Félag Eyþórs tapar á „alvöru“ viðskiptunum með Moggabréfin

Félög Samherja og Eyþórs Arnalds sem áttu í við­skiptum með hluta­bréf í Morg­un­blað­inu árið 2017 halda áfram að gera við­skiptin upp í bókum sínum. Fjár­fest­ing­ar­fé­lag Samherja á enn eftir að afskrifa lánið í bókum sínum.

Félag Eyþórs tapar á „alvöru“ viðskiptunum með Moggabréfin
Tapaði 24 millj­ónum Eign­ar­halds­fé­lag sem Eyþór Arnalds stofn­aði til að halda utan um hluta­bréf í Morg­un­blað­inu sem keypt voru af Samherja, með selj­enda­láni frá Samherja, tap­aði 24 millj­ónum króna í fyrra. Búið er að afskrifa lánið frá Samherja í bókum félags­ins. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eign­ar­halds­fé­lagið sem fjár­festir­inn og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trú­inn í Reykja­vík, Eyþór Arnalds, stofn­aði til að kaupa hluta­bréf í Morg­un­blað­inu af Samherja árið 2017 tap­aði rúm­lega 24 millj­ónum króna í fyrra. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins, Ramses II ehf., sem skilað var til árs­reikn­inga­skrár Rík­is­skatt­stjóra þann 29. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Félagið keypti hluta­bréfin með rúm­lega 370 millj­óna króna láni frá dótt­ur­fé­lagi fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Kaldbaks, Katt­ar­nefs ehf. Kald­bakur er í eigu Samherja. Þetta lán var loks afskrifað í fyrra.

Eini til­gangur Ramses II var að halda utan um Mogga­bréfin og eini til­gangur Katt­ar­nefs var að halda utan um lánið til félags Eyþórs.  

Ramses II ehf. er ennþá einn stærsti hlut­hafi Þórs­merkur, eign­ar­halds­fé­lags sem á nær allt hlutafé í Árvakri sem er útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins. Félagið á 10,2 pró­sent í Þórsmörk ehf. en átti til að byrja með rúm­lega 20 pró­senta hluta. Hlutur félags Eyþórs í Morg­un­blað­inu hefur hins vegar þynnst út í gegnum árin þar sem hann hefur ekki tekið þátt í hluta­fjár­aukn­ingum félags­ins. Þetta bendir til þess að hann hafi ekki viljað setja eigin fjár­muni inn í Morg­un­blaðið. Eina sem félag Eyþórs hefur gert er að taka við hluta­bréfum, og þar með fjár­mögnun, Samherja í Morg­un­blað­inu

Ástæðan fyrir því að Ramses II ehf. skil­aði bók­færðu tapi í fyrra er vegna þess að Þórsmörk ehf. tap­aði 244 millj­ónum króna og stendur félag Eyþórs fyrir ríf­lega 10 pró­sent af því tapi. 

„Ég vil ekki fara út í það í smá­at­riðum hvernig ég fjár­magna þetta en Ramses er með góða eig­in­fjár­stöðu og það stendur á bak við þessa fjár­fest­ingu“
Eyþór Arnalds árið 2018

„Alvöru viðskipti“ sagði Eyþór

Eyþór hefur í gegnum árin alltaf reynt að halda því fram að við­skiptin með hluta­bréfin í Samherja hafi verið eðli­leg við­skipti á við­skipta­legum for­sendum. Þegar Eyþór keypti hluta­bréfin í Morg­un­blað­inu árið 2018 hafði hins vegar verið botn­laust tap á félag­inu og ekk­ert benti til að þetta væri að fara að breyt­ast. Samherji hafði þá átt Mogga­bréfin í tæpan ára­tug og ákvað að fara út úr fyr­ir­tæk­inu, eins og félagið greindi frá í til­kynn­ingu. 

Í við­tali við Stundina, annan af fyr­ir­renn­urum Heim­ild­ar­innar árið 2018, sagði Eyþór aðspurður um við­skiptin að hann vildi ekki greina frá því hvernig hann fjár­magn­aði kaupin á hluta­bréf­unum: „Þetta eru alvöru, sjálf­stæð við­skipti og verðið er trún­að­ar­mál. Samherji seldi þessi hluta­bréf og ég er ekki skuld­bund­inn þeim með nokkrum hætti í kjöl­farið.  Ég er engum háður […]Ég er með alls konar fjár­fest­ingar í gangi og reyni að fjár­magna þær með eins skyn­sam­legum hætti og ég get. Ég er með þetta í sér­stöku félagi til að dreifa áhætt­unni. Ég vil ekki fara út í það í smá­at­riðum hvernig ég fjár­magna þetta en Ramses er með góða eig­in­fjár­stöðu og það stendur á bak við þessa fjár­fest­ingu.“ 

Þegar Eyþór sagði að Ramses væri með góða eig­in­fjár­stöðu og „stæði á bak við við­skiptin“ var það ekki alveg rétt. Það var í raun Samherji sem stóð á bak við við­skiptin.  

Kaldbakur hefur ekki afskrifað lán Kattarnefs

Það er tals­verður munur á rekstr­ar­nið­ur­stöðu Ramses II ehf. árið 2022 en 2021  þegar félagið skil­aði rúm­lega 388 millj­óna króna hagn­aði. Ástæðan fyrir því var sú að lánið frá Katt­ar­nefi, félagi Samherja, til Ramses II ehf., var afskrifað árið 2021. Þegar lán eru afskrifuð í bók­haldi eign­ar­halds­fé­laga eru þau inn­færð sem hagn­aður þar sem fyr­ir­tækið greiddi ekk­ert fyrir þau. Samtímis þá fer lánið úr bókum félags­ins, skuldin þurrkast út. 

Í árs­reikn­ingi Katt­ar­nefs ehf. fyrir síð­asta ár kemur fram að þó að félagið hafi afskrifað kröf­una á hendur félagi Eyþórs þá hefur Kald­bakur ekki enn afskrifað lánið til Katt­ar­nefs. Í árs­reikn­ingnum kemur fram að félagið skuldi Kaldbaki enn tæp­lega 286 millj­ónir króna. 

Sá hluti við­skipt­anna, að Kald­bakur nið­ur­færi lánið til Katt­ar­nefs er því eftir. Þegar þetta verður búið þá verður búið að afskrifa öll lán í við­skipt­unum. 

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Eftir bankahrunið leitaðist Vilhjálmur Bjarnason að safna nægu fé til að kapa Morgunblaðið. Því miður gekk það ekki upp og útgerðarmenn með Samherja í forystu gerðu þessar vonir að engu. Fyrir vikið sagði þriðjungur áskrifenda Morgunblaðsins upp þegar núverandi ritstjóri var valinn umfram Ólaf Stephensen sem ritstjóri. Ólafur var farsæll í sínu starfi sem ritstjóri bæði Morgunblaðsins sem Fréttablaðsins sáluga. Mjög er minnisstætt hvernig hann fékk sérfræðinga að skoða aðild að Evrópusambandinu með því að meta kosti og ókosti aðildar. Unnu blaðamenn með sérfræðingum að mjög merku og mikilvægu starfi.
    Flest rök hnigu að því að aðild yrði mjög hagstæð þorra þjóðarinnar.
    Nú þyrfti að taka þetta aftur upp og skoða hvort eitthvað hafi breyst á þessum tæpa hálfa annan áratug. Við gætum auðveldað margt í okkar samfélagi t.d. hvað eigum við að gera við Seðlabanka sem væri vitaóþarfur með aðild að Evrópusambandinu. Seðlabankinn með um 300 starfsmenn eða um 1 prómill af skattgreiðendum landsins? Gæti góð menntun og reynsla ekki nýst betur í atvinnulífi landsmanna en að naga blýanta frá morgni til kvölds?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eyþór Arnalds og Moggabréfin

Lánið frá Samherja sem sýndi „eitraða þræði“ stórútgerðar og stjórnmála
GreiningEyþór Arnalds og Moggabréfin

Lánið frá Samherja sem sýndi „eitr­aða þræði“ stór­út­gerðar og stjórn­mála

Eftir fjöl­miðla­um­ræðu og spurn­ingar í nærri fimm ár hefur eign­ar­halds­fé­lag Eyþórs Arnalds loks­ins afskrifað að fullu selj­anda­lán sem fyr­ir­tækið fékk frá Sam­herj­a­fé­lagi til að kaupa hluta­bréf útgerð­ar­innar í Morg­un­blað­inu. Eyþór þrætti alltaf fyrir það á meðan hann var borg­ar­full­trúi að við­skiptin með hluta­bréfin væru sýnd­ar­við­skipti.
Viðskipti Eyþórs og Samherja: Gögn benda til að kaupverðið hafi verið ekkert
FréttirEyþór Arnalds og Moggabréfin

Við­skipti Eyþórs og Samherja: Gögn benda til að kaup­verðið hafi verið ekk­ert

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill ekki svara því hvernig hann gerði upp nærri 390 millj­óna króna við­skipti með kröfur á hendur félagi hans sem Samherji átti. Samherji afskrif­aði lánið til félags Eyþórs árið 2019. Eyþór sagði við Stundina árið 2018 að við­skipti hans og Samherja værui mögu­leg vegna sterkar eig­in­fjár­stöðu eign­ar­halds­fé­lags í hans eigu.
Samherji afskrifar stóran hluta  225 milljóna láns Eyþórs Arnalds
FréttirEyþór Arnalds og Moggabréfin

Samherji afskrifar stóran hluta 225 millj­óna láns Eyþórs Arnalds

Fjár­fest­ing­ar­fé­lag Samherja hefur fært niður lán­veit­ingu til dótt­ur­fé­lags síns sem svo lán­aði Eyþóri Arnalds borg­ar­full­trúa fyrir hluta­bréfum í Morg­un­blað­inu. Félag Eyþórs fékk 225 millj­óna kúlúlán fyrir hluta­bréf­unum og stendur það svo illa að end­ur­skoð­andi þess kemur með ábend­ingu um rekstr­ar­hæfi þess.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár