Tveir Namibíumenn til viðbótar handteknir í rannsókn Samherjamálsins þar í landi

Tveir Namib­íu­menn til við­bótar eru nú í haldi lög­regl­unnar þar í landi vegna rann­sóknar Sam­herj­a­máls­ins. Þriðji mað­ur­inn, Marén de Klerk, fer ennþá huldu höfði í Suður-Afríku en hann er tal­inn hafa miðlað pen­ingum til Swapo-flokks­ins, ráð­andi stórn­mála­flokks­ins í land­inu.

Tveir Namibíumenn til viðbótar handteknir í rannsókn Samherjamálsins þar í landi
Leita að þriðja mann­inum Yfirvöld í Namibíu leita nú að þriðja mann­inum sem ákæru­valdið hefur reynt að hafa hendur í hári. Þetta er lög­mað­urin Maren de Klerk.

Tveir Namib­íu­menn til við­bótar hafa verið hand­teknir í tengslum við rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins þar í landi. Menn­irnir heita Phillipus Mwapopi og Otniel Shu­undi­fonya. Menn­irnir gáfu sig sjálf­vilj­ugir fram til spill­ing­ar­lög­regl­unnar í land­inu, ACC, eftir að greint hafði verið frá því í síð­ustu viku að lög­reglan leit­aði þeirra vegna rann­sóknar máls­ins. Frá þessu er greint í namibískum fjöl­miðlum í dag. 

Í byrjun síð­ustu viku var greint frá því að rík­is­sak­sókn­ar­inn í Namibíu, Martha Iwalwa, hefði lokið rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins, sem kall­ast Fishrot á ensku, sem snýst um mútu­greiðslur sem útgerð­ar­fé­lagið Samherji greiddi til hóps namibískra ráða­manna á árunum 2011 til 2019. Sjö menn hafa setið í gæslu­varð­haldi í Namibíu vegna máls­ins síð­ast­lið eitt ár eftir að greint var frá mál­inu í Kveik og Stund­inni með gögnum frá Wikileaks. 

Rétt­ar­höldin yfir sjömenn­ing­unum í Namibíu eiga að hefj­ast í apríl á næsta ári. 

Möguleikinn á framsali 

Samherji neitar sök í mál­inu og segir að félagið túlki greiðsl­urnar sem það innti af hendi ekki sem mútu­greiðslur: „Litið er svo á að greiðslur, í tengslum við rekst­ur­inn í Namibíu, séu lög­mætar frá sjón­ar­hóli félaga sem tengj­ast Samherja,“ segir Samherji á vef­síðu sinni.  Bent skal á að neitun Samherja er byggð á mati félags­ins, sam­kvæmt því sjálfu, og er ekki bein og fyr­ir­vara­laus neitun. 

„Litið er svo á að greiðslur, í tengslum við rekst­ur­inn í Namibíu, séu lög­mætar frá sjón­ar­hóli félaga sem tengj­ast Samherja“

Ekki hefur hins vegar verið greint frá því að ákæru­valdið í Namibíu hafi yfir­heyrt stjórn­endur Samherja en sex núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn félags­ins eru með rétt­ar­stöðu sak­born­inga á Íslandi. Eins og greint var frá í haust hafa þeir verið yfir­heyrðir einu sinni af emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara. 

Greint hefur verið frá því í íslenskum fjöl­miðlum að namibísk yfir­völd kunni að vilja fá stjórn­endur hjá Samherja fram­selda til Namibíu vegna rann­sókn­ar­innar en á það hefur verið bent að eng­inn samn­ingur um fram­sal manna er í gildi á milli Íslands og Namibíu.

Á þetta hefur lög­maður eins af sak­born­ing­unum, Tamson Hatuikulipi, bent og sagt að mik­il­vægt sé í mál­inu að namibísk yfir­völd nái tali af Sam­herj­a­mönnum vegna rann­sókn­ar­innar: „Hitt vanda­málið er að það er eng­inn samn­ingur í gildi um fram­sal á milli Íslands og Namibíu. Þannig að ég átta mig ekki á því hvernig fram­salið á að fara fram. Þannig að við munum bara áfram hafa þessar tafir á mál­inu á meðan sak­born­ing­arnir dúsa í gæslu­varð­haldi og grafið er undan rétt­læt­inu,“ er haft eftir lög­manni Tamson Hatuikuliði, Richard Metcalfe, í namibískum miðlum. 

Miðað við það sem Metcalfe segir er það hans túlkun að ákæru­valdið í Namibíu þurfi að hafa rætt við eða yfir­heyrt stjórn­endur Samherja til að geta lokið rann­sókn­inni á mál­inu þar í landi. 

Rætt um mögulegt framsal þriðja mannsins

Í namibískum fjöl­miðlum er rætt um mögu­legt fram­sal þriðja manns­ins sem greint var frá í síð­ustu viku að ákæru­valdið í Namibíu vildi hand­taka. Þessi maður heitir Marén de Klerk og er lög­maður sem tók þátt í við­skiptum í Sam­herj­a­mál­inu í land­inu. Maðurinn er eig­andi lög­manns­stof­unnar De Klerk, Horn & Coetzee Incorporateds sem kom að hluta þeirra við­skipta sem til rann­sóknar eru. 

„Mér hefur verið hótað líf­láti ítrekað“

Marén de Klerk yfir­gaf Namibíu í byrjun árs­ins og hefur ekki komið aftur þangað. Hann heldur því fram að hann hafi fengið líf­láts­hót­anir frá valda­miklum aðilum í namibísku sam­fé­lagi og hefur ekki gefið sig fram við rétt­vís­ina líkt og þeir Mwapopi og Shu­undi­fonya hafa nú gert. De Klerk er tal­inn hafa innt af hendi greiðslur til Swapo-flokks­ins sem ekki stand­ast skoðun. Swapo-flokk­ur­inn er alls­ráð­andi í namibískum stjórn­málum. 

Í eið­svar­inni yfir­lýs­ingu sem liggur fyrir dómi segir de Klerk. „Mér hefur verið hótað líf­láti ítrekað og ég hef ástæðu til að ætla að valda­miklir og vel tengdir aðilar, hvers ólög­legu gjörðir kunna að verða opin­ber­aðar með vitn­is­burði mínum, hafi skipu­lagt að minnsta kosti eitt til­ræði gegn lífi mínu,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. 

De Klerk fer nú huldu höfði í Suður-Afríku sam­kvæmt namibískum miðlum.  Dóms­mála­ráð­herra Namibíu hefur sagt opin­ber­lega að unnið sé að því að fá de Klerk fram­seldan til Namibíu. 

Talinn hafa greitt styrki til SwapoDe Klerk er Tallinn hafa greitt styrki til Swapo-flokks­ins, sem er alls­ráð­andi í namibískum stjórn­málum. Heike Geingob, for­seti lands­ins, kemur úr Swapo sem og sak­born­ing­arnir í Sam­herj­a­mál­inu.

Óljóst hvað mennirnir tveir gerðu

Samkvæmt namibískum fjöl­miðlum er óljóst hvernig menn­irnir tveir sem nú hafa verið hand­teknir tengj­ast Sam­herj­a­mál­inu og rann­sókn þess. 

Annar mann­anna, Mwapopi, er lög­reglu­maður og segir í namibískum miðlum að hann sé sagður tengj­ast einum sak­born­ingi í mál­inu. Ekki kemur fram hvað Otniel Shu­undi­fonya á að hafa gert í mál­inu. 

Eins og er þá er það ein­ungis de Klerk sem ekki hefur verið hand­tek­inn af þeim tíu sak­born­ingum frá Namibíu sem eru til rann­sóknar í Sam­herj­a­mál­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár