Beðið um aðstoð við mögulegt framsal tíu Samherjamanna í bréfi lögreglunnar í Namibíu

Lög­reglan í Namibíu bað Interpol þar í landi um aðstoð um að finna sama­stað 10 núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­manna Samherja. Sterkur grunur um að starfs­menn Samherj hafi tekið þátt í lög­brotum segir í bréfi lög­regl­unnar í Namibíu. Bréfið sýnir að lög­reglan í Namibíu hefur ráð­gert að láta stjórn­endur Samherja svara til mögu­legra saka þar í landi.

Beðið um aðstoð við mögulegt framsal tíu Samherjamanna í bréfi lögreglunnar í Namibíu
Sterk rök Rann­sak­endur í Namibíu telja sterkan grun vera fyrir því að Þor­steinn Már Bald­vins­son og fleiri Sam­herj­a­menn geti verið á ákærðir þar í landi. Þor­steinn Már sést hér í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn með hluta þeirra sem grun­aðir eru um að hafa þegið mútur frá Samherja.

Rætt er um mögu­legt fram­sal tíu núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­manna útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja í bréfi sem lög­reglan í Namibíu sendi til Interpol þar í landi í maí. Bréfið er skrifað af einum af rann­sak­endum Sam­herj­a­máls­ins þar í landi, Nelius Becker. Til­gangur bréfs­ins er að óska eftir aðstoð Interpol þar í landi til að fá starfs­menn Samherja fram­selda til lands­ins ef það fer svo að þeir verða ákærðir fyrir mögu­leg brot eins og spill­ingu, fjár­svik, pen­inga­þvætti og mútur.

Bréfið er hluti rann­sókn­ar­gagn­anna í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu sem Stundin hefur undir höndum. Gögnin eru vinnu­gögn ákæru­valds­ins í land­inu í Sam­herj­a­mál­inu sem snýst um rann­sókn á mútu­greiðslum félaga Samherja til ráða­manna í Namibíu á árunum 2012 til 2019 sem Kveikur, Stundin og Al Jazeera greindu frá í nóv­em­ber í fyrra í sam­vinnu við Wikileaks. 

Tekið skal fram að bréfið snýst bara um hug­myndir um mögu­legt fram­sal en ekk­ert hefur verið ákveðið í þeim efnum varð­andi umrætt Sam­herj­a­fólk. Enginn starfs­maður Samherja hefur verið ákærður fyrir lög­brot í Sam­herj­a­mál­inu, hvorki í Namibíu né á Íslandi, og óvíst er hvort svo verði á þess­ari stundu. Bréfið sýnir hins vegar að ákæru­valdið í Namibíu hefur velt þeim mögu­leika fyrir sér og tekið skref í átt­ina að því að und­ir­búa mögu­legar aðgerðir gegn stjórn­endum Samherja á Íslandi. 

„Samkvæmt rann­sókn­inni er sterkur grunur um að umræddir ein­stak­lingar hafi haft aðild að glæp­unum sem lýst er.“

Í bréf­inu, sem ber yfir­skrift­ina „Athugun á sama­stað stjórn­enda Samherja, sem eru íslenskir rík­is­borg­arar [...],“ stendur meðal ann­ars að „sterkur“ grunur sé um að umræddir ein­stak­lingar hafi framið lög­brotin sem nefnd eru í bréf­inu. „Samkvæmt rann­sókn­inni er sterkur grunur um að umræddir ein­stak­lingar hafi haft aðild að glæp­unum sem lýst er.“

Beðið er um aðstoð við að hafa upp á þessum ein­stak­lingum með það fyrir augum að mögu­lega fara fram á fram­sal þeirra ef svo ber undir. 

Beðið um hjálpLög­reglan í Namibíu bað Interpol þar í landi um aðstoð við að finna Sam­herj­a­fólk.

Fimm með réttarstöðu sakborninga

Þeir tíu ein­stak­lingar sem nefndir eru í bréf­inu eru þau Þor­steinn Már Bald­vins­son, Aðal­steinn Helgason, Ingvar Júl­í­us­son, Egill Helgi Árnason, Arna Bryndís Baldvins McClure, Baldvin Þor­steins­son, Jón Óttar Ólafsson, Ingólfur Pét­urs­son og tveir lágt settir starfs­menn til við­bótar sem ekki hafa oft verið nefndir á nafn í tengslum við Sam­herj­a­málið í Namibíu. Nöfn þeirra tveggja verða látin liggja á milli hluta að sinni. 

Fimm af þeim ein­stak­lingum sem nefndir eru í bréf­inu eru einnig með rétt­ar­stöðu sak­born­ings á Íslandi. Þetta eru þau Þor­steinn Már, Arna Bryndís, Aðal­steinn, Egill Helgi og Ingvar. Á Íslandi eru sex ein­stak­lingar með rétt­ar­stöðu sak­born­inga en auk fimm­menn­ing­anna er það upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son. Ákæru­valdið í Namibíu fer ekki fram á mögu­lega aðstoð við að finna Jóhannes þar sem Sam­herj­a­málið hófst með því að hann setti sig í sam­band við yfir­völd í Namibíu um haustið 2018. 

Í lok bréfs­ins segir: „Beiðni okkar lýtur að því að skrif­stofa ykkar, í gegnum þær sam­skipta­leiðir sem hún hefur að ráða, finni út úr því hvar við­kom­andi ein­stak­linga er að finna (talið er að flestir þeirra séu á Íslandi) og hjálpi okkur við að hafa uppi á þeim ef svo fer að gefnar verði út hand­töku­skip­anir að fram­sals­beiðnir.“

Samherji neitaði fréttinni

Frétta­stofa RÚV sagði frá til­vist þessa bréfs í byrjun mán­að­ar­ins en vitn­aði ekki í það. RÚV vitn­aði í eið­svarna yfir­lýs­ingu Karl Patrick Cloete um bréfið. 

Í kjöl­far þess­arar fréttar neit­aði Samherji því að lög­reglu­yf­ir­völd í Namibíu hefðu reynt að hafa upp á starfs­mönnum Samherja. „Namibísk yfir­völd hafa engar til­raunir gert til að hafa afskipti af núver­andi eða fyrr­ver­andi starfs­mönnum félaga tengdum Samherja. […] Frétta­flutn­ingur um að namibísk stjórn­völd vilji ná tali af nokkrum núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­mönnum Samherja er því mjög vill­andi.“ 

Enn frekar sagði Samherji að hug­leið­ingar ein­stakra lög­reglu­manna um mögu­legt fram­sal starfs­fólks Samherja skiptu ekki máli. „Hug­leið­ingar ein­stakra lög­reglu­manna í Namibíu ráða engu um þær heim­ildir sem gilda almennt um fram­sal milli ríkja í tengslum við rekstur saka­mála. Namibísk yfir­völd hafa engar laga­heim­ildir til að krefj­ast fram­sals yfir íslenskum rík­is­borg­urum þar sem eng­inn samn­ingur er til staðar milli ríkj­anna um fram­salið.“ 

Bréfið sýnir hins vegar að namibísk yfir­völd hafa víst skipu­lagt óform­lega leit að umræddum ein­stak­lingum, hvað svo sem síðar verður, og er því ekki bara um að ræða hug­leið­ingar ein­hvers lög­reglu­manns eins og Samherji sagði. Frétta­flutn­ingur um að ákæru­valdið í Namibíu hafi áhuga á því að ræða við umrætt starfs­fólk Samherja, og eftir atvikum að reyna að fá það fram­selt til Namibíu, er því hvorki rangur né vill­andi. 

Leið­rétt­ing:  Í fyrstu útgáfu frétt­ar­innar kom fram að Jón Óttar Ólafsson væri með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í Íslandi. Þetta er rangt. Í stað Jóns Óttars átti nafn Ingvars Júl­í­us­sonar að koma fyrir í upp­taln­ing­unni á þeim sem eru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings á Íslandi. Þetta hefur nú verið leið­rétt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár