Ákæruvaldið telur stofnun ESB staðfesta að meint athæfi Jóns Baldvins sé refsivert

Kyn­ferð­is­leg áreitni er refsi­verð að spænskum lögum að mati stofn­un­ar­innar Eurojust. Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur kært frá­vísun í máli Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar til Lands­réttar, en hér­aðs­dómur taldi spænsku laga­grein­ina frá­brugðna þeirri íslensku.

Ákæruvaldið telur stofnun ESB staðfesta að meint athæfi Jóns Baldvins sé refsivert
Jón Baldvin Hanni­bals­son Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur kært frá­vísun í máli hans til Lands­réttar. Mynd: pressphotos.biz

Hér­aðs­sak­sókn­ari telur að meint kyn­ferð­is­leg áreitni Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, að heim­ili hans á Spáni sé refsi­verð sam­kvæmt spænskum lögum og að skýr­ingar stofn­un­ar­innar Eurojust stað­festi það. Krefst emb­ættið því þess að Lands­réttur vísi mál­inu til efn­is­legar með­ferðar fyrir hér­aðs­dómi.

Þetta kemur fram í kæru hér­aðs­sak­sókn­ara sem Stundin hefur undir höndum.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur vís­aði í síð­ustu viku frá máli emb­ætt­is­ins gegn Jóni Baldvini vegna meintra kyn­ferð­is­brota gegn Carmen Jóhanns­dóttur á Spáni í júní 2018. Taldi dóm­ur­inn ákæru­efnið ekki refsi­vert sam­kvæmt spænskum lögum. Með kæru sinni til Lands­réttar krefst hér­aðs­sak­sókn­ari þess að úrskurður hér­aðs­dóms verði felldur úr gildi og lagt fyrir hér­aðs­dóm að taka málið til efn­is­með­ferðar.

Jóni Baldvini er gefið að sök að hafa laug­ar­dag­inn 16. júní 2018 á heim­ili sínu í Salobreña á Spáni strokið utan­klæða rass Carmenar, sem var gestur á heim­ili hans. Greindi Stundin í upp­hafi árs 2019 frá fram­burði hennar og fleiri kvenna um kyn­ferð­is­lega áreitni. Krefur hún Jón Baldvin um eina milljón í miska­bætur, en hann krafð­ist frá­vís­unar og málsvarna­launa úr rík­is­sjóði sem hér­aðs­dómur veitti honum með úrskurð­inum, rúm­lega 917 þús­und krónur í málsvarn­ar­laun Vil­hjálms H. Vil­hjálms­sonar, lög­manns hans.

Hér­aðs­sak­sókn­ari mót­mælir því að það skorti heim­ild til að ákæra í mál­inu þar sem atvikin áttu sér stað erlendis. Samkvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum skal refsa íslenskum rík­is­borg­ara eftir íslenskum hegn­ing­ar­lögum, fyrir verknað fram­inn erlendis ef brotið er framið á stað sem refsi­vald ann­ars ríkis nær til að þjóða­rétti og var jafn­framt refsi­vert eftir lögum þess ríkis.

Verjandi sagði lagaákvæðið ekki eiga við

Hér­aðs­sak­sókn­ari hafði leitað aðstoðar evr­ópsku rétt­ar­að­stoð­ar­innar Eurojust um hvort athæfið teld­ist refsi­vert sam­kvæmt spænskum lögum, að því er segir í kærunni. Samn­ingur er í gildi milli Íslands og stofn­un­ar­innar um gagn­kvæma rétt­ar­að­stoð í saka­málum milli aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins. Stofn­unin hefur aðsetur í Haag í Hollandi og var sett á fót af Evr­ópu­sam­band­inu til að efla sam­starf ríkja í saka­málum sem teygja sig yfir landa­mæri.

Í munn­legum mál­flutn­ingi hafði verj­andi Jóns Baldvins talið þýð­ingu á spænsku laga­grein­inni gefa það í skyn að ákvæðið ætti ekki við um þann verknað sem Jón Baldvin er sak­aður um, þar sem í máls­grein­inni sem á eftir kemur er sér­stak­lega fjallað um skort á sam­þykki ef mann­eskja er án með­vit­undar eða með and­lega röskun og getur því ekki veitt sam­þykki. Slík hafi ekki verið raunin í atvik­inu að heim­ili Jóns Baldvins.

„ósæmi­lega snert­ingu, eða ann­ars konar utan­að­kom­andi eða efn­is­leg ákoma með kyn­ferð­is­legri merk­ingu“

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur eftir mál­flutn­ing­inn leitað frek­ari skýr­inga frá Eurojust um spænska laga­á­kvæðið og beit­ingu þess í spænskri rétt­ar­fram­kvæmd. Í svari Eurojust er vísað í end­ur­tekna dóma­fram­kvæmd þar sem kyn­ferð­is­leg áreitni hefur verið skil­greind og segir: ,,..að um hlut­læga lík­am­lega við­komu geti verið að ræða, ósæmi­lega snert­ingu, eða ann­ars konar utan­að­kom­andi eða efn­is­leg ákoma með kyn­ferð­is­legri merk­ingu.." Seinni máls­grein ákvæð­is­ins sé ein­ungis til skýr­ingar á því hvenær er um skort á sam­þykki að ræða og fyrri máls­grein­inni sé beitt óháð þeirri seinni ef atvik eru ekki með þeim hætti sem í henni segir.

Telur hér­aðs­sak­sókn­ari því að þau gögn sem liggi fyrir nú séu full­nægj­andi til að sýna fram á að meint athæfi Jóns Baldvins sé refsi­vert sam­kvæmt spænskum lögum. „Er það því mat hér­aðs­sak­sókn­ara að þær yfir­lýs­ingar sem fram koma í tölvu­póst­sam­skiptum við Eurojust séu gild yfir­lýs­ing frá þar til bærum yfir­völdum til að leggja til grund­vallar í máli þessu,“ segir í kærunni. „Með vísan til þess er talið að skil­yrði til að fella hátt­semi ákærða til refsi­á­kvæði íslensku hegn­ing­ar­laga og dæma í máli hans hér á landi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

MeToo sögur um Jón Baldvin

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögnina
Fréttir

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögn­ina

„Ég er stolt af því að hafa rofið þögn­ina með því að koma dag­bók mömmu á fram­færi sem og bréf­inu sem Jón Baldvin Hanni­bals­son sendi henni,“ segir Val­gerður Þor­steins­dóttir, dóttir Þóru Hreins­dóttur en Stundin fjall­aði um bréfið og dag­bók­ina á dög­unum. Pabbi Val­gerðar sem var í sam­búð með Þóru fyrir um fjöru­tíu árum, eig­in­kona hans og systir Val­gerðar segja að frið­helgi einka­lífs Þóru sé rofin og van­virt.
Þegar konur eru stimplaðar geðveikar
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Leiðari

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Þegar konur eru stimpl­aðar geð­veikar

„Þetta á ekk­ert erindi við almenn­ing, frekar en geð­veiki dóttur minnar,“ voru við­brögð Jóns Baldvins við birt­ingu bréfa sem hann skrif­aði til ungrar stúlku í fjöl­skyld­unni. Í til­raun til að varpa athygl­inni frá sér benti hann á dóttur sína, sem svar­aði fyrir sig og var fyrir vikið dregin fyrir dóm af föður sínum. „Ég gat ekki sætt mig við að vera útmáluð geð­veik.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár