Saga Írans 2: Sólmyrkvi, mannát og uppreisn gegn afa

Í fyrri grein sagði frá fyrsta stór­veldi Írans, Elam. En nú segir frá öðru stór­veldi Írana, ríki Meda, hruni þess og þá rís upp hið þriðja og mesta veldi.

Saga Írans 2: Sólmyrkvi, mannát og uppreisn gegn afa
Kýrus bendir her­mönnum sínum á hvar afi feli sig.

Þar var sögu komið í fyrstu grein um sögu Írans (sem finna má hér) að ýmsar þjóðir og ólíkar byggðu það fjöll­ótta svæði sem við köllum nú Íran en þær mynd­uðu lengi vel ekki öflug ríki nema ein, Elamítar er bjuggu austur af Mesópótamíu (Írak) og öttu gjarnan kappi við hinar vold­ugu menn­ing­ar­þjóðir niðri á þeirri frjósömu sléttu, Súmera, Babýlon­íu­menn og fleiri.

Elamítar höfðu yfir­leitt í fullu tré við íbú­ana í Mesópótamíu þar til hinir grimmu Assyr­íu­menn brutu allt undir sig á sjö­undu öld FT (fyrir upp­haf tíma­tals okkar eða fyrir Krist, sam­kvæmt hefð­bundnum talsmáta). 

Þeir voru frá efstu byggðum Mesópótamíu, höf­uð­borg þeirra var Níníve, stein­snar frá hinni núver­andi borg sem Mósúl heitir við Tígris­fljót.

Elamítar úr sögunni

Árið 646 mætti Asjúrbanipal kóngur frá Níneve til Súsa, höf­uð­borgar Elam, ráð­inn í að hefna þess að Elamítar höfðu nokkru áður stutt Babýlon­íu­menn í árang­urs­lausri vörn þeirra gegn Assýr­ingum.

Asjúrbanipal náði Súsa og hreykti sér af því í áletr­unum að hafa „lagt hana í rúst, eytt hofum hennar, flutt burt líkneski guða íbú­anna og mulið bein kon­unga þeirra“.

Enginn vafi er á að Asjúrbanipal hefur lítt verið að ýkja því með falli Súsa var ríki Elamíta í raun úr sög­unni.

Það gufaði hrein­lega upp og hefur ekki sést síðan.

Fyrsta stór­veldi Írana var því að velli lagt eftir 2.000 ára sögu.

Assyríukóngur deyr

Nú virt­ust Assýr­íu­menn með alla pálma í höndum, en þeir gerðu þau mis­tök að ganga of hart fram í kúgun sinni á sigruðum þjóðum. Þegar Asjúrbanipal dó um 630 kom til átaka um arf­taka hans og Babýlon­íu­menn gripu þá tæki­færið og hófu upp­reisn gegn kúg­urum sínum.

Sú gekk ekki nema miðl­ungi þar til Nabopolassar Babýlon­íu­kóngur gekk í banda­lag við nýtt öfl­ugt ríki sem hafði verið að rísa austur í Íran.

Það voru Medar, indóírönsk þjóð sem hafði á und­an­förnum öldum verið að hreiðra um sig í Zagros-fjöllum norður af Elam.

Upp­haf­lega komu Medar frá norð­ur­hluta fjall­anna í Baktríu og voru framan af und­ir­sátar Assyr­íu­manna, en neit­uðu um síðir að borga þeim skatt sem sýnir að þeir voru orðnir nokkuð stöndugir.

Á þeim árum sem liðin voru síðan Elamítar voru að velli lagðir höfðu Medar í raun inn­byrt leif­arnar af elamískum kröftum og her­valdi og þótt­ust því færir í flestan sjó.

Árið 612 gerð­ist svo hið ótrú­lega – sam­ein­aðir herir Meda og Babýlon­íu­manna náðu Níníve og lögðu borg­ina í rúst. Hinir höt­uðu Assýr­íu­menn voru brytj­aðir niður hvar sem til þeirra náð­ist.

Útrás Írana hefst

Nú varð Meda­veldi á skammri stundu öfl­ug­asta her­veldi Mið­aust­ur­landa og nýtt íranskt stór­veldi. Babýlon­íu­menn réðu neðri hluta Mesópótamíu en Medar efri hlut­anum og skyggðu brátt á veldi Babýlons-borgar. Þetta nýja íranska stór­veldi lagði undir sig fjalla­dal­ina í norðri þar sem þjóð Armena var þegar komin fram og það sótti langt inn í Anatólíu sem nú heitir Tyrkland.

Fræg er saga gríska sagna­rit­ar­ans Heródótusar af því þegar her Cyaxaresar Meda­kon­ungs sótti inn í ríki hinna auð­ugu Lydíu­manna í miðri Anatólíu og hittu þar fyrir her­sveitir Alyattesar Lydíu­kon­ungs.

Grimmi­leg orr­usta hófst og féll fjöldi manns á báða bóga. Í miðjum bar­daga gerð­ist það skyndi­lega að „dagur breytt­ist í nótt […] Þegar Lydíu­menn og Medar sáu það hættu þeir bar­dag­anum og vildu ólmir semja frið“.

Full­trúar beggja gengu svo á rök­stóla og var friður sam­inn. Til að tryggja hann gekk svo dóttir Alyattesar að eiga son Cyaxaresar. 

Almyrkvi á sólu

Hafi þetta í raun átt sér stað, sem er svo sem ekki sér­stök ástæða til að efast um, þá er þessi orr­usta hinna írönsku Meda og Lydíu­manna fyrsti atburður sög­unnar sem hægt er að tíma­setja nákvæm­lega. 

Ríki Meda skömmu fyrir upp­reisn Persa.

Því menn hafa fyrir löngu reiknað út að almyrkvi varð á sólu í miðri Anatólíu laust fyrir sól­setur 28. maí árið 585.  

Þar lauk, ef rétt er, sókn Meda í vest­ur­átt.

Þeir höfðu efni á að vera ánægðir með sig því auk land­vinn­inga í vestri og norðri réðu þeir orðið líka mest­öllu því svæði sem nú heitir Íran.

Og alveg sér­stak­lega réðu þeir öllum vest­ur­hlut­anum, bæði Elam og svo stóru svæði þar suður af sem kallað var Perses. Þar bjuggu náfrændur Meda, indóíranskur ætt­bálkur sem hafði komið frá Baktríu um svipað leyti og þeir eða á árunum 1100-1000 FT.

Kóng dreymir draum

Persar, sem íbúar í Perses voru kall­aðir, voru knáir her­menn og í metum í herjum Meda.

Má dæma það af því að leið­togi Persa fékk að nefna sig kóng og ein­hvern tíma um sama leyti og sól­myrk­vinn batt endi á orr­ustu Meda við Lydíu­menn, þá fékk Kambýses Per­sa­kóngur leyfi til að kvænt­ast Mandönu, dóttur Astya­gesar Meda­kóngs (sonar Cyaxaresar). 

Raunar kunna fornar sagnir sér­staka skýr­ingu á því hjóna­bandi.

Þegar Mandana var barn­ung hafði Astyages dreymt að sonur, er hún myndu eign­ast í fyll­ingu tím­ans, myndi steypa afa sínum af stóli. Astyages gaf stúlk­una þá Kambý­sesi því þótt hann héti Per­sa­kóngur væri hann lít­ill bógur og rólyndur, og sonur hans myndi því varla verða nein ógn afa sínum.

Vel þekkt þjóðsaga

Þegar Kambýses og Mandana eign­uð­ust svo son sem var skírður Kýrus, þá krafð­ist Astyages þess þó til öryggis að dreng­ur­inn yrði bor­inn út. Her­for­ingi sem hann fól það verk­efni vildi hins vegar ekki verða drengnum að bana og hann var því á laun feng­inn hirð­ingjum sem ólu hann upp.

Um síðir frétti Astyages að dreng­ur­inn væri á lífi og sætti sig við að hann ælist upp hjá Kambý­sesi.

Þetta er auð­vitað afbrigði af vel þekktri þjóð­sögu forn­aldar um stór­mennið sem er borið er út en lifir af og sigrar að lokum (Rómúlus og Remus, Móses og fleiri). 

Það er hins vegar stað­reynd að um árið 560 tók Kýrus við sem Per­sa­kóngur að Kambý­sesi föður sinum látnum og fór strax að gera sig gild­andi.

Mið­punktur ríkis Persa var þá að fær­ast norður í átt til Elam frá Perses.

Nýtt stórveldi

Astyages kóngur gerð­ist þá óvin­sælli hjá helstu aðal­s­mönnum Meda, enda þótti hann yfir­gangs­samur og grimmur jafn­vel í garð eigin manna.

Kýrus fékk að lokum við­ur­nefnið hinn mikli.

Þegar Kýrus fór að gera sig lík­legan til að gera upp­reisn gegn afa sínum, þá gengu margir hátt­settir Medar til liðs við hann, enda var hann Medi í móð­ur­ætt, og um 550 sigr­aði Kýrus afa gamla í úrslita­orr­ustu og var þar með orð­inn æðstráð­andi í Meda­veldi.

Hér kemur við sögu önnur þjóð­saga úr fornöld, ekki síður útbreidd en sagan um afreks­mann­inn sem er bor­inn út við fæð­ingu.

Það er nefni­lega sagt að þótt Astyages hafi tekið Kýrus í sátt, er hann upp­götv­aði að dreng­ur­inn hafði ekki verið drep­inn, þá hafi hann samt verið mjög reiður her­for­ingj­anum sem átti að ann­ast drápið á unga­barn­inu.

Hefnd Harpagusar

Sá hét Harpagus og Astyages lét nú myrða son Harpagusar og steikja hann og bauð svo föð­urnum til veislu þar sem stráksi var aðal­rétt­ur­inn.

Harpagus hafði ekki hug­mynd um hvað hann væri að borða, fyrr en eftir á þegar Astyages sagði honum frá því og að þetta væri refs­ing fyrir að hafa óhlýðn­ast kon­ungi sínum.

Harpagus hafð­ist lengi vel ekki að og virt­ist ætla að sætta sig við þessa and­styggi­legu refs­ingu.

Þegar Kýrus gerði hins vegar upp­reisn­ina gegn afa sínum þá stýrði Harpagus stórum hluta Meda­hers­ins í úrslita­orr­ust­unni – og á örlaga­stundu sner­ist Harpagus gegn kon­ungi sínum og gekk til liðs við Kýrus með her­flokka sína.

Þannig vann Kýrus afa sinn, segir sagan.

Mannát í gömlum sögum

Slíkar mann­áts­sögur gengu staf­laust um fornöld­ina og reyndar langt fram á mið­aldir – og dugir þá að minna á Medeu kon­ungs­dóttur frá Kolkis (Georgíu) sem mat­reiddi börn sín og kappans Jasonar og bar á borð fyrir föður þeirra, þegar hann gerð­ist henni frá­hverfur.

Ekki er mikil ástæða til að trúa því að sagan um mannát Harpagusar sé sönn, en þó virð­ist ljóst að sigur Kýrusar á afa sínum staf­aði að veru­legu leyti af því að nokkrir helstu höfð­ingjar Meda gerð­ust unga mann­inum hlið­hollir.

Breyt­ingar þær sem Kýrus kom á, nú þegar hann réði ríki Meda, voru hins vegar svo miklar og afdrifa­ríkar – bæði hvað snertir stjórn­sýsu og menn­ingu, siði og ekki síst trú­ar­brögð – að hvorki Kýrus sjálfur né aðrir litu á hann sem nýjan Meda­kon­ung.

Þvert á móti telst nú annað stór­veldi Írana fallið eftir aðeins um 60 ár en þriðja stór­veldið og það allra mesta risið í stað­inn.

Persía.

***

Hér er svo næsta grein.

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár