Saga Írans 3: Þegar konungur Írans var messías Gyðinga

Hér segir frá upp­hafi stjórn­ar­tíðar Kýrusar mikla Per­sa­kon­ungs sem setti á stofn þriðja og mesta stór­veldið í Íran, og var ein­hver merkasti, mild­asti og skyn­samasti stjórn­ar­herra forn­aldar.

Saga Írans 3: Þegar konungur Írans var messías Gyðinga
Kýrus sleppir Gyðingum úr her­leið­ing­unni til Babýlon. Hirðmenn og her­for­ingjar Kýrusar bera út úr must­eri alls konar helga gripi sem Babýloníu-menn höfðu rænt frá Jer­úsalem en Gyðingar fengu nú að taka aftur heim með sér. Mynd: Kýrus

Þar var komið sögu Írans (eins og lesa má um hér) að indóíranskt fólk var orðið ráð­andi á mest­öllu svæð­inu og ein slík þjóð, Persar, hafði hrifsað frum­kvæðið af frændum sínum Medum.

Um 550 FT (fyrir upp­haf tíma­tals okkar) var Kýrus kon­ungur Persa orð­inn alls­ráð­andi í víð­áttu­miklu ríki Meda. Hann sigr­aði þá afa sinn Astyages Medakóng í orr­ustu og tók við af honum.

Kýrusi fylgdu hins vegar svo rót­tækar breyt­ingar að með honum varð í raun til nýtt ríki Persa.

Köllum ríki hans og afkom­enda hans Persíu þótt nafn­gift­irnar Íran/Persía séu flókið mál og ég fjalla kannski um síðar.

Ríkasti kóngur fornaldar

Eins og ég rakti í síð­ustu grein hafði Astyages átt í stríði við Lydíu­menn sem réðu vest­ur­hluta Anatólíu (Tyrk­lands, sem nú heitir). Friður var sam­inn milli Astya­gesar og Alyattesar Lydíu­kóngs eftir að almyrkvi á sólu trufl­aði úrslita­orr­ustu kon­ung­anna tveggja og skaut her­mönnum þeirra skelk í bringu. En nú var Krösus, sonur Alyattesar, orð­inn kon­ungur í Lydíu og virð­ist hafa talið að hinn nýi Per­sa­kóngur yrði sér auð­veld bráð.

Krösus var ann­ál­aður fyrir að vera rík­asti kóngur heims­ins. Eru af því margar sögur. Ekki er vitað hvað hæft er í þeim en hitt er vitað að hann var að lík­indum fyrsti kóng­ur­inn sem lét slá gull­pen­inga svo það var ekki að furða þótt sögur gengju um hví­lík ókjör af gulli Krösus ætti.

Véfréttin í Delfí

Krösus er líka frægur fyrir að gengið á fund aþenska stjórn­spek­ings­ins Sólons. Þegar hann tók að stæra sig af veldi sínu og auð­æfum sýndi Sólon honum fram á hann væri þó hvergi nærri eins ham­ingju­samur og réttur og sléttur smá­bóndi í Aþenu sem strit­aði í heið­ar­leika og nægju­semi við sitt litla bú.

Áður en Krösus stefndi her sínum gegn hinum nýja kon­ungi Persa þótti honum örugg­ast að gera út sendi­boða til véfrétt­ar­innar í Delfí í Grikk­landi og spyrja hvernig honum myndi farn­ast.

Véfréttin var fræg fyrir for­spár sínar sem voru þó stundum nokkuð tví­ræðar.

Krösusi fannst svar véfrétt­ar­innar þó harla afger­andi, því hún sagði ef hann héldi með her sinn yfir lækj­ar­sprænu á þáver­andi landa­mærum Lydíu og hins nýja Persa­veldis, þá yrði mikið veldi að velli lagt.

Hætti við að brenna Krösus kóng

Alls hugar feg­inn hrað­aði Krösus sér yfir spræn­una en eftir að hafa mætt her Kýrusar í harðri orr­ustu rann nátt­úr­lega upp fyrir kóngi að veldið sem að velli var lagt var hans eigið. Hann beið sem sé lægr hlut.

Ríki og her­ferðir Kýrusar í vestri.Það var þegar hann sneri herjum sínum í austur sem allt fór í hund og kött.

Og hið auð­uga Lydíu-ríki var þar með úr sög­unni.

Sögur eru til um að er Persar hand­söm­uðu Krösus eftir orr­ust­una hafi staðið til að brenna hann en ekki mun hafa orðið af því. Þegar Krösus ákall­aði hinn vitra Sólon, er verið var að færa hann á brenn­una, þá varð Kýrus for­vit­inn, lét leysa Krösus og yfir­heyrði hann svo í þaula um sam­skipti hans við Sólon.

Og Kýrus hafði svo Krösus sér til ráðu­neytis upp frá því.

Leit grísku borgríkin hýru auga

Nú þegar Persar höfðu náð Lydíu var veldi Kýrusar komið lang­leið­ina niður að Eyjahafi en þar á strönd­inni voru grískar borgir og smá­ríki. Grikkir höfðu þá mjög verið að efl­ast að menn­ingu, styrk og dáð eftir nokkrar myrkar mið­aldir. Kýrus leit grísku ríkin hýru auga og á nokkrum árum lagði hann undir sig allar borg­irnar á Anatól­íu­strönd­inni.

Um leið leit hann líka hýru augu borg­ríkin úti á eyjum hafs­ins og á gríska meg­in­land­inu handan hafs­ins, en taldi þó ekki tíma­bært að reyna að leggja þau undir sig.

Það beið afkom­enda hans í frægum inn­rásum sem síðar segir frá.

Fagnað í Babýlon

Það var um árið 540 sem Kýrus hafði lokið við að ná undir allri Anatólíu og næst hélt hann í suð­ur­átt og hernam Babýloníu-ríkið í Mesópótamíu. Það var í 1.500 ár yfir­leitt eitt helsta stór­veldi Mið­aust­ur­landa en hafði nú verið að vesl­ast upp í ára­tugi og þegar Kýrus hélt inn­reið sína í Babýlon árið 539 var honum fagnað sem frels­ara.

Og kald­hæðn­is­legt má það vera að þeir sem mest fögn­uðu Kýrusi voru Gyðingar.

Babýlon­íu­menn höfðu lagt Júdeu undir sig 50 árum fyrr og her­leitt helsta fólk þjóð­ar­innar til Babýlon en nú leyfði Kýrus þeim að snúa aftur.

Gyðingar dáðu Kýrus

Í ritum Gyðinga var æ síðan farið hinum feg­urstu orðum um Kýrus og dugar að nefna upp­haf 45. kap­ít­ula Jes­a­ja­bókar þar sem Kýrusi er lýst sem sér­stökum þjóni guðs Ísra­els­manna:

„Svo segir Drottinn við sinn smurða,

Kýrus, sem ég hef tekið í hægri hönd­ina á

til að leggja undir hann þjóðir,

ræna kon­unga vopnum

til að opna hlið fyrir honum

svo að borg­ar­hlið verði ekki lokuð.

Ég geng sjálfur á undan þér

og jafna fjöllin.

Ég mun brjóta eir­hliðin

og mölva slag­branda úr járni,

gefa þér hulda fjár­sjóði

og falin auð­æfi

svo að þú skiljir að ég er Drottinn

sem kalla þig með nafni,

ég, Guð Ísraels.“

כֹּה-אָמַר יְהוָה, לִמְשִׁיחוֹ לְכוֹרֶשׁ

Það mun ein­hverjum þykja for­vitni­legt núna að það orð sem Bibl­íu­þýð­and­inn hér þýðir sem „sinn smurða“ er sama orðið og varð „mess­ías“. Orðið var í Bibl­í­unni notað yfir smurða kon­unga Ísraels, þá sem voru smurðir vegna þess að þeir nutu náðar guðs, og Kýrus er eini mað­ur­inn í Bibl­í­unni sem ekki er Gyðingur sem nefndur er mess­ías.

„כֹּה-אָמַר יְהוָה, לִמְשִׁיחוֹ לְכוֹרֶשׁ,“ segir  Jesaja, og hér er það orðið לִמְשִׁיחוֹ sem vísar til þess að Kýrus sé mess­ías. Þetta er orðið מָשִׁיחַ (māšîaḥ, „mess­ías“) með ákvæð­is­for­liði ל- („til“) og eign­ar­við­skeyt­inu -וֹ („síns“).

Gyðingar voru ekki þeir einu sem höfðu Kýrus í hávegum. Hann var á sinn hátt ekki síðri herkon­ungur en ýmsir yfir­gangs­seggir Assyr­íu­manna en eftir að hann hafði lagt undir sig lönd tók sann­ar­lega ekki við þar kúgun og harka af því tagi sem Asjúrbanipal, Tígla­þpíleser og fleiri Assyr­íu­kóngar eru frægir fyrir.

Tilskipun um trúfrelsi

Þvert á móti voru Persar á fyrsta og mesta hluta valda­skeiðs síns ann­ál­aðir fyrir mildi og góða stjórn­ar­hætti.

Kýrus mark­aði á margan hátt tíma­mót í stjórn­sýslu forn­aldar, þar sem honum var ber­sýni­lega umhugað um það í alvöru að reka ríkið vel og þannig að vel­ferð þegn­anna væri sem best.

Á þessum sívaln­ingi er yfir­lýs­ing Kýrusar um trú­frelsi þegn­anna.

Hann virti siði, tungu­mál og trú­ar­brögð hinna sigr­uðu þjóða og gaf út sér­staka til­skipun um trú­frelsi, sem Gyðingar nutu ekki síst góðs af.

Stjórn­sýsla hins nýja veldis Írana var afbragð, miðað við sem tíðkast hafði í fyrri stór­veldum forn­aldar. Ríkinu var skipt upp í all­stór héröð og hafði hvert um sig mikla sjálf­stjórn undir stjórn hér­aðs­höfð­ingja eða satrapa, og Kýrus leit­að­ist við að velja hæfa menn í þau emb­ætti en ekki ein­ungis gæð­inga sína.

Utan­ríkis-, her­mál og pen­inga­mál voru svo í höndum höfð­ingja­ráðs og kon­ungs­fjöl­skyld­unnar írönsku.

Gull af eiri

Þá efldi Kýrus mjög vega­kerfi og tryggði öryggi á versl­un­ar­leiðum er bæði efldi stöð­ug­leika og hag­vöxt. Pen­inga­mál, skatt­heimta og mynt­slátta þótti og með ágætum. 

Hófsemi, skyn­semi og virð­ing Kýrusar fyrir fjöl­breyti­leika olli því að þessi íranski fjalla­karl varð, eins og það er orðað á einum stað, „fyrsti ver­ald­legi leið­togi heims­ins sem stjórn­aði heilu heims­veldi með umburð­ar­lyndi og rétt­læt­is­kennd að leið­ar­ljósi“.

Við skulum ekki ganga of langt í að ausa Kýrus lofi. En miðað við svo marga af kon­ungum og ein­völdum forn­aldar, já, eig­in­lega bara miðað við þá flestalla, þá ber hann af eins gull af eiri.

Kýrus mætir ofjarli sínum

En þegar Kýrus var búinn að skipu­leggja ríki sitt, þá fannst honum kjörið að þenja nú ríki sitt meira út. Inni í Mið-Asíu bjuggu „villtir“ þjóð­flokkar sem hann ákvað að leggja næst undir sig hið nýja Íran. Kannski var ástæðan sú að hann vildi koma í veg fyrir ráns­ferðir þeirra inn í írönsk lönd. Kannski var ástæðan ein­fald­lega sú að hann var nú þrátt fyrir allt herkon­ungur og herkon­ungar fara í stríð, það er bara það sem þeir gera, jafn­vel þó þeir reyni svo að hreinsa sæmi­lega til eftir sig.

En lengst inni á sléttum Mið-Asíu mætti Kýrus hinn mikli loks­ins ofjarli sínum. 

Drottn­ing­unni Tómýris.

***

Hér segir frá henni.

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HKG
    Hans Kristján Guðmundsson skrifaði
    Takk fyrir áhugaverða sögu. Hvaða tungumál var þarna notað í samskiptum milli þjóðflokka og þjóða?
    0
    • Illugi Jökulsson skrifaði
      Sæll. Persneska (forn-perneska frá okkar sjónarhóli) var notuð af hinu opinbera og við hátíðleg tækifæri en í flestöllum samskiptum við þjóðir í vesturhluta ríkisins notuðu Persar yfirleitt arameísku.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár