Fjöl­skyldan í Urriða­holti Hjónin, Volody­myr Cherniavskyi og kona hans, Snizhana Prozhoha, sjást hér með dætrum sínum tveimur, Marionnu og Carolinu. Þau búa á eftstu hæð­inni í blokk Ölmu í Urriða­holti þar sem ein­göngu búa flótta­menn frá Úkraínu. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það sem er mikilvægast er að við erum öll á lífi“

Úkra­ínsku flótta­menn­irnir Volody­myr Cherniavskyi og kona hans, Snizhana Prozhoha, búa ásamt tveimur dætrum sínum í íbúð á efstu hæð­inni í blokk leigu­fé­lags­ins Ölmu í Urriða­holts­stræti í Garðabæ. Fjöl­skyldan flutti til Íslands í mars í fyrra eftir að rúss­neski her­inn réðst inn í Úkraínu. Þau flúðu frá Kiev land­leið­ina til borg­ar­innar Lviv í vest­ur­hluta lands­ins og komu sér þaðan yfir til Póllands og svo til Íslands. Ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar fékk að fylgj­ast með þeim í leik og starfi í nokkur skipti í byrjun jan­úar og kynn­ast lífi þeirra á Íslandi.

Vinnur í Vatns­enda­skólaSnizhana Prozhoha vinnur í eld­hús­inu í Vatns­enda­skóla í Kópavogi og sést hér ásamt vinnu­fé­laga sínum, Alla. Eftir að hún byrj­aði að vinna þar hætt þau hjónin að fá bætur frá Garðabæ og lifa nú ein­göngu á tekjum hennar þar sem Volody­myr hefur ekki getað fundið sér vinnu.
Fara í rækt­ina tvisvar í vikuVolody­myr og Snizhana fara saman í rækt­ina tvisvar í viku. Þau æfa í World Class í Laugum og eru bæði með úkra­ínska einka­þjálf­ara. Þetta eru mik­il­vægar stundir fyrir þau, segja hjónin. „Ég fer í rækt­ina af því það hjálpar mér við að bæta heilsu mína og halda mér í góðu skapi.“ Hann æfir einnig borð­tennis hér á landi og hefur lagt stund á kúlu­varp.
„Ég er svo þakk­látur Guði …
Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leigufélagið Alma

FréttirLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma vill sækja þriggja millj­arða fjár­mögnun

Alma leigu­fé­lag heldur áfram að bjóða fjár­festum upp á skulda­bréf og víxla til að fjár­magna félagið. Stjórn­ar­for­maður félags­ins, Gunnar Þór Gíslason, hefur sagt að snið­ganga líf­eyr­is­sjóða á félag­inu grafi undan hús­næð­is­mark­aðnum en Alma hefur reynt að fá þá til að fjár­festa í félag­inu. Formaður VR. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, er á önd­verðum meiði og segir líf­eyr­is­sjóð­ina eiga að snið­ganga Ölmu.
GreiningLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma stærir sig af sam­fé­lags­legri ábyrgð og segir ávinn­ing hlut­hafa og almenn­ings fara saman

Í nýjum árs­reikn­ingi Leigu­fé­lags­ins Ölmu svarar félagið fyrir leigu­verðs­hækk­anir sínar. Félagið und­ir­strikar að það sé sam­fé­lags­lega ábyrgt og rök­styður að hækk­anir leigu­verðs séu stundum bæði eðli­legar og óhjá­kvæmi­legar. Félagið hefur verið harð­lega gagn­rýnt fyrir okur.
VettvangurLeigufélagið Alma

Saga Olgu: „Mér líður eins og svik­ara“

Úkra­ínskir flótta­menn í hót­el­í­búðum Ölmu við Lind­ar­götu þurfa að flytja út úr þeim í mars. Samn­ing­ur­inn sem gerður var við Ölmu er einn versti og óhag­stæð­asti leigu­samn­ingur sem íslenska ríkið hefur gert. Í hús­inu búa úkra­ínskir flótta­menn sem hafa lent sér­stak­lega illa í stríð­inu í Úkraínu. Meðal þeirra eru Olga, sem gat ekki verið við­stödd jarð­ar­för for­eldra sinna vegna flótt­ans og Dima, en fjöl­skylda hans hefur þrisvar sinnum þurft að flýja stríðs­á­tök Rússa.

16 mín. lestur

GreiningLeigufélagið Alma

Þúsund verð­tryggðir leigu­samn­ingar skila Ölmu 230 millj­ónum á mán­uði

Leigu­fé­lagið Alma hefur um eitt þús­und heim­ili til útleigu til ein­stak­linga. Íbúð­irnar eru aðal­lega stað­settar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesjum; um 800 íbúðir. Í hverjum mán­uði tikka 220 millj­ónir inn í kass­ann vegna þess­ara íbúða, auk þess sem virði þeirra hefur vaxið veru­lega á síð­ustu árum. Nær allir samn­ingar Ölmu við ein­stak­linga eru verð­tryggðir.

Mest lesið undanfarið ár