Dalai Lama nálgast nírætt: Tíu kaflaskil í lífi hans

Líf Dalai Lama hófst í sveita­þorpi í Tíbet, síðar hlaut hann heims­at­hygli en er nú í sjálf­skip­aðri útlegð. Í aðdrag­anda níræð­is­af­mæl­is­ins leggur hann áherslu á að trú­ar­leg arf­leifð hans verði ekki póli­tískum öflum að bráð.

Dalai Lama nálgast nírætt: Tíu kaflaskil í lífi hans
Lang­lífur Dalai Lama kemur til bæna­við­burðar sem var hald­inn í borg­inni Dhara­m­sala í júní­mán­uði en við­burð­ur­inn var til­eink­aður lang­lífi hans og skipu­lagður í aðdrag­anda níu­tíu ára afmælis hans. Mynd: AFP

Þann 6. júlí fagnar Dalai Lama 90 ára afmæli sínu. Í til­efni þess safn­ast Tíbetar víða um heim saman til að heiðra leið­toga sinn, sem hefur búið í útlegð í Indlandi í meira en sex ára­tugi eftir að hann flúði ofbeldi kín­verskra yfir­valda. Hann er í augum margra tákn and­legs styrks, friðar og þraut­seigju.

Samkvæmt tíbeskri trú er Dalai Lama end­ur­fæddur leið­togi, og sá sem nú gegnir emb­ætt­inu, Tenzin Gyatso, er sá fjórt­ándi í röð­inni en fyrsti Dalai Lama fædd­ist árið 1391.

Hér eru tíu lyk­il­at­vik úr lífi hans.

1935 – Fæðist í afskekktri sveit
Lhamo Thondup fædd­ist þann 6. júlí 1935 á fátæku bónda­býli í Taktser, litlu þorpi á fjall­sléttu í aust­ur­hluta Tíbeta. Landið er stað­sett á hásléttu í Himala­ja­fjöllum og er eitt hæst­liggj­andi byggða svæði heims.

Á þessum tíma er Tíbet að mestu sjálf­stætt ríki. Landið hafði áður verið undir stjórn kín­verska Qing-ætt­ar­veld­is­ins og síðar orðið fyrir til­raun til her­náms af hálfu Breta, en hafði um miðja 20. öld náð að við­halda sjálf­stæði sínu að veru­legu leyti.

1937 – Talið að hann sé end­ur­fæddur Dalai Lama
Þegar hann er aðeins tveggja ára koma búdda­munkar í leyni­legri sendi­för að heim­ili fjöl­skyld­unnar í leit að end­ur­fæddum Dalai Lama, sem hafði lát­ist fjórum árum fyrr.

Munk­arnir telja sig hafa fundið rétta barnið þegar hann sýnir sér­stakan áhuga á hlut sem til­heyrði fyrri Dalai Lama – kúlu­laga bæna­hring sem not­aður er til að telja bænir, svipað og rósakrans í kristni.

Árið 1940 er hann form­lega vígður sem trú­ar­legur leið­togi Tíbeta og tekur upp nafnið Tenzin Gyatso.

1950 – Kín­verski her­inn tekur yfir Tíbet
Kín­verski her­inn ræðst inn í Tíbet og brýtur á bak aftur varnir lands­ins sem voru illa skipu­lagðar og skorti bæði vopn og sam­hæf­ingu.

Kínversk stjórn­völd kalla inn­rás­ina „frið­sam­lega frelsun“ en fyrir tíbesku þjóð­ina markar þetta upp­haf her­náms og mik­illa þján­inga.

1954 – Fundur með Mao Zedong
Tenzin Gyatso heim­sækir Peking og hittir leið­toga kín­verska komm­ún­ista­flokks­ins, Mao Zedong. Þar verður honum ljóst hversu djúp gjá er á milli trú­ar­bragða og stjórn­valda í Kína. Mao á að hafa sagt honum að „trú­ar­brögð séu eitur“.

1959 – Flýr til Indlands
Eftir að kín­verskir her­menn herða tökin í Tíbet og bæla niður fjölda­mót­mæli í höf­uð­borg­inni Lhasa, neyð­ist Dalai Lama til að flýja yfir Himala­ja­fjöllin. Hann er veik­burða og getur ekki farið ríð­andi, heldur ferð­ast hann á baki dzomo, sem er kyn­blend­ingur kýr og jakuxa.

Indversk stjórn­völd veita honum skjól og leyfa honum að stofna útlaga­stjórn Tíbeta í bænum Dhara­m­sala í norð­ur­hluta lands­ins. Frá þeim tíma hefur hann búið í Indlandi. Kína lýsir honum sem „úlfi í munkakufli“.

1967 – Hefur bar­áttu utan land­steina
Dalai Lama ferð­ast til Japans og Taílands, og þar hefst alþjóð­leg við­leitni hans til að vekja athygli á mál­efnum Tíbeta. Hann hittir þjóð­ar­leið­toga, fræði­menn og lista­fólk og talar fyrir menn­ing­ar­legu sjálf­stæði og trú­frelsi Tíbeta.

Á sama tíma hefur menn­ing­ar­bylt­ingin í Kína skaðað Tíbet alvar­lega – klaustur eru eyðilögð, munkar fang­els­aðir og tíbesk menn­ing kúguð.

1988 – Leggur áherslu á frið­sam­legt sjálf­ræði
Hann dregur til baka kröfur um full­komið sjálf­stæði og fer þess í stað fram á raun­veru­legt sjálf­ræði Tíbeta innan Kína, með vernd fyrir tungu­mál, trú og menn­ingu.

Kínversk stjórn­völd hafna til­lög­unni og halda áfram að lýsa honum sem hættu­legum aðskiln­að­ar­sinna.

1989 – Hlaut frið­ar­verð­laun Nóbels
Dalai Lama hlýtur frið­ar­verð­laun Nóbels fyrir frið­sam bar­áttu sína sem bygg­ist á umburð­ar­lyndi og virð­ingu fyrir mann­rétt­indum.

Kínversk stjórn­völd for­dæma verð­launin og kalla þau „fárán­leg“. Sama ár höfðu kín­verskir her­menn brotið niður mót­mæli í Lhasa þar sem kraf­ist var auk­ins sjálf­stæðis.

2011 – Hætti afskiptum af stjórn­málum
Dalai Lama segir form­lega af sér sem yfir­maður útlaga­stjórnar Tíbeta og lætur lýð­ræð­is­lega kjör­inn leið­toga taka við stjórn­mála­legri ábyrgð. Með því dregur hann skýra línu á milli trú­ar­legrar for­ystu og ver­ald­legra mála.

Í dag – Einfalt og kyrr­látt líf
Tenzin Gyatso heldur áfram lífi ein­setumunks­ins í Dhara­m­sala. Hann vaknar fyrir sól­ar­upp­rás til bæna og hug­leiðslu og sinnir ein­földum dag­legum rútínum.

„Ég lít á sjálfan mig sem ein­faldan búdda­munk,“ skrifar hann á heima­síðu sinni. „Það er hinn sanni ég.“

Í ræðu sem hann flutti við bæna­við­burð í aðdrag­anda 90 ára afmælis síns á sunnu­dag, sagði hann að næsti Dalai Lama skyldi val­inn og við­ur­kenndur sam­kvæmt hefð­bundnum búddista­siðum, sumsé að hann myndi end­ur­holdg­ast. Hann lagði jafn­framt áherslu á að kín­versk stjórn­völd ættu ekki að koma nálægt þessu ferli.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár