Svona þvættuðu Namibíumennirnir peningana frá Samherja

Myndin er að skýr­ast í mútu­máli Samherja í Namibíu. Sacky Shangala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, lét und­ir­mann sinn í ráðu­neyt­inu þvætta pen­inga sem hann og við­skipta­fé­lagar hans fengu frá Samherja. Í grein­ar­gerð rík­is­sak­sókn­ar­ans í Namibíu er upp­taln­ing á þeim félögum og aðferðum sem Namib­íu­menn­irnir beittu til að hylja slóð mútu­greiðsln­anna frá Samherja.

Svona þvættuðu Namibíumennirnir peningana frá Samherja
Þvættuðu pen­inga með neti félaga Grein­ar­gerð rík­is­sak­sókn­ar­ans sýnir hvernig sak­born­ing­arnir í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu þvætt­uðu pen­ing­ana frá útgerð­inni með neti félaga í sinni eigu. Sak­born­ing­arnir Pius Mwatelulo, Tamson Hatuikulipi, Ricardo Gustavo, James Hatuikulipi, Sacky Shang­hala og Bernhard Esau sjást hér í dóm­sal.

Fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Namibíu, Sacky Shangala, lét und­ir­mann sinn í ráðu­neyt­inu taka þátt í því að koma pen­ingum sem hann og við­skipta­fé­lagar hans höfðu fengið greidda frá Samherja í umferð í namibíska hag­kerf­inu án þess að hann vissi hvaðan pen­ing­arnir kæmu. Þetta kemur fram í eið­svar­inni yfir­lýs­ingu frá mann­inum Phil­gentius Kahambundu, sem er hluti af dóms­skjöl­unum í máli ákæru­valds­ins í Namibíu gegn Sacky Shangala og við­skipta­fé­lögum hans. Pen­ing­arnir sem Phil­geutius Kahambundu milli­færði fyrir Sacky komu frá James Hatuikulipi sem kalla má höf­uð­paur­inn í við­skipt­unum með Samherja og átti hann meðal ann­ars félagið Tunda­vala Invest­ment sem fékk greiddan til sín meira en hálfan millj­arð króna frrá félagi Samherja á Kýpur, Esju Seafood. 

Í dóms­skjöl­unum eru ítar­legar og nákvæmar lýs­ingar á því eftir hvaða leiðum pen­ing­arnir sem Samherji greiddi til emb­ættis- og  stjórn­mála­mann­anna í skiptum fyrir hesta­makríl­skvóta, sam­tals vel á annan …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár