Nýtt efni

Hörð hægristefna klýfur stærsta flokk Póllands
Flokkurinn Lög og réttlæti, sem var við völd í Pólland í átta ár, er í miðjum klíðum að klofna eftir að formaður flokksin krafðist hollustu og reyndi að laða til sín kjósendur með harðari hægristefnu.

Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
Rabbíni gyðinga á Íslandi virðist hafa safnað 436 milljónum króna frá nafnlausum styrkjendum til að kaupa og reka menningarmiðstöð gyðinga við Hverfisgötu í Reykjavík. Fjárfestir sem er á svörtum lista í Bretlandi vegna tengsla við Rússland klippti á borðann. Hann hefur styrkt uppkaup á heimilum Palestínumanna til að stækka byggðir gyðinga.

Vaxtamunur eykst um hálft prósentustig
Landsbankinn jók hagnað sinn um næstum 4 milljarða á milli ára. „Uppgjör bankans á fyrri hluta þessa árs er sterkt en undir áhrifum hárrar verðbólgu,“ segir bankastjóri en vaxtamunur var 3,4% á tímabilinu.

Sádar fá kjarnorku ef þeir viðurkenna Ísrael
Donald Trump Bandaríkjaforseti semur við Sádí-Arabíu um að fá kjarnorku gegn því að viðurkennda Ísraelsríki.

Beint flug til Kína hefst
Kínverska sendiráðið hefur tilkynnt um fyrsta beina flugið á milli Kína og Íslands.

„Þar koma samningsmarkmiðin fram svart á hvítu“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir samningsmarkmið Íslands í mögulegum aðildarviðræðum við Evrópusambandið liggja fyrir.

Arðgreiðsla skilar félagi forseta 50 milljónum
Eignarhaldsfélag Höllu Tómasdóttur forseta og Jóns Björnssonar, forstjóra Veritas, fær 50 milljónir í arð frá fjárfestingafélaginu Var sem þau eiga fjórðungshlut í. Halla segist ekki koma að rekstri félagsins.

Biskup Íslands meðal ræðumanna í Druslugöngunni
Druslugangan verður á laugardaginn og gengið verður af stað frá Hallgrímskirkju klukkan 14. Skipuleggjandi segir nýafstaðnar borgarstjórnarkosningar sýna að gerendur kynferðisofbeldis fái enn valdamiklar og sýnilegar stöður í þjóðfélaginu.


Auðunn Arnórsson
Dugar EES?
Hversu vænlegur er sá valkostur fyrir Ísland að treysta á að óbreytt ástand haldi?

Breyta lögum svo Landsréttur megi vera í Kópavogi
Staðsetning Landsréttar verður ólögleg frá byrjun næsta árs nema lögum verði breytt.

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
Tími gervigreindar runninn upp í bandarískum stjórnmálum. Forsetinn birtir myndir af sér sem hetjum og andstæðingum sem aulum, sem tala beint inn í orðræðu hans og styðja við hugmyndir sem stuðningsmenn hans hafa þegar samþykkt. Sumar myndirnar eru svo raunverulegar að þær setjast djúpt í undirmeðvitundina.

Lífegg Látrabjargs
Á vorin fá landeigendur nokkurra daga heimild til þess að síga niður stærsta sjávarbjarg landsins, Látrabjarg, sem rís 441 metra úr sjó. Í friðlýstum dröngunum safna þeir eggjum til einkanota. Í friðlýsingu er kveðið á um að halda verði við þekkingu og hefðum, en erfitt reynist að fá yngri kynslóðina til að taka við. „Við erum þeir síðustu sem gera þetta.“

Íhugar að láta handtaka Netanyahu
Hann á heima í Haag, segir Zoran Mamdami, borgarstjóri New York, um forsætisráðherra Ísraels sem stefnir á fund hjá Sameinuðu þjóðunum.













