Ósammála um hvernig bregðast eigi við mótmælum gegn innflytjendum

Álits­gjafa á vinstri væng stjórn­mál­anna greinir á um hvort nálg­ast eigi meinta ras­ista með skiln­ingi, háði, ofbeldi eða þögn­inni. „Ég hef nú svo sem reynt eitt og annað en veit ekk­ert hvort það virkar,“ segir háskóla­kenn­ari um sam­töl sín við fólk and­vígt inn­flytj­endum.

Ósammála um hvernig bregðast eigi við mótmælum gegn innflytjendum
Mótmælin á Aust­ur­velli Aktí­visti seg­ist ekki sann­færð um að allir við­staddir mót­mæli hóps­ins Ísland - þvert á flokka hafi verið ras­istar. Mynd: Viktor Freyr Arnarson

Á að hunsa fólk sem lætur í ljós kyn­þátta­for­dóma, hæð­ast að því, lemja það eða nálg­ast það með sam­tali? Um þetta hefur verið rætt und­an­farnar vikur meðal fólks á vinstri væng stjórn­mál­anna á Íslandi.

Umræð­urnar fóru á flug með þætt­inum Rauða borð­inu á Sam­stöð­inni föstu­dag­inn 6. júní. Þar brydd­aði þátt­ar­stjórn­and­inn María Lilja Þrast­ar­dóttir Kemp upp á sam­tali um mót­mæli hóps­ins Ísland – þvert á flokka á Aust­ur­velli helg­ina áður. Á mót­mæl­unum voru lagðar fram kröfur um að landa­mærum Íslands yrði lokað, mót­taka hæl­is­leit­enda sögð of dýr fyrir sam­fé­lagið og baulað þegar Brynjar Bark­ar­son tón­list­ar­maður nefndi trú­ar­brögðin íslam á nafn.

Skopmynd Hugleiks

Hug­leikur Dagsson skopteikn­ari birti í kjöl­farið af mót­mæl­unum skop­mynd sem vakti blendin við­brögð í athuga­semdum teikn­ar­ans. „Rasistar eru brand­ari,“ skrif­aði Hug­leikur við mynd­ina. „Hlæjum að þeim.“

Steinunn Gunn­laugs­dóttir, lista­kona og aktífisti, var meðal gesta sem ræddu um mót­mælin í Rauða …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásta Jensen skrifaði
    Ég er sammála því sem þessi hópur hefur fram að fær, þó að margt megi hefla. Ég hef einu sinni mætt þeim til stuðnings og mun gera aftur. Það er ekki útlendingahatur í gangi. Einfaldlega erum við að hugsa um velferð íslands verður í framtíðinni. Það eru þegar 40% erlendra ríkisborgara í fangelsum þó að þeir séu ekki nema 20% þjóðarinna, sem þýðir tvöfalt fleiri en íslenskir glæpamenn. Við vitum ekki hvenær hættulegur glæpamaður slæðist með og það er það sem við höfum áhyggjur af. Við þurfum bara að fræðast um aðrar vestrænar þjóðir og hvernig er komið fyrir hjá þeim. Einnig er ísland ekki búið að sýna fram á að innlima erlenda ríkisborgara inn í íslenska menningu. Islam er hætuleg trúarbrögð og þegar maður fræðist um þau þá sér maður að það er mikið um ofbeldi í kóraninum,já já þið getið sagt " biblíunni líka" mohammed fór og barðist fyrir guð sínum ef fólk vildi ekki trúa og þessi hugsanaháttur tíðkast enn í dag. Það eru til friðsamir múslimar auðvitað, en þeir eru þá ekki bókstafstrúar. Vinstra fólk segir að ísland sé ríkt land. Já ok það eru 80 ár síðan við vorum fátæk. Þetta nýja ríkidæmi hefur orðið af, stríðinu, duglegu fólki ( t.d föður mínum og móður) ekki erlendum hælisleitendum. Það hefur einn og einn dani, eða þjóðverji og Hollendingur slæðst hingað en þeir sem eru að koma í dag eru að koma frá 3ja heims ríkjum og líta á sem svo að þetta hafi alltaf verið svona. Leigubílaiðnaðurinn, hvað er að gerast þar? Allt í upplausn og svikahrappar útum allt,yfirtakandi klósett leigubílstjóra fyrir mosku. Það er ekki hægt að byggja gott friðsamt land upp af hálvitum. Það mun breytast. Þið vitið bara hvernig fór í hruninnu þegar nokkrir útrásarvíkingar fóru sér ofviða. Þetta ríkidæmi okkar er á veikum grunni. Ekki sökkva því í sjóinn bara vegna þess að, það að vilja vera góður er svo falleg hugsun. Gerum það með ábyrgð. Ísland er þekkt fyrir að vera friðsöm harðgerð þjóð. Vöndum valið á fólki sem blandast okkur.
    -2
  • ÓS
    Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
    Góð grein og þörf. Hvað sem okkur finnst um mótmælin er þörf á umræðu og skoðanaskipti ekki hunsun og fordæmingu,
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Það eru fyrst og fremst skipuleggjendur mótmalanna sem bera ábyrgð á því hvernig þau munu þróast. Hvaða ræðumenn fá að tala, hvers konar slagorð má hafa á skiltunum og hafa aðstoðarfólk sem grípur inn ef hatursorð dúkka upp.
    Í stuttu máli er það skylda þeirra að tryggja málefnalega umræðu. Það er það sem fólk vill, við eigum að geta rætt hvernig að bregðast við vandanum sem innflytjendur geta skapað vegna fjölda, framandi menningar og afstöðu til stöðu kynja, umgengnisvenja og fleira.
    Að standa og góla "útlendingar burt!" er ekki lausnin.
    Hins vegar er mín persónulega skoðun sú að þessi mótmæli eru að svo stöddu algjörlega óþarfi enda Alþingið að ræða útlendinga- og innflytjendamálin nú þegar. Er þar kominn farvegur sem kjörnu fulltrúar okkar geta vel séð um.
    4
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Er um mart samála þessum hóp þótt ég léti ekki sjá mig á meðal þeirra,mart að Islamistum sem hingað koma eru óhæf til innflutnings líkt og Hildur til útflutnings.
    -5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár