Fjölskyldurnar sem eiga fiskana í sjónum

Fjölskyldurnar sem eiga fiskana í sjónum

Innan við tíu fjöl­skyldur eiga og stýra stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum lands­ins. Þau fyr­ir­tæki sem skráð hafa verið á markað eru enn undir stjórn, og að uppi­stöðu í eigu, þeirra ein­stak­linga sem fengu gjafa­kvóta. Fjár­fest­ingar eig­enda útgerð­anna í öðrum og óskyldum greinum nema tugum millj­arða og teygja sig í majónes­fram­leiðslu, skyndi­bita­staði, trampólín­garða og inn­flutn­ing á bleyjum og sígar­ettum.

Rétt um helm­ingur allra afla­heim­ilda í íslenskum sjáv­ar­út­vegi er í eigu fimm­tíu ein­stak­linga. Margir eru tengdir fjöl­skyldu­böndum – eru hjón, systk­ini eða börn og for­eldrar. Meiri­hluti afla­heim­ilda er því í raun í eigu örfárra fjöl­skyldna. Hópurinn þynn­ist enn meira ef skoðað er hverjir fara með stjórn þess­ara fyr­ir­tækja. Þannig hafa sex fjöl­skyldur stjórn á upp undir helm­ingi allra afla­heim­ilda með eign­ar­haldi sínu á nokkrum af stærstu útgerð­ar­fé­lögum lands­ins. 

Harðar deilur standa nú á milli þess­ara ein­stak­linga og stjórn­valda vegna fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á því hvernig veiði­gjöld eru reiknuð. Þingmenn ræða frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um að miða við mark­aðs­verð sjáv­ar­af­urða þegar kemur að álagn­ingu gjalds­ins. Hingað til hefur verið miðað við hand­stýrt verð afurð­anna í við­skiptum útgerð­anna við sig sjálfar, þar sem flestar af stærstu útgerðum lands­ins selja eigin fisk­vinnslum afurðir. Breyt­ingin felur í sér nærri tvö­földun á inn­heimtum veiði­gjöldum, þar sem mark­aðsvirði afl­ans er mun verð­mæt­ara en við­skipti á milli þess­ara …

Kjósa
120
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    EG ER SKRÁÐ Í MIÐFLOKKINN LÍKA! OG ÞESSVEGNA Í STJÓRNAR ANDSTÖÐU Á ÞÍNGINU! EKKI ER SÚ GAMLA AÐ SKIFTA UM SKOÐUN Í HÁRRI ELLI RETT SÍ SVONA!
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hækkun á auðlindagjaldinu er eingöngu svo að majónesð fari ekki allt í rangar hendur.
    0
  • Asmundur Richardsson skrifaði
    Það er alveg með ólíkindum að eftirlit með eignahlutum einstaklinga sé ekki burðugra en það er og að reglur um eignatengsl séu ekki skýrari tengt lögum um fiskveiðar og takmarkaðan eignarhlut við 12%. Í hvaða tilgangi var það gert ef engin leið er opin til að fylgja því eftir?
    Greinin er fín samantekt og sýnir ágætlega samþjöppun valds og auðs innan fámenns hóps. Það getur ekki verið gott fyrir okkar litla samfélag.
    Löggjafinn hlýtur að sjá að sér og skilgreina hugtökin um eignatengsl og hanna þannig skjal sem hægt er að nota til eftirlits og íhlutunar. Fjármagna svo eftirlitsstofnanir til framtíðar þannig að þær geti og þurfi að sinna hlutverki sínu, atvinnugreininni og almenningi til hagsbóta t.d. með tilteknu hlutfalli af veiðgjaldinu.
    13
  • Viðar Pétursson skrifaði
    Þetta fólk virðist eiga Sjálfstæðisflokk,Miðflokk og Framsóknarflokk líka.
    11
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Over time in capitalism all business aims at a monopoly!
    6
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Vesalingarnir !
    5
  • AH
    Atli Hermannsson skrifaði
    Það er vert að vista þessa grein hjá sér .. Upp úr henni mætti einnig gera aðra tölfræði lista. Einn gæti t.d. heitið 10 vernduðustu vinnustaðir landsins.
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sjávarútvegsskýrslan

„Þýðir ekkert endalaust að  horfa bara niður á bryggju“
VettvangurSjávarútvegsskýrslan

„Þýðir ekk­ert enda­laust að horfa bara niður á bryggju“

Flateyri skagar út í Önund­ar­fjörð, umvafin háum fjöllum. Snjórinn í fjöll­unum hjó sár í sam­fé­lagið, á sama tíma og þorpið tókst á við ofveiði og brot­hættan sjáv­ar­út­veg sem hafði verið lífæð sam­fé­lags­ins í ára­tugi. Eftir fólks­fækkun, minnk­andi þjón­ustu og nið­ur­brot þurfi sam­fé­lagið að finna sér annan far­veg. Í dag er fram­tíðin eitt­hvað allt annað en fiskur. Og það er allt í lagi, segja íbúar, fullir bjart­sýni og með von um bjarta tíma framundan.
Arðgreiðslur í sjávarútvegi í fyrra: Guðmundur og Guðbjörg í algjörum sérflokki
ÚttektSjávarútvegsskýrslan

Arð­greiðslur í sjáv­ar­út­vegi í fyrra: Guð­mundur og Guðbjörg í algjörum sér­flokki

Guð­mundur Krist­jáns­son í Brimi og Guðbjörg Matth­í­as­dóttir í Ísfé­lag­inu í Vest­manna­eyum eru í sér­flokki þegar kemur að hlut­deild þeirra í arð­greiðslum úr sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum í fyrra. Sam­an­lagðar arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja náðu sögu­legu hámarki í fyrra þegar arð­ur­inn út úr grein­inni rúm­lega tvö­fald­að­ist og fór í 21,5 millj­arða króna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár