Saga Írans 1: Fyrsta ríkið

Íran er nú skot­mark Ísraels og Banda­ríkj­anna. Í þess­ari grein og fáeinum til við­bótar verður saga rík­is­ins rakin. Hér segir frá Elamítum og svo komu nýrrar þjóðar

Saga Írans  1: Fyrsta ríkið
Elamískar konur. Svona voru í hátt og klæða­burði þær fyrstu írönsku konur sem við eigum myndir af.

Íran er fjöll­ótt land og mest eru Zagros-fjöllin sem liggja með­fram öllum vest­ur­jaðri lands­ins. Þau eru um 1.600 kíló­metra löng og hæstu tindar þeirra eru yfir fjög­urra kíló­metra háir. 

Annar meg­in­fjall­garður lands­ins er Alborz, sunnan Kaspí­hafs. Þar er að finna hæsta fjall Írans, Damavand, 5.610 metra hátt.

Íraní fáeinum dráttum

Það er eld­fjall sem telst enn vera virkt þótt það hafi ekki gosið í meira en 7.000 ár. Damavand gnæfir yfir núver­andi höf­uð­borg Tehran sem byggð er í 1.300-1.700 metra hæð.

Súmerar í Mesópótamíu

Alborz-fjöll og Zagros-fjöll ljúkast um víð­áttu­mikla hásléttu í miðju Íran en í aust­ur­hluta land­ins eru svo ýmsir fjall­garðar sem nú marka skil lands­ins og Afganist­ans og Pakist­ans.

Fólk hefur búið í fjöll­unum og á háslétt­unni, sem og á hinni gróð­ur­sælu strönd Kaspí­hafs­ins, frá örófi alda. Fyrir um 5.000 árum reis sið­menn­ing við fljótin miklu handan Zagros-fjalla, Efrat og Tígris. Þar voru Súmerar komnir og sam­skipti fjalla­búa í Íran við þá og síðan aðra íbúa Mesópótamíu (Íraks) höfðu heil­mikil áhrif á þróun mála sér­stak­lega í vest­ur­hluta Írans.

Elamítar engum skyldir

Fyrsta raun­veru­lega ríkið í Íran var risið fyrir 4.700 árum. Það nefnd­ist Elam og var við lýði í 2.000 ár. Elam-búar höfðu mikil sam­skipti við Mesópótamíu en voru þó af alveg sér­stöku þjóð­erni og tungu­mál þeirra var til dæmis ekki vit­und skylt tungum nágranna­þjóð­anna, hvorki í Írak né Íran.

Þeir höfðu sitt eigið trú­ar­kerfi með sínum eigin guðum og athygl­is­vert að gyðjur léku þar stærra hlut­verk en í trú­ar­brögðum nágrann­anna.

Elamítar stund­uðu kvik­fjár­rækt — héldu kindur og geitur ekki síður en naut­gripi — en voru líka mjög flinkir iðn­að­ar­menn og málm­smiðir. Þeir þró­uðu eigið rit­mál á leir­töflum en sorg­lega lítið hefur varð­veist á elamísku.

Rændu guði

Þeir voru dug­miklir her­menn og réð­ust öðru hvoru niður úr fjöll­unum og herj­uðu á Mesópótamíu. Þeir eru taldir ráðið end­an­legum nið­ur­lögum Súmera og fyrir 3.300 árum lögðu þeir undir sig Babýlon og fluttu frægt líkneski af meg­in­guði Babýlon­íu­manna, Mardúk, til höf­uð­borgar sinnar Súsa.

Þótti það skelfi­leg nið­ur­læg­ing fyrir hina frægu Babýon­íu­manna sem höfðu þá um langt skeið verið mesta veldið á svæð­inu.

Fyrir um 2.600 árum þá lutu Elamítar hins vegar í lægra haldi fyrir nýju og grimmu her­veldi úr upp­sveitum Mesópótamíu. Það voru Assýr­ingar og þeir gengu í raun milli bols og höf­uðs á Elamítum sem guf­uðu við það upp úr sög­unni.

Þá hafði hins vegar ýmis­legt mjög afdrifa­ríkt gerst í Íran.

Þjóðflokk langar í ferðalag

Fyrir rúm­lega 4.000 árum lagði þjóð­flokkur einn upp í ferða­lag. Upp­hafs­stað­ur­inn er ekki alveg á hreinu en var senni­lega í Mið-Asíu. Það er að minnsta kosti hin klass­íska kenn­ingin. Aðrir telja að hinn upp­runa­legi þjóð­flokkur hafi búið vestar. En hvað sem því líður fór hann í ferð­lag.

Vænt­an­lega hafa það verið ein­hvers konar lofts­lags­breyt­ingar eða hrun vist­kerfis sem ráku þjóð­flokk­inn af stað. Og ein­hvers staðar á leið­inni skipti flokk­ur­inn sér í tvennt.

Einn hópur hélt í vest­ur­átt og end­aði í Evrópu en annar hélt í suður og end­aði á Indlandi.

Vernd­ar­gripur frá tímum Elamíta.Þeir voru dverg­hagir í gull- og silf­ur­smíði.

Á löngum tíma fjölg­aði svo mjög í báðum hópum að til urðu margar þjóðir en töl­uðu þó allar ýmis afbrigði hinnar upp­haf­legu tungu. Þau sem fóru til Evrópu kall­ast indó­evr­ópsk en hin indóírönsk.

Athugið að þetta er flókin saga og margt á huldu um hana, en nokkurn veg­inn svona var þetta!

Og hóp­ur­inn sem fór til Indlands og gat á end­anum af sér Hindúa, hann skildi sig eftir nokkra ætt­bálka í fjöll­unum í Austur-Íran.

Medar og Persar

Það var svo fyrir um 3.000 árum sem tveir indóíranskir ætt­bálkar þar í fjöll­unum tóku að fikra sig í vest­ur­átt, yfir háslétt­una í miðju Íran og upp í Zagros-fjöllin.

Annar sett­ist að fyrir norðan Elamíta og var þá far­inn að kall­ast Medar. Hinn sett­ist að fyrir sunnan Elam á hrjóstr­ugu svæði við mynni Persaflóa, sem nú heitir.

Sá flói er nátt­úr­lega við þá kenndur því þetta voru Persar.

Og í sögu­legum og alt­ént mál­fræði­legum skiln­ingi eru Persar því frændur okkar Evr­ópu­manna (vissu­lega fjar­skyldir) sem til dæmis Arabar eða Gyðingar eru ekki.

Tækifæri Persa

Og þegar ríki Elamíta féll í duftið fyrir Assýr­íu­mönnum, þá fengu bæði Medar og síðan Persar frá­bært tæki­færi til að láta að sér kveða.

Og það tæki­færi gripu þeir hiks­ta­laust.

En áður hafði annað gerst og raunar enn merki­legra.

Pinikir var ein merkasta gyðja Elamíta.Hún bjó svo vel að vera vængjuð.

Hinn upp­runa­legi þjóð­flokkur í Mið-Asíu hafði ber­sýni­lega trúað á alls­konar nátt­úru­vætti sem svo þró­að­ist í sam­fé­lag guða sem menn­irnir áttu allt undir.

Guðirnir voru allir full­trúar nátt­úru­afla og gátu í raun farið með menn­ina eins og þeim sýnd­ist. Þeir voru duttl­unga­fullir og yfir­gangs­samir við mann­fólkið, hefndu sín á þeim sem sýndu þeim ekki nægi­lega virð­ingu en gátu launað þeim vel sem hlýddu þeim og færðu þeim skikk­an­legar fórnir.

Spámaður kemur fram!

Þetta guða­safn þró­að­ist og breytt­ist í tím­ans rás en samt ekki meira en svo að rætur þess eru enn auð­grein­an­legar í svo ólíkum trú­ar­brögðum sem Ásatrú nor­rænna manna, Ólymps­g­uðum Forn-Grikkja og hinu hindúíska guða­safni.

En ein­hvern tíma meðan indóíranskir þjóð­flokkar bjuggu enn í fjöll­unum í Austur-Íran, kannski í Baktríu, sem sé áður en þeir flutt­ust til Zagros-fjalla, þá kom fram spá­maður eins og spá­mönnum er svo títt.

Og þessi spá­maður átti eftir að breyta öllu í sögu Persa.

Næstu grein má finna hér.

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár