Ráðherrar meti sjálfir hvort þeir taki þátt í ráðstefnum með Samherjafólki

For­sæt­is­ráð­ur­neytið segir að þátt­taka ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands þurfi að stand­ast lög og siða­reglur ráð­herra. Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra tók nýlega þátt í mál­þingi með Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja, eftir að þrýsti­sam­tök sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja báðu hana um það.

Ráðherrar meti sjálfir hvort þeir taki þátt í ráðstefnum með Samherjafólki
Ráð­herrar meti sjálfir For­sæt­is­ráðu­neytið segir að ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar þurfi sjálfir að meta hvort til­hlýði­legt sé að þeir haldi ávörp á ráð­stefnum með einka­að­ilum. Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra hélt nýlega ávarp á sama fundi og Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem er með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í Namib­íu­mál­inu. Mynd: Stundin / Davíð Þór

For­sæt­is­ráðu­neytið segir að ráð­herrar þurfi sjálfir að meta hvort þátt­taka þeirra á fundum og sam­komum hjá eink­að­ilum sé til­hlýði­leg eða ekki.  Ráðu­neytið segir engar sér­stakar siða­reglur gilda um þetta. Þátttaka ráð­herr­ans þarf hins vegar að sam­ræm­ast siða­reglum ráð­herra en þar eru engin ákvæði um slíka þátt­töku, svo fram­ar­lega sem ekki er um boðs­ferð að ræða. „Það er almennt undir hverjum og einum ráð­herra komið að ákveða hvort hann eða hún vilji halda erindi á sam­komum á vegum einka­að­ila,“ segir í svar­inu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. 

Stundin spurði for­sæt­is­ráðu­neytið að því hvort þátt­taka Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra á sjáv­ar­út­vegs­degi SFS, SA og Deloitte hafi verið eðli­leg í ljósi þess að Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, var einnig þátt­tak­andi á ráð­stefn­unni.

Þor­steinn Már er með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sóknum emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara á Namib­íu­mál­inu svo­kall­aða sem snýst um mútu­greiðslur útgerð­ar­fé­lags­ins …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÖI
    Örn Ingólfsson skrifaði
    Það er alveg dagljóst að Yfir Doninn með sína vildarvini sem skaffa milljónir inn í flokkinn, þá er það skiljanlegt að Yfir Doninn túngulipri geti ekki svarað beinum spurningum í einhverjum spurningaþætti hver átti að vera hvar! Þá er ágætt sem því miður að allir fréttamiðlar á Íslandi hafa ekki spurt don Bjarna um undirskriftir á skjölum í sambandi við Sjóvá í þá daga með tilheyrandi tapi fyrir alla Pabbi bað mig um að skrifa undir og don Bjarni samþykkti það sem pabbi sagði! Og ekki heldur eitthvað olíufélag einhverjir peningar þar sem hurfu ogeða félagi nafnbreytt með annarri kennitölu? Svona er þetta bara með blaðamenn og sjónvarpsspyrla á Íslandi sem þora ekki neinu út af hættu að missa vinnuna!! Og þá er kominn tími til að berja á Don Bjarna að samþykkja Nýju Stjórnarskrána alla! En núna er farið að krauma undir Katrínu og Sigurði Vegatolli, því Íslendingar eru löngu búnir að borga öll gjöld til Vegagerðar og Ríkissjóður skuldar Vegagerðinni 1450 milljarða í dag síðan 1991! Og borgum ennþá!
    1
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Kleptocracy.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár