Bara slys? Stökkbreyting fundin sem skildi okkur frá Neanderdalsmönnum

Bara slys? Stökkbreyting fundin sem skildi okkur frá Neanderdalsmönnum
Ættartré nútíma­manns­ins frá homo heidel­berg­ensis (afkom­anda homo erectus) og til okkar. Chip Clark hjá Smith­son­ian Institute bjó til þessa skýr­inga­mynd.

Sú var tíð — og það eru ekki nema örfáar tug­þús­undir ára síðan — að margar mann­teg­undir vöpp­uðu um Jörðina. Flestar eða jafn­vel allar voru þær að lík­indum komnar af homo erectus, „frum­stæðri“ mann­teg­und sem tók að þró­ast fyrir um tveim millj­ónum ára en var end­an­lega útdauð fyrir rúm­lega 100.000 árum. Þá hafði erectus sem sé getið af sér ýmsar teg­undir: Neand­er­dals­menn, Denisova, eina eða tvær lítt þekktar teg­undir í Austur-Asíu, litla Flores-fólkið — og okkur.

Homo sapi­ens sapi­ens.

Og erum eina mann­teg­undin sem eftir er.

Við erum ansi skyld sumu af okkar burt­horfna frænd­fólki. Þótt leiðir hafi til dæmis skilið með okkur og Den­isovum og Neand­er­dals­mönnum fyrir 300-700.000 árum, þá gátum við eftir sem áður eign­ast afkom­endur með hinum teg­undum tveim. Lítill en mark­verður hluti af erfða­mengi okkar hefur verið rak­inn til Neand­er­dals­manna og Denisova.

Lengi vel var lík­lega lít­ill munur á hvort heldur hátt­erni eða útliti okkar og frænd­garðs­ins.

Homo sapi­ens sapi­ens og Neand­er­dals­menn og Den­isovar og hvaða fleiri teg­undir sem kann að vera um að ræða, þær lifðu allar svip­uðu lífi sem stein­ald­ar­menn, not­uðu svipuð verk­færi og bjuggu í svip­uðum sam­fé­lögum.

En svo gerð­ist eitt­hvað.

Eitthvað gerð­ist sem olli því að við lögð­umst í þyngri þanka en frænd­fólkið.

Okkar teg­und tók risa­stökk fram á við í þróun og tækni­menn­ingu. Hinar sátu eftir í sama far­inu og dóu loks út — eflaust útrýmt beint eða óbeint af nýríka uppi­vöðslu­sama frænd­fólk­inu sem voru við.

Hvað gerð­ist? Það höfum við hingað til átt erfitt með að skilja. Jú, við vorum komin með ógn­ar­stóran heila, svo margt var hægt að hugsa og upp­hugsa, en það var frænd­fólkið líka. Neand­er­dals­menn voru meira að segja með heldur stærri heila en við, ef eitt­hvað var.

Nú eru vís­inda­menn kannski komnir á sporið.

Á fimmtu­dag­inn var birt­ist í veftíma­riti Science grein þar sem vakin var athygli á stökk­breyt­ingu sem orðið hefði í heila homo sapi­ens sapi­ens ein­hvern tíma fyrir í hæsta lagi örfáum hund­rað þús­und árum.

(Hérna má sjá grein­ina í Science, og hérna má svo frétt The New York Times um málið.)

Svo virð­ist sem stökk­breyt­ingin hafi valdið miklum blóma í þeim hluta heil­ans sem við notum til flók­inna hugs­ana. Nánar til­tekið á geni sem kallað er því hljóm­fagra nafni TKTL1. Wieland Huttner tauga­líf­fræð­ingur við Max Planck-stofn­un­ina í Dresden í Þýska­landi gefur til kynna að stökk­breyt­ingin á TKTL1 hafi til dæmis valdið því að homo sapi­ens sapi­ens varð kleift að þróa tungu­mál, hugsa fram í tím­ann og gera miklu nákvæm­ari og útspek­úler­aðri áætl­anir en nokkur dýra­teg­und önnur — þar á meðal Neand­er­dals­menn og Den­isovar. 

Neand­er­dal­spar hefur hér verið end­ur­skapað

„Við fundum [umbreytt] gen sem er sann­ar­lega eitt þeirra sem gerir okkur að [viti bornum] mönnum,“ segir Huttner.

Öll sú flókna hugsun sem gerir okkur að mönnum snýst um tauga­frumur í enn­is­blöðum okkar og það var einmitt þar sem stökk­breyt­ingin fyrr­nefnda tók að valda þessum mikla blóma í tauga­frumu­rækt­un­inni. Ekki var um að ræða að þetta gen stækk­aði í okkur heil­ann — hann hafði þegar náð núver­andi stærð fyrir 800 þús­und árum — heldur virð­ast tauga­frum­urnar í enn­is­blöðum okkar fyrst og fremst hafa öðl­ast meiri leikni í sam­skiptum hver við aðra en raunin var hjá Neand­er­dals­mönnum og Den­isovum.

Vert er að geta þess að engin sér­stök ástæða þarf að hafa verið fyrir þess­ari stökk­breyt­ingu sem fleytti okkur af stað. Hún hefur senni­lega bara verið eitt­hvað til­fallandi — ja, eig­in­lega slys.

Afdrifa­ríkt slys það!

„Þetta eru mjög merki­legar nið­ur­stöður,“ sagði tauga­líf­fræð­ing­ur­inn Laurent Nguyen við Liège-háskóla í Belgíu þegar NYT spurði hann um þessa nýju rann­sóknir, sem hann kom vel að merkja ekk­ert nálægt sjálfur. „Það er stór­merki­legt að svo lítil breyt­ing hafi haft svo rót­tækar breyt­ingar í för með sér á fram­leiðslu tauga­frum­anna.“

Nguyen og fleiri leggja áherslu á að umbreyt­ingin á TKTL1 geti ekki á nokkurn veg talist sú eina sem hrinti okkur á „frama­braut­ina“ umfram Neand­er­dals­menn og Denisova. Nú er verið að rann­saka fleiri stökk­breyt­ingar í fleiri genum og tauga­frumum í enn­is­blöð­unum. Nguyen kveðst reikna með að þessar stökk­breyt­ingar í heila okkar hafi í sam­ein­ingu valdið því að tauga­frum­urnar fóru að hegða sér öðru­vísi en frænkur þeirra í heilum Denisova og Neand­er­dals­manna.

Um orsakir stökk­breyt­inga af þessu tagi verður fátt sagt að sinni. En hinu má leiða að líkum, að ef þessi stökk­breyt­ing hefði EKKI orðið, þá værum við kannski enn öll búsett í hellum í Mið­aust­ur­löndum og værum ómálga að fægja stein­öx­ina okkar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Þetta er algjör gull moli!
    "Okkar tegund tók risastökk fram á við í þróun og tæknimenningu. Hinar sátu eftir í sama farinu og dóu loks út — eflaust útrýmt beint eða óbeint af nýríka uppivöðslusama frændfólkinu sem voru við."
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár