Leigufélagið Alma stærir sig af samfélagslegri ábyrgð og segir ávinning hluthafa og almennings fara saman

Í nýjum árs­reikn­ingi Leigu­fé­lags­ins Ölmu svarar félagið fyrir leigu­verðs­hækk­anir sínar. Félagið und­ir­strikar að það sé sam­fé­lags­lega ábyrgt og rök­styður að hækk­anir leigu­verðs séu stundum bæði eðli­legar og óhjá­kvæmi­legar. Félagið hefur verið harð­lega gagn­rýnt fyrir okur.

Segjast ástunda samfélagslega ábyrgð
Segjast ástunda sam­fé­lags­lega ábyrgð Alma leigu­fé­lag segir í árs­reikn­ingi sínum ástunda sam­fé­lags­lega ábyrgð í rekstri sínum og seg­ist vilja vera í far­ar­broddi við að búa til heil­brigðan leigu­markað á íslandi. Eigendur Ölmu eru systk­inin í Mata, Guðný Edda, Gunnar Þór, Eggert Árni og Halldór Páll Gísla­börn. Bræð­urnir þrír sjást hér á mynd.

Leigu­fé­lagið Alma stærir sig af „sam­fé­lags­legri ábyrgð sinni og seg­ist vilja vera í far­ar­broddi við það að búa til heil­brigðan og fag­legan leigu­markað hér á landi. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins sem sam­þykktur var af stjórn félags­ins og birtur í gær. Þá telur félagið að ávinn­ingur sam­fé­lags­ins af starf­semi Ölmu fari saman við ávinn­ing hlut­hafa af félag­inu.

Um þetta segir í árs­reikn­ingnum: „Alma vill vera í far­ar­broddi við mótun á heil­brigðum og fag­legum leigu­mark­aði á Íslandi. Með því að hafa sam­fé­lags­lega ábyrgð að leið­ar­ljósi skap­ast ávinn­ingur fyrir sam­fé­lagið, við­skipta­vini og hlut­hafa félags­ins.“ 

Alma er annað stærsta leigu­fé­lag lands­ins, á eftir Heim­sta­den, og er með um 1100 íbúðir í útleigu og er stöðugt að bæta við sig nýjum eignum. 

Félagið hagn­að­ist um tæp­lega 5,4 millj­arða króna í fyrra, sam­kvæmt árs­reikn­ingnum, en þær hækk­anir má að hluta rekja til bók­færðrar hækk­unar á verð­mæti fast­eigna Ölmu. Eign­irnar hækk­uðu um 8,3 millj­arða króna á milli ára.

Rekst­ar­hagn­aður af starf­semi Ölmu, útleigu á íbúðum, var hins vegar einnig góður og nam tæp­lega 3,2 millj­örðum króna fyrir mats­breyt­ingu og afskriftir. Kjarna­rekstur Ölmu stendur því traustum fótum og þegar hækk­anir á verð­mæti fast­eigna félags­ins er lagður saman við, eins og Alma gerir á hverju ári, þá verður hagn­að­ur­inn ennþá meiri. 

Eigið fé Ölmu - eignir mínus skuldir - var í lok árs í fyrra rúm­lega 32 millj­arðar króna og hækk­aði um rúma 5 millj­arða á milli ára. 

„Til að koma til móts við þá gagn­rýni breytti félagið verk­lagi sínu.“
Úr árs­reikn­ingi Ölmu leigu­fé­lags

Hörð gagnrýni á Ölmu

Alma var í lok árs í fyrra harð­lega gagn­rýnd fyrir snarpar hækk­anir á leigu­verði við­skipta­vina félags­ins.

Mann­eskjan á bak við þá umfjöllun fjöl­miðla var Brynja Bjarna­dóttir, öryrki á sjö­tugs­aldri, sem var til­kynnt um að leigan hjá henni myndi hækka um 30 pró­sent um ára­mótin. Alma reyndi að rök­styðja hækk­un­ina á leigu Brynju með því að segja að hækk­unin hjá henni end­ur­spegl­aði ekki almennar hækk­anir. Gögn sem Stundin, sem í dag heitir Heim­ildin eftir sam­ein­ingu við Kjarnann, hafði undir höndum sýndu hins vegar fram á að fyr­ir­tækið hafði verið að hækka leig­una hjá mörgum við­skipta­vinum sínum um 20 til 30 pró­sent allt síð­asta ár. 

Í yfir­lýs­ingu vegna máls Brynju sagði Alma að félagið hefði þurft að hækka leig­una hjá fólki vegna efna­hags­á­stands­ins: „Í ljósi núver­andi efna­hags­á­stands er Alma nauð­beygð til að hækka leigu­verð á þeim samn­ingum sem eru að renna út.“

Eign­ar­haldið og hluti fjár­mögn­unar á fyr­ir­tækja­sam­stæðu eig­enda Ölmu, Mata-systk­in­anna svoköll­uðu, var svo rakið til lág­skatta­svæða en þau hafa lengi not­ast við Möltu í við­skiptum sínum. 

Í kjöl­farið var svo greint frá því að Alma ætl­aði sér að hækka leig­una hjá úkra­ínskum flótta­mönnum í fjöl­býl­is­húsi Garðabæ um allt að 114 pró­sent nú í apríl.   Alma keypti blokk­ina sem flótta­menn­irnir búa í síð­asta vor og var gerður eins árs leigu­samn­ingur við góða­gerða­sam­tök sem leigðu Úkra­ína­mönn­unum íbúð­irnar langt undir mark­aðsvirði. Alma ætlar hins vegar að hækka leig­una þannig að hún end­ur­spegli mark­aðsvverð.

Ekki liggur enn fyrir hvort flótta­menn­irnir geti búið áfram í hús­inu, segja tveir af þeim við Heim­ild­ina, en stjórn­völd í Garðabæ eru að vinna að því að tryggja þeim hús­næði. 

Byrjaði með BrynjuGagn­rýnin á Ölmu hófst með frá­sögn Brynju Bjarna­dóttur sem þurfti að flytja vegna þess að Alma hækk­aði leig­una hjá henni um 30 pró­sent um ára­mótin.

Alma rökstyður hækkanirnar

Í árs­reikn­ingi Ölmu rök­styður leigu­fé­lagið þá skoðun félags­ins að hækkun á leigu­verði geti verið bæði eðli­legt og óhjá­kvæmi­legt.  Í ófjár­hags­legri upp­lýs­inga­gjöf í árs­reikn­ingnum segir um þetta: „Sveiflur á fast­eigna­mark­aði, fjár­magns­mörk­uðum og í fram­boði og eft­ir­spurn eftir leigu­hús­næði geta leitt til sveiflna á leigu­verði, sér­stak­lega þegar til lengri tíma er litið. Það er því eðli­legt og stundum óhjá­kvæmi­legt að breyta leigu­verðum til mark­aðs­verðs við end­ur­nýjun leigu­samn­inga.“

Í greinum fjöl­miðla um Ölmu hefur hins vegar komið fram að leigu­hækk­anir um 20 til 30 pró­sent séu miklu hærri en almennar kostn­að­ar­hækk­anir Ölmu og því sé órök­rétt að vísa til þeirra þegar leigu­verðs­hækk­anir eru rétt­lættar. Hitt stóra leigu­fé­lagið á Íslandi hefur ekki verið með eins miklar hækk­anir á  leigu­samn­ingum sínum.

Ástæðan er sú að flestir leigu­samn­ingar félags­ins eru ótíma­bundnir og fylgja bara vísi­tölu neyslu­verðs, líkt og Gauti Reyn­is­son, fram­kvæmda­stjóri Heim­sta­den, hefur sagt: „Þá erum við ekki að lenda í því, eins og Alma, að vera að end­ur­nýja leigu­samn­inga sem eru að renna út. Þannig að und­an­farin tvö ár hafa lang­flestir af okkar leigj­endum fært sig yfir í ótíma­bundna samn­inga. Þannig að við erum yfir­leitt ekki að hækka leig­una. Þegar við leigjum út eign­ina þá gerum við það á mark­aðs­verði og leigu­samn­ing­ur­inn fylgir svo bara verð­lagi. Svo, ef allt gengur vel, þá heyrum við ekk­ert í þér og þú heyrir ekk­ert í okkur. “

Ekki sam­bæri­legar hækk­anirHeim­sta­den, sem Gauti Reyn­is­son stýrir, hefur ekki hækkað leig­una hjá fólki með sam­bæri­legum hætti og Alma þar sem leigu­samn­ingar félags­ins eru flestir ótíma­bundnir.

Alma breytti verklagi í kjölfar gagnrýni

Hvað sem líður rétt­læt­ingum Ölmu á hækkun leigu­verðs­ins þá segir félagið jafn­framt í árs­reikn­ingnum að það hafi komið til móts við þá gagn­rýni sem félagið fékk á sig:  „Undir lok árs, þegar félagið hafði til­kynnt um hækk­anir á leigu þeirra samn­inga sem komu til end­ur­nýj­unar í jan­úar og febr­úar 2023, kom upp gagn­rýni á leigu­verðs­hækk­anir félags­ins. Til að koma til móts við þá gagn­rýni breytti félagið verk­lagi sínu á þann hátt að tak­marka leigu­verðs­hækk­anir við end­ur­nýjun samn­inga við ákveðna krónu­tölu og að veita við­skipta­vinum aukið svig­rúm til að fram­lengja leigu­samn­inga sína til skamms tíma á meðan þeir finna nýtt hús­næði.“

Félagið segir líka í árs­reikn­ingnum að leigu­hækk­anir félags­ins framan af ári hafi verið bundnar við nýja og end­ur­nýj­aða samn­inga. Þetta er hins vegar annað en félagið sagði þegar það rétt­læti hækk­an­irnar hjá Brynju Bjarna­dóttir. Þá sagði félagið að hækk­unin hjá henni end­ur­spegl­aði ekki almennar hækk­anir á leigu hjá félag­inu. 

Um þetta segir í árs­reikn­ingnum:  „Leigu­verð á mark­aði hækk­uðu nokkuð á árinu, sér­stak­lega sam­an­borið við leigu­verð á þeim tíma þegar sam­fé­lags­legar tak­mark­anir voru í gildi á tímum COVID far­ald­urs­ins. Framan af ári end­ur­spegl­uð­ust mark­aðs­leigu­hækk­anir í leigu­verðs­hækk­unum á nýjum og end­ur­nýj­uðum leigu­samn­ingum félags­ins. Í kjöl­far inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu í febr­úar 2022 og áhrifa hennar á alþjóð­lega orku- og vöru­mark­aði kom upp umræða á Íslandi um og áhyggjur af hækk­andi verð­lagi.“

Þá segir enn frekar um þetta að félagið hafi tekið þá ákvörðun um mitt ár 2022 að hækka ekki leigu­samn­inga umfram vísi­tölu neyslu­verðs út árið.  „Til að koma til móts við við­skipta­vini félags­ins og sýna gott for­dæmi ákvað stjórn Ölmu í maí að end­ur­nýj­aðir leigu­samn­ingar yrðu ekki hækk­aðir umfram hækkun vísi­tölu neyslu­verðs út árið.“

Um leið og þessu tíma­bili var lokið, það er að segja í árs­byrjun, hækk­aði Alma hins vegar leig­una skarpt, meðal ann­ars hjá Brynju Bjarna­dóttur sem þurfti að finna sér nýtt hús­næði sökum þessa. 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leigufélagið Alma

FréttirLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma vill sækja þriggja millj­arða fjár­mögnun

Alma leigu­fé­lag heldur áfram að bjóða fjár­festum upp á skulda­bréf og víxla til að fjár­magna félagið. Stjórn­ar­for­maður félags­ins, Gunnar Þór Gíslason, hefur sagt að snið­ganga líf­eyr­is­sjóða á félag­inu grafi undan hús­næð­is­mark­aðnum en Alma hefur reynt að fá þá til að fjár­festa í félag­inu. Formaður VR. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, er á önd­verðum meiði og segir líf­eyr­is­sjóð­ina eiga að snið­ganga Ölmu.
VettvangurLeigufélagið Alma

Saga Olgu: „Mér líður eins og svik­ara“

Úkra­ínskir flótta­menn í hót­el­í­búðum Ölmu við Lind­ar­götu þurfa að flytja út úr þeim í mars. Samn­ing­ur­inn sem gerður var við Ölmu er einn versti og óhag­stæð­asti leigu­samn­ingur sem íslenska ríkið hefur gert. Í hús­inu búa úkra­ínskir flótta­menn sem hafa lent sér­stak­lega illa í stríð­inu í Úkraínu. Meðal þeirra eru Olga, sem gat ekki verið við­stödd jarð­ar­för for­eldra sinna vegna flótt­ans og Dima, en fjöl­skylda hans hefur þrisvar sinnum þurft að flýja stríðs­á­tök Rússa.

16 mín. lestur

GreiningLeigufélagið Alma

Þúsund verð­tryggðir leigu­samn­ingar skila Ölmu 230 millj­ónum á mán­uði

Leigu­fé­lagið Alma hefur um eitt þús­und heim­ili til útleigu til ein­stak­linga. Íbúð­irnar eru aðal­lega stað­settar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesjum; um 800 íbúðir. Í hverjum mán­uði tikka 220 millj­ónir inn í kass­ann vegna þess­ara íbúða, auk þess sem virði þeirra hefur vaxið veru­lega á síð­ustu árum. Nær allir samn­ingar Ölmu við ein­stak­linga eru verð­tryggðir.
VettvangurLeigufélagið Alma

„Það sem er mik­il­væg­ast er að við erum öll á lífi“

Úkra­ínsku flótta­menn­irnir Volody­myr Cherniavskyi og kona hans, Snizhana Prozhoha, búa ásamt tveimur dætrum sínum í íbúð á efstu hæð­inni í blokk leigu­fé­lags­ins Ölmu í Urriða­holts­stræti í Garðabæ. Fjöl­skyldan flutti til Íslands í mars í fyrra eftir að rúss­neski her­inn réðst inn í Úkraínu. Þau flúðu frá Kiev land­leið­ina til borg­ar­innar Lviv í vest­ur­hluta lands­ins og komu sér þaðan yfir til Póllands og svo til Íslands. Ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar fékk að fylgj­ast með þeim í leik og starfi í nokkur skipti í byrjun jan­úar og kynn­ast lífi þeirra á Íslandi.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár