Verðmætasta starfsfólk Íslands: Tugmilljónatekjur íslenskra forstjóra

Launa­hæsti for­stjór­inn í íslensku Kaup­höll­inni stýrir fyr­ir­tæki sem hefur tapað tugum millj­arða frá stofnun. Hann ber höfuð og herðar yfir aðra for­stjóra þegar kemur að tekjum en alla jafna njóta þeir kjara sem eru á við tíföld með­al­laun á íslenskum vinnu­mark­aði.

Verðmætasta starfsfólk Íslands: Tugmilljónatekjur íslenskra forstjóra

For­stjórar íslensku fyr­ir­tækj­anna á aðal­l­ista Kaup­hall­ar­innar kost­uðu 2.411 millj­ónir króna á síð­asta ári. Þetta sýnir sam­an­tekt á launa­upp­lýs­ingum þeirra úr árs­reikn­ingum fyr­ir­tækj­anna. Þrjár af fjórum konum sem leiða skráð fyr­ir­tæki raða sér í neðstu sætin yfir for­stjóra sé raðað eftir umbun fyrir störf. Launa­hæsta konan fær tveimur millj­ónum minna á mán­uði en for­stjóri sam­bæri­legs fyr­ir­tækis. 

Fimm á toppnum

Launa­hæsti for­stjór­inn er Róbert Wessman, stofn­andi og for­stjóri Alvotech. Hann fékk 321 milljón króna í föst laun, árang­urstengdar greiðslur og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð, sam­kvæmt árs­reikn­ingi Alvotech fyrir síð­asta ár. Það er meira en 166 millj­ónum krónum meira en næsti for­stjóri á list­anum fékk greitt sama ár. 

26,8 millj­ónir
áætluð mán­að­ar­laun Róberts Wessman, for­stjóra Alvotech, miðað við árs­laun sam­kvæmt árs­reikn­ingi 2024.

Sá heitir Ásgeir Helgi Reyk­fjörð Gylfason og er for­stjóri Skeljar fjár­fest­inga­fé­lags, sem er eitt umsvifa­mesta fjár­fest­inga­fé­lag lands­ins. Hann fékk greiðslur upp …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna María Sverrisdóttir skrifaði
    Að hugsa sér. Í sjálfu sér leiðir maður of sjaldan hugann að þessu sem við öll svosem vitum í stórum dráttum. Það kemur þó fyrir, sérstaklega þegar við horfum upp á virkilega mikilvæg málefni, t.d. félög og fyrirtæki opinber sem önnur verða að stóla á sjálfboðaliðastarf til þess í mörgum tilvikum að beinlínis bjarga mannslífum. Fólk sem lepur dauða úr skel bara til að komast af með börn sín. Ekkert fé lieitar þangað sem almannaheill í raun krefjast þess svo vel sé. En þetta eru auðvitað "heimspekilegar" pælingar hjá mér eða spurning um lífssýn. Ég á oft afskaplega erfitt með að skilja heiminn.
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Allt er þetta kerfi gert til að mergsjúga viðkomandi fyrirtæki. Það er ekkert mál, almenningur elskar að láta rassskella sig og kyngir þessu öllu saman, hann greiðir bara meira og meira fyrir vikið.
    3
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Fólkið sem fær hæstu launin eins og t.d. margir forstjórarnir er ekki verðmætasta fólkið í atvinnulífinu nema síður sé.

    Það er fjöldi sem er verðmætasta fólkið
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

0,1 prósentið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár