Þúsund verðtryggðir leigusamningar skila Ölmu 230 milljónum á mánuði

Leigu­fé­lagið Alma hefur um eitt þús­und heim­ili til útleigu til ein­stak­linga. Íbúð­irnar eru aðal­lega stað­settar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesjum; um 800 íbúðir. Í hverjum mán­uði tikka 220 millj­ónir inn í kass­ann vegna þess­ara íbúða, auk þess sem virði þeirra hefur vaxið veru­lega á síð­ustu árum. Nær allir samn­ingar Ölmu við ein­stak­linga eru verð­tryggðir.

Þúsund verðtryggðir leigusamningar skila Ölmu 230 milljónum á mánuði

Í byrjun jan­ú­ar­mán­aðar greiddu leigj­endur Ölmu íbúða­fé­lags sam­tals um 224 millj­ónir króna í húsa­leigu af íbúðum sem fyr­ir­tækið á í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt, Ölmu lang­tíma­leigu. Það er í gegnum það félag sem Alma leigir ein­stak­lingum á leigu­mark­aði íbúð­ar­hús­næði. Samtals má búast við að leigu­tekjur Ölmu verði að minnsta kosti 2,7 millj­arðar króna í ár. 

Þetta sýnir grein­ing Heim­ild­ar­innar á þeim fast­eignum sem eru í eigu leigu­fé­lags­ins og þeim leigu­samn­ingum sem gerðir hafa verið um þær eignir. Samkvæmt þess­ari grein­ingu eru fast að því allir leigu­samn­ingar félags­ins verð­tryggðir og bundnir við vísi­tölu neyslu­verðs. Eftir því sem verð­bólgan eykst, þeim mun fleiri krónur þurfa leigj­endur Ölmu að greiða. 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leigufélagið Alma

Leigufélagið Alma vill sækja þriggja milljarða fjármögnun
FréttirLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma vill sækja þriggja millj­arða fjár­mögnun

Alma leigu­fé­lag heldur áfram að bjóða fjár­festum upp á skulda­bréf og víxla til að fjár­magna félagið. Stjórn­ar­for­maður félags­ins, Gunnar Þór Gíslason, hefur sagt að snið­ganga líf­eyr­is­sjóða á félag­inu grafi undan hús­næð­is­mark­aðnum en Alma hefur reynt að fá þá til að fjár­festa í félag­inu. Formaður VR. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, er á önd­verðum meiði og segir líf­eyr­is­sjóð­ina eiga að snið­ganga Ölmu.
Leigufélagið Alma stærir sig af samfélagslegri ábyrgð og segir ávinning hluthafa og almennings fara saman
GreiningLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma stærir sig af sam­fé­lags­legri ábyrgð og segir ávinn­ing hlut­hafa og almenn­ings fara saman

Í nýjum árs­reikn­ingi Leigu­fé­lags­ins Ölmu svarar félagið fyrir leigu­verðs­hækk­anir sínar. Félagið und­ir­strikar að það sé sam­fé­lags­lega ábyrgt og rök­styður að hækk­anir leigu­verðs séu stundum bæði eðli­legar og óhjá­kvæmi­legar. Félagið hefur verið harð­lega gagn­rýnt fyrir okur.
Saga Olgu: „Mér líður eins og svikara“
VettvangurLeigufélagið Alma

Saga Olgu: „Mér líður eins og svik­ara“

Úkra­ínskir flótta­menn í hót­el­í­búðum Ölmu við Lind­ar­götu þurfa að flytja út úr þeim í mars. Samn­ing­ur­inn sem gerður var við Ölmu er einn versti og óhag­stæð­asti leigu­samn­ingur sem íslenska ríkið hefur gert. Í hús­inu búa úkra­ínskir flótta­menn sem hafa lent sér­stak­lega illa í stríð­inu í Úkraínu. Meðal þeirra eru Olga, sem gat ekki verið við­stödd jarð­ar­för for­eldra sinna vegna flótt­ans og Dima, en fjöl­skylda hans hefur þrisvar sinnum þurft að flýja stríðs­á­tök Rússa.
„Það sem er mikilvægast er að við erum öll á lífi“
VettvangurLeigufélagið Alma

„Það sem er mik­il­væg­ast er að við erum öll á lífi“

Úkra­ínsku flótta­menn­irnir Volody­myr Cherniavskyi og kona hans, Snizhana Prozhoha, búa ásamt tveimur dætrum sínum í íbúð á efstu hæð­inni í blokk leigu­fé­lags­ins Ölmu í Urriða­holts­stræti í Garðabæ. Fjöl­skyldan flutti til Íslands í mars í fyrra eftir að rúss­neski her­inn réðst inn í Úkraínu. Þau flúðu frá Kiev land­leið­ina til borg­ar­innar Lviv í vest­ur­hluta lands­ins og komu sér þaðan yfir til Póllands og svo til Íslands. Ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar fékk að fylgj­ast með þeim í leik og starfi í nokkur skipti í byrjun jan­úar og kynn­ast lífi þeirra á Íslandi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár