Sakborningarnir í Namibíu ákærðir fyrir að þiggja mútur frá Samherja

Rík­is­sak­sókn­ar­inn í Namibíu hefur ákveðið að ákæra sak­born­ing­ana í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu og verða þeir áfram í gæslu­varð­haldi þar til þann 22. apríl þegar rétt­ar­höld yfir þeim eiga að hefj­ast.

Sakborningarnir í Namibíu ákærðir fyrir að þiggja mútur frá Samherja
Komu fyrir dóm­ara í dag Sak­born­ing­arnir í Sam­herj­a­mál­inu, meðal ann­ars Sacky Shang­alda og Bernhard Esau, í Namibíu komu fyrir dóm­ara þar í landi í dag. Þeir verða áfram í gæslu­varð­haldi og verða ákærðir í mál­inu.

Rík­is­sak­sókn­ar­inn í Namibíu, Oliva Martha Iwalva, hefur ákveðið að ákæra sak­born­ing­ana í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu og verða þeir áfram í gæslu­varð­haldi þar til þann 22. apríl þegar rétt­ar­höld yfir þeim eiga að hefj­ast. Sak­born­ing­arnir, meðal ann­ars fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs- og dóms­mála­ráð­herrar Namibíu, eru ákærðir fyrir að hafa þegið mútur frá íslenska útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja árunum 2012 til 2019 auk ann­arra brota. Frá þessu er greint í namibískum miðlum í dag eins og The Namibian Sun og Infor­m­ante. Von er á frek­ari fréttum af mál­inu. 

Greint var frá mútu­greiðslum Samherja í Namibíu í sjón­varps­þætt­inum Kveik, Stund­inni, hjá Al-Jazeera og á upp­ljóstr­un­ar­síð­unni Wikileaks í nóv­em­ber í fyrra. Rannsókn á mál­inu hafði þá staðið yfir í Namibíu í um eitt ár eftir að upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár