngu um slíkt. Þá hafi Ást­hildur Lóa aldrei óskað eftir því að beðið yrði með frétta­flutn­ing­inn.

Loks sögðu kærðu að ekki sé unnt að gera þá kröfu að fjöl­miðla­menn geti sýnt fram á fulla sönnun hverrar og einnar stað­hæf­ingar sem sett sé fram, enda myndi slíkt skerða svig­rúm þeirra um of. Þess í stað nægi almennt að fréttir séu settar fram í góðri trú. Einnig kom fram að málið varð­aði ekki aðeins ríf­lega þriggja ára­tuga gamla atburði heldur hafi Ást­hildur Lóa sett sig í sam­band og mætt óboðin á heim­ili þeirrar konu sem hafði haft sam­band við for­sæt­is­ráðu­neytið vegna máls­ins.

Siða­nefnd komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að fram­setn­ing kærðu á almennum hegn­ing­ar­lögum hafi verið ósann­gjörn, enda gerði hún neyt­endum frétt­ar­innar, sér í lagi sjón­varps­á­horf­endum, auð­velt fyrir að Ást­hildur Lóa hefði gerst sek um kyn­ferð­is­brot.

Siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ekki hafi verið um alvar­legt eða mjög alvar­legt brot að ræða heldur ein­ungis ámæl­is­vert. Hafnaði hún öðrum kröfum Ást­hildar Lóu.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Mér þótti allt of mikið gert úr þessu máli. Það var reynt að ærumeiða Ásthildi Lóu sem mesgt og gera hana tortryggilega. Auðvitað getur öllum orðið á einhvern tímann en á að rifja slíkt upp einungis í þeimeina tilgangi að gera lítið úr þeim sem málið varðar?
    Það mætti miklu fremur beina athyglinni að þeim umsvifamiklu gróðamönnum og bröskurum sem áttu sinn þátt í bankahruninu mikla.
    Hvað varð af sparnaði okkar litlu hluthafanna sem og lífeyrissjóðanna sem töpuðu gríðarmiklu fé í hendurnar á græðgismönnunum? Þeir virðast stjórna landinu meira og minna.
    0
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Þetta upphlaup RUV var þeim til skammar að gera mál um hluti sem komu almenningi ekkert við. Margir hafa ekki þannig samvisku að umfjöllun hafi snert þá. Ef ráðherra hefði verið karl og ung stúlka hefði ekkert verið sagt
    1
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Og hvað kemur svo öðru fólki við hvað fólk svo gerir heima hjá sér ekki mer og hvað er þá fólk að hneykslast svo sem á meðan tilefnið er ekki þá brot á óskráðum reglum samfélagsins ha?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár