Mótaðist í Öræfum

Þórunn Sig­urð­ar­dóttir, aðjúnkt við Háskól­ann á Bifröst, segir dvöl sína á Kvískerjum hafa mótað sig.

Mótaðist í Öræfum

„Ég hugsa að það sem hefur mótað mig einna mest sé dvölin á Kvískerjum í Öræfum þegar ég var stelpa,“ segir Þórunn Sig­urð­ar­dóttir. „Þótt ég færi ekki út í nátt­úru­fræði heldur ynni alla starfsæv­ina í listum þá mót­aði þessi tími mig umfram flest annað. Ég held að ólík við­fangs­efni geti und­ir­búið mann undir lífið með ýmsum hætti. Dvölin á Kvískerjum var í senn lær­dóms­rík og gef­andi og ég held að hún hafi bæði gert mig sjálf­stæða og með­vit­aða um umhverfi mitt. Ég held að smölun á hestum á Breiða­merk­ur­sandi hafi haft einna mest áhrif á mig þegar ég dvaldi á Kvískerjum. Ég tók þátt í smölun á sönd­unum árum saman, líka eftir að ég varð full­orðin. Ég væri til í að gera það aftur.

Ég gæti líka nefnt heim­sókn í Þjóð­leik­húsið að sjá Snæ­drottn­ing­una árið 1951 sem dæmi um atburð sem mót­aði starfs­val mitt bók­staf­lega. En eftir því sem árin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár