Leigufélagið Alma fjármagnaði að stærstum hluta kaupin á sjálfu sér þegar Mata-systkinin eignuðust leigufélagið á síðasta ári. Alma, sem leigir út 1.100 íbúðir til einstaklinga og fjölskyldna, var áður í eigu Kviku banka.
Í ársreikningi Ölmu íbúðafélags kemur fram að félagið hafi í fyrra lánað út tæpa 7 milljarða króna. Sama upphæð kemur fram í yfirliti yfir ný lán í ársreikningi eignarhaldsfélags Mata-systkinanna, Langasjó ehf. Það félag heldur utan um eign systkinanna í Ölmu.
Lánið frá leigufélaginu gerði Langasjó kleift að gera upp meirihluta kaupverðsins, eða 7 milljarða af þeim 11 milljörðum króna sem Kvika fékk fyrir Ölmu.
Alma leigufélag fjármagnaði því stóran hluta af kaupunum í sjálfu sér, samkvæmt þessu.
Arfur frá GAMMA
Leigufélagið Alma hét áður Almenna leigufélagið og var stofnað af GAMMA á grunni mikilla og umdeildra íbúðakaupa félagsins á árunum eftir hrun. Félagið fylgdi með í yfirtöku Kviku banka á …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Verst af þessu öllu er að Ragnar Þór gaf eftir og samþykkti launalækkun með auka framlagi frá Ríkissjóði (okkur sjálfum) í leigubætur.