Sjávarútvegsráðherra Namibíu: Samherjamálið ástæðan fyrir að uppboð á kvóta frestaðist

Skip­stjóri Samherja, Páll Stein­gríms­son, segir að Rík­is­út­varpið beri ábyrgð á því að vel­ferð­ar­þjón­usta í Namibíu er fjársvelt. Ástæðan er umfjöllun um mútu­greiðslur Samherja í land­inu sem leitt hafi til nýs fyr­ir­komu­lags í úthlutun afla­heim­ilda sem ekki hafi gengið vel. Albert Kawana sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra segir að hann vilji forð­ast spill­ingu eins og þá í Sam­herj­a­mál­inu í lengstu lög.

Sjávarútvegsráðherra Namibíu: Samherjamálið ástæðan fyrir að uppboð á kvóta frestaðist
Tjón Namibíu að missa Samherja úr landi Skip­stjóri Samherja, Páll Stein­gríms­son, rekur það í aðsendri grein á Vísi.is hversu mikið tjón það var fyrir Namibíu að missa Samherja úr landi. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, sést hér í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í byrjun sept­em­ber. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, Albert Kawana, segir að upp­boð á afla­heim­ildum þar í landi hafi gengið illa og taf­ist úr hófi fram vegna þess að hann hafi viljað vanda til verka og tryggja gagn­sæi í úthlut­unum á þessum verð­mætum.

Fréttir um þettta mis­heppn­aða upp­boð hafa verið sagðar í namibískum og íslenskum fjöl­miðlum. 

Einungis 1,3 pró­sent kvót­ans sem var til leigu á upp­boði seld­ust og fékk namibíska ríkið því bara tæpar 87 millj­ónir króna í rík­is­kass­ann en ekki um sex millj­arða króna eins og gengið var út frá ef allur kvót­inn hefði verið leigður á upp­boð­inu. 

Ástæðan sem Kawana nefnir fyrir töfum á kvóta­upp­út­boð­inu er Sam­herj­a­málið, eða Fishrot eins og það kall­ast í sam­fé­lags­um­ræð­unni í Namibíu. Það er hvernig staðið hefur verið að kvóta­út­hlut­unum í land­inu síð­ast­liðin ár og frétta­flutn­ingur um Sam­herj­a­málið í Kveik, Stund­inni og Al Jazeera í fyrra sýndi fram á en inn­tak hans var að Samherji hefði mútað namibískum ráða­mönnum með pen­inga­greiðslum upp á vel á annan millj­arð í skiptum fyrir hesta­makríl­skvóta. Samherji fékk meðal ann­ars kvót­ann í gegnum rík­is­fyr­ir­tækið Fishcor sem sér um útdeil­ingu kvóta í Namibíu. 

Kawana: Sumir leggja Fishcor að jöfnu við Fishrot

Albert KawanaSjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu segir að vanda þurfi til verka til að forð­ast spill­ingu í kvóta­útl­hlut­unum í Namibíu líkt og í Sam­herj­a­mál­inu.

Samkvæmt namibíska blað­inu The Namibian segir Kawana um þetta: „Um þessar mundir segja margir að Fishcor sé það sama og Fishrot [Sam­herj­a­málið]. Ekkert gagn­sæi, hvernig fá þessi fyr­ir­tæki kvóta í gegnum Fischor? Var not­ast við ein­hverja hlut­læga, gagn­sæja aðferð? Þegar ég kom (í ráðu­neytið) með sam­starfs­mönnum mínum sagði ég: Þetta þarf að stoppa… “

Í stað þess að útdeila kvót­anum til til­tek­inna kvóta­hafa eins og verið hefur var ákveðið að reyna upp­boðs­leið í stað­inn. Kawana segir bæði hafa orðið að fylgja lög­unum og eins anda lag­anna í kvóta­út­hlut­un­inni, í ljósi þess hversu illa hafi farið í Fishrot-mál­inu, Sam­herj­a­mál­inu, í Namibíu. „Ég þurfi að fylgja lög­unum, laga­bók­stafnum og eins anda lag­anna. Þetta var eina ástæðan.“ 

Kawana segir að enn verði hægt að selja hesta­makríl­skvót­ann sem ekki var leigður á upp­boð­inu þar sem veiði­tíma­bili mak­ríls­ins ljúki ekki fyrr en 31. des­em­ber. Hann segir að fisk­ur­inn sem verður ekki veiddur á þessu fisk­veiði­ári muni vit­an­lega ekki rotna í haf­inu í kringum Namibíu og muni á end­anum skila meira til fisk­veið­i­ðn­að­ar­ins í Namibíu.  

Um upp­boðið segir í frétt The Namibian: „Ráð­herr­ann sagði að upp­boðs­ferl­inu hefði verið frestað og að fjár­mála- og sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neytin muni samt selja kvót­ann með gagn­sæjum hætti og muni í kjöl­farið greina þjóð­inni frá því hversu mikið fékkst fyrir kvót­ann.“

Stjórn­völd í Namibíu eru því að hugsa um hvernig verð­mæti kvót­ans fyrir land og þjóð verði hámarkað til lengri tíma litið. 

Tjónið við breytt fyr­ir­komu­lagMorg­un­blaðið gerði þvi skóna að breytt og gagn­særra fyr­ir­komu­lag við kvóta­út­hlutun í Namibíu hafi leitt til tug­millj­arða tjóns fyrir þjóð­ar­búið þar í landi. Í frétt­inni kom ekki fram að nýja fyr­ir­komu­lagið var tekið upp út af Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu.

Morgunblaðið: Nefndi ekki mútumál Samherja

Í fréttum af upp­boð­inu á Íslandi hafa sumir frétta­miðlar, meðal ann­ars Morg­un­blaðið sem var í eigu Samherja að hluta þar til árið 2017 þegar Eyþór Arnalds eign­að­ist hluta­bréf útgerð­ar­innar án þess að greiða neitt fyrir þau, hafa hins vegar stillt upp­boð­inu upp þannig að nýja fyr­ir­komu­lagið við kvóta­út­hlut­un­ina sé verra en hið gamla. 

Í frétt Moggans um málið var talað um „tug­millj­arða tjón þjóð­ar­bús­ins“ og var nið­ur­staða upp­boðs­ins borin saman við fyrra fyr­ir­komu­lag. „Fyrra fyr­ir­komu­lag, þar sem kvóta var úthlutað gegn gjaldi, hefði skilað um 315 millj­ónum namib­íu­dala í rík­is­kass­ann þar syðra, jafn­virði um þriggja millj­arða íslenskra króna.“ 

Tekið var sér­stak­lega fram að Samherji hefði ekki tekið þátt í upp­boð­inu en ekki var tekið fram að Samherji hætti veiðum í Namibíu vegna þess félagið hefur verið staðið að mútu­greiðslum þar í landi sem nú eru til rann­sóknar bæði í Namibíu og á Íslandi. 

Ekki var heldur tekið fram í Mogganum af hverju upp­boðs­leiðin á kvóta var tekin upp, það er segja vegna þess að kvóta­út­hlunin til fyr­ir­tækja eins og Samherja reynd­ist vera gjör­spillt og skil­aði kaup­verð kvót­ans sér ekki í rík­is­kass­ann og til fólks­ins í land­inu heldur til „ráð­gjafa“ Samherja sem voru stjórn­mála­menn og tengdir aðilar. 

Að lokum kom heldur ekki fram í frétt Moggans að það sem er til rann­sóknar í Namibíu og á Íslandi er hvort Samherji hafi greitt mútur til umræddra áhrifa­manna. Morg­un­blaðið tengir Samherja hins vegar ekki við þetta mál með beinum hætti í frétta­flutn­ingi sínum af upp­boð­inu: „Félög tengd Samherja tóku ekki þátt í upp­boð­inu, en á föstu­dag lauk einmitt rann­sókn á úthlutun fisk­veiði­heim­ilda í Namibíu, þar sem grunur er uppi um spill­ingu á umliðnum árum. Málinu hefur nú verið komið til sak­sókn­ara,“ segir í nið­ur­lagi fréttar Moggans. 

Skipstjóri Samherja kennir RÚV um að uppboðið klúðraðist

Páll Stein­gríms­sonSkip­stjóri Samherja telur að Rík­is­út­varpið hafi grafið undan vel­ferð­ar­kerf­inu í Namibíu með því að segja frá spill­ingu Samherja þar í landi.

Frétta­flutn­ing­ur­inn af kvóta­upp­boð­inu í Namibíu hefur vakið frek­ari við­brögð á Íslandi þar sem bæði Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Páll Stein­gríms­son, skip­stjóri Samherja sem hefur skrifað mýmargar blaða­greinar um Samherja á liðnum árum sam­hliða starfi sínu sem skip­stjóri, hafa tjáð sig um það á liðnum dögum.

Brynjar telur meðal ann­ars að upp­boðið í Namibíu sýni það og sanni að upp­boðs­leiðin muni ekki ganga sem aðferð við að deila út kvót­anum hér á landi eins og sumir stjórn­mála­flokkar vilja. Á Facebook deildi þing­mað­ur­inn grein Páls og sagði: „Einnig gott fyrir þá í Viðreisn, Sam­fylk­ing­unni og Pírötum að lesa, sem telja að upp­boðs­leið á afla­heim­ildum sé skyn­söm leið.“

„Allt í boði Rík­is­út­varps­ins.“

Páll Stein­gríms­son gengur svo langt í sinni grein að kenna Rík­is­út­varp­inu um það að kvóta­upp­boðið í Namibíu gekk ekki vel. Hann segir: „Uppboðið sem klúðr­að­ist í Namibíu var ákveðin til­raun sem mis­heppn­að­ist en þetta var í fyrsta sinn sem afla­heim­ildir voru boðnar upp í land­inu. […] Tekj­urnar af upp­boð­inu átti að nýta til að greiða fyrir vel­ferð­ar­þjón­ustu á tímum Covid-19 heims­far­ald­urs­ins. Voru áætl­aðar tekjur rík­is­sjóðs Namibíu af veiði­leyfum jafn­virði um 6 millj­arða króna og talið var að áhrifin yrðu um 25 millj­arðar króna fyrir namibískt hag­kerfi. Tekj­urnar af upp­boð­inu voru hins vegar aðeins 65 millj­ónir króna að jafn­virði því aðeins voru seldar heim­ildir fyrir 100 tonn af lýs­ingi og 1.517 tonn af hesta­makríl en ekk­ert af skötu­sel. Uppboðið fór algjör­lega í vaskinn. Namibískur sjáv­ar­út­vegur er því í nokkru upp­námi og óljóst um fram­haldið. Allt í boði Rík­is­út­varps­ins.“

Eins og Páll raunar segir sjálfur, og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu líka, þá var umrætt upp­boðs­fyr­ir­komu­lag tekið upp vegna þess að úthlut­unin á kvóta í Namibíu hafði verið svo spillt á liðnum árum þar sem Samherji greiddi mútur til áhrifa­manna í Namibíu til að kom­ast yfir kvót­ann.

Páll velur hins vegar ekki þá leið að kenna Samherja um það að upp­boðs­leiðin var tekin upp, sökum þess að upp komst um mútu­greiðslur fyr­ir­tæk­is­ins sem nú eru til rann­sóknar í tveimur löndum, heldur kennir hann Rík­is­út­varp­inu um vegna þess að þáttur á vegum stofn­un­ar­innar afhjúpaði þessa spill­ingu sem leiddi til breyt­inga á úthlutun kvót­ans. 

„Það má spyrja hvort frétta­menn Rík­is­út­varps­ins séu stoltir af sínu fram­lagi“

Páll: Betra fyrir Namibíu að hafa Samherja

Af þessu dregur Páll þá ályktun að það hefði verið betra fyrir Namibíu að hafa Samherja áfram sem þátt­tak­anda í sjáv­ar­út­veg­inum í Namibíu. Þetta segir Páll þrátt fyrir að stór hluti pen­ing­anna sem Samherji greiddi fyrir kvót­ann hafi runnið til „ráð­gjafa“ félags­ins sem mútu­greiðslur og ekki til namibíska rík­is­ins. 

Í grein hans segir meðal ann­ars: „Þetta mál vekur ýmsar spurn­ingar. Hver var staðan í Namibíu þegar félög tengd Samherja stund­uðu þar veiðar? Félög tengd Samherja greiddu jafn­virði 21,4 millj­arða króna til namibískra aðila [Páll lætur þess ekki getið hversu mikið af greiðsl­unum voru mútu­greiðslur] á meðan þau voru í rekstri á árunum 2012-2019 eins og greint var frá fyrr á þessu ári. Það var því holur hljómur í full­yrð­ingum um arð­rán. Það er stað­reynd að félög tengd Samherja sköp­uðu gríð­ar­leg verð­mæti fyrir Namib­íu­menn á meðan þau störf­uðu í land­inu, þvert á full­yrð­ingar Rík­is­út­varps­ins. Það má spyrja hvort frétta­menn Rík­is­út­varps­ins séu stoltir af sínu fram­lagi enda voru þeir beinir ger­endur í atburða­rás sem leiddi til þess að fyr­ir­komu­lagi úthlut­unar afla­heim­ildar í Namibíu var koll­varpað með til­heyr­andi tjóni fyrir namibískt sam­fé­lag.“

Páll vill því meina að helsti söku­dólg­ur­inn í Namibíu sé Rík­is­út­varpið, þvert á orð sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins sem meðal ann­ars hefur útskýrt að það voru spilltar kvóta­ú­hlut­anir í Sam­herj­a­mál­inu sem leiddu til þess að tekið var upp nýtt fyr­ir­komu­lag við úthlutun á kvóta í land­inu.

Út frá orðum Páls má því draga þá ályktun að það hafi verið slæmt fyrir Namibíu að fjöl­miðlar sögðu frá mútu­greiðslum Samherja í land­inu vegna þess að þetta hafi leitt til þess að Namib­íu­menn hafi orðið af tekjum þar sem Samherji greiddi há verð, meðal ann­ars í mútur, til að fá kvóta. 

Páll virð­ist ekki átta sig á þeim mögu­leika að vegna þess að sagt var frá mútu­greiðsl­unum og vegna þess að Samherji stundar ekki lengur fisk­veiðar í land­inu þá geti Namibía mögu­lega komið sér upp fisk­veiði­kerfi sem byggir ekki á spill­ingu og mútu­greiðslum. 

Þetta getur svo jafn­vel leitt til þess að hagn­að­ur­inn af fisk­veið­unum verði eftir hjá þar­lendum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum en lendi ekki í skatta­skjólum eins og Máritíus, sem Samherji not­aði meðal ann­ars, eða að gjaldið fyrir kvót­ann fari sömu­leiðis sann­ar­lega í „vel­ferð­ar­þjón­ustu“ í Namibíu, sem honum virð­ist vera svo umhugað um, og ekki í aflands­fé­lög spillta stjórn­mála­manna í Dubaí. 

Að mati Páls var betra fyrir Namibíu að hafa Samherja í land­inu.

Rök­semda­færslu Páls svipar til mála­til­bún­aðar Samherja um veru sína í Namibíu þar sem rauði þráð­ur­inn er að útgerð­ar­fé­lagið hafi lagt mikið af mörkum til sam­fé­lags­ins útgerð sinni í land­inu, þrátt fyrir mútu­greiðslur og notkun á skatta­skjólum í rekstr­inum, og að félagið hafi stundað þar eðli­leg við­skipti á mark­aðs­for­sendum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár