Leigufélagið Alma vill sækja þriggja milljarða fjármögnun

Alma leigu­fé­lag heldur áfram að bjóða fjár­festum upp á skulda­bréf og víxla til að fjár­magna félagið. Stjórn­ar­for­maður félags­ins, Gunnar Þór Gíslason, hefur sagt að snið­ganga líf­eyr­is­sjóða á félag­inu grafi undan hús­næð­is­mark­aðnum en Alma hefur reynt að fá þá til að fjár­festa í félag­inu. Formaður VR. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, er á önd­verðum meiði og segir líf­eyr­is­sjóð­ina eiga að snið­ganga Ölmu.

Leigufélagið Alma vill sækja þriggja milljarða fjármögnun
Umræða um Ölmu og líf­eyr­is­sjóð­ina Nokkur umræða hefur verið um rétt­mæti þess að líf­eyr­is­sjóðir fjár­festi í leigu­fé­lag­inu Ölmu, sem Gunnar Þór Gíslason, á. Alma hefur höfðað til líf­eyr­is­sjóð­anna við útgáfu skulda­bréfa og víxla.

Íbúða­fé­lagið Alma heldur útboð á víxlum í vik­unni til að fjár­magna félagið. Útboðið er upp á að allt 3 millj­arða króna og býður félagið hæstu mögu­legu vexti. Um er að ræða lokað útboð sem er aðeins fyrir hæfa fjár­festa og fag­fjár­festa. Greint er frá útboð­inu í til­kynn­ingu frá félag­inu. Útboðið bendir til að Alma eigi í nokkrum erf­ið­leikum með að fjár­magna sig þar sem vext­irnir sem boðið er upp á eru svo háir. Um er að ræða skamm­tíma­fjár­mögnun til þriggja mán­aða. 

Ljóst er að Alma er meðal ann­ars að reyna að höfða til líf­eyr­is­sjóða í útboð­inu en nokkur umræða hefur verið um fjár­fest­ingar þeirra í skulda­bréfum og víxlum Ölmu. Félagið hefur reynt að fá líf­eyr­is­sjóð­ina, meðal ann­ars Líf­eyr­is­sjóð Versl­un­ar­manna, til að fjár­festa í skulda­bréfum félags­ins en án árang­urs. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Festa er einn sjóður sem hefur fjár­fest í félag­inu, fyrir tæp­lega 3 millj­arða króna. 

„Það er bara gríð­ar­lega mik­il­vægt að eft­ir­launa­sjóð­irnir okkar verði ekki not­aðir til að fjár­festa í neinu sem teng­ist þess­ari sið­lausu fjöl­skyldu.“
Ragnar Þór Ing­ólfs­son,
for­maður VR

Gagnrýnir tal um sjóðirnir sniðgangi Ölmu

Alma leigu­fé­lag hefur verið umtalað á síð­ustu mán­uðum í kjöl­farið á fregnum af stífum leigu­hækk­unum hjá félag­inu í lok síð­asta árs, bæði hjá íslenskum leigj­endum sem og hjá flótta­mönnum frá Úkraínu. Síðan þá hefur verið tals­verð umræða um félagið og hafa for­svars­menn þess reynt að rétt­læta leigu­hækk­an­irnar. Í maí skrif­aði Gunnar Þór Gíslason, stjórn­ar­for­maður og stærsti hlut­hafi Ölmu, meðal ann­ars grein á Vísi sem hann kall­aði „Málsvörn leigu­sala“. 

Í grein­inni sagði Gunnar Þór meðal ann­ars að ekki væri gott að sumir verka­lýðs­for­ingjar hafi kallað eftir því að líf­eyr­is­sjóðir ættu að snið­ganga skulda­bréf Ölmu. „Sumir verka­lýðs­for­ingjar og aðrir sjálf­skip­aðir tals­menn leigj­enda sem hafa haft sig mest í frammi í umræð­unni um leigu­mark­að­inn hafa talað fyrir leigu­þaki eða leigu­bremsu. Það hafa einnig komið fram kröfur úr sömu átt að líf­eyr­is­sjóðir skuli selja öll skulda­bréf sem þeir eiga í Ölmu og alls ekki taka þátt í frek­ari fjár­mögnun félags­ins. Slík „úrræði“ munu aðeins draga úr fram­boði á leigu­hús­næði og auka vand­ann á hús­næð­is­mark­aði til lengri tíma litið.“

Mik­il­vægt að taka ekki þáttRagnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir mik­il­vægt að líf­eyr­is­sjóð­irnir taki ekki þátt í fjár­mögnun Ölmu leigu­fé­lags.

Lífeyrissjóðirnir haldi að sér höndum

Með þessum orðum var Gunnar Þór meðal ann­ars að vísa til þess sem Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hefur sagt um fjár­fest­ingar í Ölmu en hann hefur talað gegn því að Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna fjár­festi í félag­inu. VR er skip­un­ar­að­ili í stjórn sjóðs­ins. „Við sem skip­un­ar­að­ilar í stjórn sjóðs­ins höfum eft­ir­lits­hlut­verki að gegna og fram­ganga Ölmu brýtur gegn öllum þeim við­miðum sem stjórnin hefur sett sér. Við munum því klár­lega tala gegn því að sjóð­ur­inn fjár­festi í félögum eins og Ölmu þó við ráðum því auð­vitað ekki ein á end­anum.“

Aðspurður um þetta víxla­út­boð Ölmu segir Ragnar Þór að hann muni áfram beita sér gegn því, þrátt fyrir umræðu og rök­stuðn­ing Gunnars Þórs fyrir fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóða í félag­inu, að sjóð­irnir setji fé í Ölmu. „Það er bara gríð­ar­lega mik­il­vægt að eft­ir­launa­sjóð­irnir okkar verði ekki not­aðir til að fjár­festa í neinu sem teng­ist þess­ari sið­lausu fjöl­skyldu.“

Þriðja sjón­ar­miðið, kom fram í máli Baldurs Stef­áns­sonar hjá eigna­stýr­ingu Festu líf­eyr­is­sjóðs í við­tali. Hann fer bil þeirra beggja, Gunnars Þórs og Ragnars, þar sem hann seg­ist skilja gagn­rýni á Ölmu á sama tíma og hann segir að líf­eyr­is­sjóðir þurfi að fjár­magna leigu­fé­lögin í land­inu. „Þetta er vand­rat­aður vegur. Ef líf­eyr­is­sjóð­irnir myndu allir bara alls ekki fjár­magna leigu­fé­lögin þá er snúið að þau gætu verið til,“ sagði hann í lok síð­asta árs. 

Óljóst af hverju Alma þarf þessa fjármögnun

Út frá til­kynn­ing­unni um útboðið er óljóst til hvers Alma þarf hana, í hvað á að nota pen­ing­ana. Vext­irnir sem félagið greiðir fyrir fjár­mögn­un­ina eru hins vegar mjög háir, eins og segir í til­kynn­ing­unni: „Útboðið verður með hol­lenskri aðferð, þ.e. öll sam­þykkt til­boð bjóð­ast fjár­festum á hæstu sam­þykktu flötu vöxtum. Víxl­arnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafn­verðsein­ingum og verða skráðir á Nasdaq Iceland. Alma íbúða­fé­lag hf. áskilur sér rétt til þess að taka hvaða til­boði sem er eða hafna þeim öllum. Nið­ur­stöður útboðs­ins verða birtar opin­ber­lega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.“ 

Alma hefur áður á þessu ári farið í víxla­út­boð til skamms tíma, tveggja mán­aða, og er lík­legt að leigu­fé­lagið sé að rúlla skamm­tíma­víxlum til að standa við skuld­bind­ingar sínar í stað þess að fá lang­tíma­fjár­mögnun á félagið. Ekki er opin­bert hvaða aðilar það eru sem kaupa skulda­bréf og víxla félags­ins. 

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Eru Ölmumenn ekki neðal þeirra bænda sem börðust gegn tollfrjálsum innflutningi kjúklinga frá Úkraínu til að bæta afkomu sína?
    0
  • Hlynur Vilhjálmsson skrifaði
    Hagnaðardrifinn leigufélagarekstur gengur ekki upp fyrir hagsmuni samfélags. Það er of mikil græðgi á markaðnum til þess að hægt sé að leyfa fólki eins og þessum að fíflast með lífshagi venjulegs fólks.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leigufélagið Alma

Leigufélagið Alma stærir sig af samfélagslegri ábyrgð og segir ávinning hluthafa og almennings fara saman
GreiningLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma stærir sig af sam­fé­lags­legri ábyrgð og segir ávinn­ing hlut­hafa og almenn­ings fara saman

Í nýjum árs­reikn­ingi Leigu­fé­lags­ins Ölmu svarar félagið fyrir leigu­verðs­hækk­anir sínar. Félagið und­ir­strikar að það sé sam­fé­lags­lega ábyrgt og rök­styður að hækk­anir leigu­verðs séu stundum bæði eðli­legar og óhjá­kvæmi­legar. Félagið hefur verið harð­lega gagn­rýnt fyrir okur.
Saga Olgu: „Mér líður eins og svikara“
VettvangurLeigufélagið Alma

Saga Olgu: „Mér líður eins og svik­ara“

Úkra­ínskir flótta­menn í hót­el­í­búðum Ölmu við Lind­ar­götu þurfa að flytja út úr þeim í mars. Samn­ing­ur­inn sem gerður var við Ölmu er einn versti og óhag­stæð­asti leigu­samn­ingur sem íslenska ríkið hefur gert. Í hús­inu búa úkra­ínskir flótta­menn sem hafa lent sér­stak­lega illa í stríð­inu í Úkraínu. Meðal þeirra eru Olga, sem gat ekki verið við­stödd jarð­ar­för for­eldra sinna vegna flótt­ans og Dima, en fjöl­skylda hans hefur þrisvar sinnum þurft að flýja stríðs­á­tök Rússa.
Þúsund verðtryggðir leigusamningar skila Ölmu 230 milljónum á mánuði
GreiningLeigufélagið Alma

Þúsund verð­tryggðir leigu­samn­ingar skila Ölmu 230 millj­ónum á mán­uði

Leigu­fé­lagið Alma hefur um eitt þús­und heim­ili til útleigu til ein­stak­linga. Íbúð­irnar eru aðal­lega stað­settar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesjum; um 800 íbúðir. Í hverjum mán­uði tikka 220 millj­ónir inn í kass­ann vegna þess­ara íbúða, auk þess sem virði þeirra hefur vaxið veru­lega á síð­ustu árum. Nær allir samn­ingar Ölmu við ein­stak­linga eru verð­tryggðir.
„Það sem er mikilvægast er að við erum öll á lífi“
VettvangurLeigufélagið Alma

„Það sem er mik­il­væg­ast er að við erum öll á lífi“

Úkra­ínsku flótta­menn­irnir Volody­myr Cherniavskyi og kona hans, Snizhana Prozhoha, búa ásamt tveimur dætrum sínum í íbúð á efstu hæð­inni í blokk leigu­fé­lags­ins Ölmu í Urriða­holts­stræti í Garðabæ. Fjöl­skyldan flutti til Íslands í mars í fyrra eftir að rúss­neski her­inn réðst inn í Úkraínu. Þau flúðu frá Kiev land­leið­ina til borg­ar­innar Lviv í vest­ur­hluta lands­ins og komu sér þaðan yfir til Póllands og svo til Íslands. Ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar fékk að fylgj­ast með þeim í leik og starfi í nokkur skipti í byrjun jan­úar og kynn­ast lífi þeirra á Íslandi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár