383 milljóna króna lán Eyþórs hjá Samherja gjaldféll í mars

Eyþór Arnalds borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokkks­ins, átti að greiða Samherja 383 millj­óna króna skuld í mars. Eign­ar­halds­fé­lag hans gerði þetta hins vegar ekki. Samherji hefur nú þegar afskrifað skuld borg­ar­full­trú­ans við dótt­ur­fé­lagið Katt­ar­nef ehf.

383 milljóna króna lán Eyþórs hjá Samherja gjaldféll í mars
Gjald­fallið og afskrifað 383 millj­óna króna félags Eyþórs Arnalds hjá Samherja gjald­féll í mars. Samherji hefur nú þegar afskrifað lán borg­ar­full­trú­ans. Mynd: Heiða Helgadóttir

383 millj­óna króna lán Eyþórs

 hjá Samherja gjald­féll í mars

Tæplega 383 millj­óna króna lán eign­ar­halds­fé­lags Eyþórs Arnalds borg­ar­full­trúa sem það fékk hjá félagi í eigu Samherja árið 2017 er gjald­fallið. Þetta gerð­ist í mars síð­ast­liðnum. Félagið, Ramses II ehf., fékk lánið árið 2017 árið 2017 til að kaupa hluta­bréf dótt­ur­fé­lags Samherja, Katt­ar­nefs ehf., í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, Árvakri ehf.  Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Ramsesar II ehf. Sem Eyþór sam­þykkti á stjórn­ar­fundi þann 30. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Á móti þessum skuldum eru eignir upp á 93 millj­ónir króna en á bak við þær er eign­ar­hlut­ur­inn í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, sem Ramses II á í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Þórsmörk ehf. Hlutur Ramses í Morg­un­blað­inu hefur rýrnað úr 25 pró­senta hlut og niður í rúm 13 pró­sent þar sem félagið hefur ekki tekið þátt í hluta­fjár­aukn­ingum félags­ins síð­ast­liðin ár. 

Félagið tap­aði tæp­lega 50 millj­ónum króna í fyrra og er eig­in­fjár­staða þess nú nei­kvæð um tæp­lega 289 millj­ónir króna. 

Við­skiptin vekja harðar deilur

Eins og segir í skýr­ingu með árs­reikn­ingnum: „Eigið fé félags­ins er nei­kvætt og lán félags­ins eru gjald­fallin. Stjórn­endur vinna að end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins og gera ráð fyrir að geta staðað skil á skuld­bind­ingum félags­ins og er árs­reikn­ing­ur­inn settur fram með þeirri for­sendu.“

Við­skipti Eyþórs og Samherja hafa ítrekað vakið harðar deilur í borg­ar­stjórn Reykja­víkur þar sem pírat­inn Dóra Björt Guð­jóns­dóttir hefur ítrekað og end­ur­tekið vakið máls á við­skipt­unum og upp­skorið miklla gagn­rýni. Að mati Dóru hefur Eyþór ekki útskýrt við­skiptin með nægi­lega grein­ar­góðum hætti. Eyþór hefur á móti sakað Dóru Björt um norna­veiðar. 

Tekið skal fram að Eyþór var ekki orð­inn borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins þegar hann keypti þessi hluta­bréf árið 2017.  Eyþór varð borg­ar­full­trúi rúmu ári síðar, í lok maí árið 2018, og hefur hann haldið á umræddum hluta­bréfum í Árvakri sam­hliða störfum sínum sem kjör­inn full­trúi hjá Reykja­vík­ur­borg.

Samherji hefur þegar afskrifað lánið

Út frá árs­reikn­ingum má sjá að það er ekki nokkur leið fyrir félag Eyþórs að greiða Sam­herj­a­fé­lag­inu til baka þessar 383 millj­ónir og einu eign­irnar eru hluta­bréfin í Morg­un­blað­inu sem Samherji virð­ist ekki hafa viljað eiga lengur árið 2017. Sam­herj­a­fé­lagið hefur því nokkra kosti í stöð­unni gagn­vart félagi Eyþórs: að krefj­ast gjald­þrots félags­ins vegna van­gold­inna skulda þess; að ganga að eignum félags­ins, Mogga­bréf­unum, sem vænt­an­lega eru veðin fyrir lán­inu eða þá að gera ekki neitt. 

Lík­leg­ast er að Samherji velji þriðja kost­inn af þessum þremur. 

Ástæðan fyrir því að það er lík­leg­ast er sú að Sam­herj­a­fé­lagið Katt­ar­nef ehf., sem er lán­veit­andi Ramsesar II ehf., hefur þegar afskrifað lánið til félags­ins að fullu, eins og Stundin greindi frá fyrir skömmu.  Katt­ar­nef ehf. afskrif­aði þá 257 millj­óna króna selj­enda­lán sem félagið veitti félag­inu í eigu Eyþórs Arnalds árið 2017. 

Eins og Stundin sagði frá kom fram í árs­reikn­ingi Katt­ar­nefs ehf. að félagið tap­aði tæp­lega 200 millj­ónum króna í fyrra. Félagið átti sam­tals 256 millj­óna króna eignir í árs­lok 2018 en í árs­lok 2019 voru þær komnar niður í 63 millj­ónir króna. Ástæðan er „virð­is­rýrnun krafna“ Katt­ar­nefs á hendur félagi Eyþórs Arnalds, Ramsesi II ehf. Vaxta­ber­andi kröfur Katt­ar­nefs fóru úr tæp­lega 250 millj­ónum króna í árs­lok 2018 og niður í 0 krónur í árs­lok 2019. 

Þannig má segja að þar sem lán­veit­andi félags Eyþórs hefur þegar afskrifað lánið þá þurfi félag Eyþórs vit­an­lega ekki að greiða það til baka. Réttast hefði því verið, til að gæta sam­ræmis, að Eyþór hefði afskrifað lán Ramsesar II. hjá Katt­ar­nefi í þessum nýbirta árs­reikn­ingi þar sem alveg ljóst er að félag hans mun ekki greiða lánið til baka. 

Talið að COVID kunni að hafa slæm áhrif á félag Eyþórs

Þrátt fyrir að Samherji hafi afskrifað lánið til félags Eyþórs í fyrra og þrátt fyrir að lánið hjá Samherja hafi gjald­fallið í mars segir í árs­reikn­ingnum að COVID-far­ald­ur­inn, sem hófst fyrir alvöru í mars, hafi skapi óvissu um rekstr­ar­hæfi félags­ins, kunni að skapa óvissu um rekst­ar­hæfi félags­ins. „Óvenju­legar aðstæður hafa skap­ast vegna kór­ónu­veirunnar COVID-19. Óvissa er um hvaða áhrif þær munu hafa á félagið. Vegna þessa ríkir einnig ákveðin óvissa um rekstr­ar­hæfi félags­ins.“

Í fljótu bragði er ekki aug­ljóst að sjá með hvaða hætti COVID-far­ald­ur­inn kann að hafa áhrif á rekstr­ar­hæfi félags Eyþórs. 

Hvað fékk Eyþór út úr þessu?

Nú, þegar segja má að fyrir liggi hvernig þessi við­skipti Eyþórs og Samherja enda, má velta upp þeirri spurn­ingu hvað Eyþór Arnalds græddi á þessum við­skiptum. Út frá árs­reikn­ingum félag­anna að dæma er ljóst að engir pen­ingar skiptu um hendur. Eyþór greiddi Sam­herj­a­fé­lag­inu ekki fyrir hluta­bréfin heldur fékk lán fyrir þeim sem síðan var afskrifað. Samherji græddi því heldur ekk­ert á við­skipt­unum en losn­aði við hluta­bréfin í Morg­u­blað­inu. 

Eyþór hefur hins vegar síð­ast­liðin ár verið stærsti, og síðar einn stærsti hlut­haf­inn í elsta dag­blaði lands­ins sem kalla má ákveðna stofnun í íslensku sam­fé­lagi þrátt fyrir að staða blaðs­ins hafi veikst mjög síð­ast­liðin ára­tug, sam­hliða störfum sínum sem borg­ar­full­trúi frá árinu 2018. Að vera svo stór hlut­hafi í blaði eins og Morg­un­blað­inu, sam­hliða því að vera kjör­inn full­trúi, kann því vit­an­lega að fela í sér áhrif fyrir stjórn­mála­mann. Slík staða kann því einnig að fela í sér mögu­leika á áhrifa­kaupum fyrir stjórn­mála­mann jafn­vel þó við­skiptin sjálf feli ekki í sér neinn beinan fjár­hags­legan ávinn­ing fyrir hann þar sem botn­laust tap hefur verið á Morg­un­blað­inu síð­ast­liðin ár, eng­inn arður greiddur og hluta­féð rýrnar umtals­vert í verði ár frá ári. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eyþór Arnalds og Moggabréfin

Lánið frá Samherja sem sýndi „eitraða þræði“ stórútgerðar og stjórnmála
GreiningEyþór Arnalds og Moggabréfin

Lánið frá Samherja sem sýndi „eitr­aða þræði“ stór­út­gerðar og stjórn­mála

Eftir fjöl­miðla­um­ræðu og spurn­ingar í nærri fimm ár hefur eign­ar­halds­fé­lag Eyþórs Arnalds loks­ins afskrifað að fullu selj­anda­lán sem fyr­ir­tækið fékk frá Sam­herj­a­fé­lagi til að kaupa hluta­bréf útgerð­ar­innar í Morg­un­blað­inu. Eyþór þrætti alltaf fyrir það á meðan hann var borg­ar­full­trúi að við­skiptin með hluta­bréfin væru sýnd­ar­við­skipti.
Viðskipti Eyþórs og Samherja: Gögn benda til að kaupverðið hafi verið ekkert
FréttirEyþór Arnalds og Moggabréfin

Við­skipti Eyþórs og Samherja: Gögn benda til að kaup­verðið hafi verið ekk­ert

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill ekki svara því hvernig hann gerði upp nærri 390 millj­óna króna við­skipti með kröfur á hendur félagi hans sem Samherji átti. Samherji afskrif­aði lánið til félags Eyþórs árið 2019. Eyþór sagði við Stundina árið 2018 að við­skipti hans og Samherja værui mögu­leg vegna sterkar eig­in­fjár­stöðu eign­ar­halds­fé­lags í hans eigu.
Samherji afskrifar stóran hluta  225 milljóna láns Eyþórs Arnalds
FréttirEyþór Arnalds og Moggabréfin

Samherji afskrifar stóran hluta 225 millj­óna láns Eyþórs Arnalds

Fjár­fest­ing­ar­fé­lag Samherja hefur fært niður lán­veit­ingu til dótt­ur­fé­lags síns sem svo lán­aði Eyþóri Arnalds borg­ar­full­trúa fyrir hluta­bréfum í Morg­un­blað­inu. Félag Eyþórs fékk 225 millj­óna kúlúlán fyrir hluta­bréf­unum og stendur það svo illa að end­ur­skoð­andi þess kemur með ábend­ingu um rekstr­ar­hæfi þess.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár