Ekkert í hendi um þinglok

Þing­fundur stóð yfir til klukkan hálf fimm í nótt og verður fram haldið í dag þar sem veiði­gjalda­frum­varpið er aftur á dag­skrá. Skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um mönnun og flæði sjúk­linga á Land­spít­al­anum var kynnt á nefnd­ar­fundi í morgun.

Ekkert í hendi um þinglok
Jens Garðar er meðal þeirra sem héldu ræður í gær, en hann hélt átta ræður um veiði­gjalda­frum­varpið frá mið­nætti og þar til þing­fundi var frestað. Mynd: Golli

Þing­fundi var ítrekað frestað í gær­kvöldi vegna funda þing­flokks­for­manna sem reyndu að ná sam­komu­lagi um þing­lok, en án árang­urs. Þing­fundur stóð yfir til klukkan hálf fimm í nótt og hefst að nýju klukkan tíu. 

Fyrst á dag­skrá voru minn­ing­ar­orð um Magnús Þór Haf­steins­son, fyrr­ver­andi þing­mann, sem lést þegar strand­veiði­bátur hans sökk út af Pat­reks­firði í fyrra­dag. Eftir það var haldið áfram með umræðu um veiði­gjalda­frum­varpið. 

Umræðan um það er þegar orðin sú lengsta á Alþingi, síðan þingið varð ein mál­stofa; aðeins umræður um Icesave og þriðja orku­pakk­ann hafa staðið lengur en umræðan um veiði­gjalda­frum­varpið. 

Milli klukkan níu og tíu var hins vegar fundur stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar þar sem kynnt var skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um mönnun og flæði sjúk­linga á Land­spít­al­anum, en hún verður birt opin­ber­lega síðar í dag. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • P
    Piotr skrifaði
    Byltingarkennt mál. Eftir þessa ákvörðun munum við loksins vita hvort Ísland tilheyrir sjávarútvegsfyrirtækjunum eða Ísland tilheyrir Íslendingum?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár