Saga Írans 4: Voldugasta Íranskóngi heimsins drekkt í blóði af hirðingjadrottningu

Kýrus hinn mikli kon­ungur Persa stofn­aði hið þriðja og mesta veldi Írana á sjöttu öld fyrir upp­haf tíma­tals okkar. Hann hefur furðu gott orð á sér sem stjórn­ani en Tómyris drottn­ing Massa­geta vlldi þó ekk­ert með hann hafa.

Saga Írans 4: Voldugasta Íranskóngi heimsins drekkt í blóði af hirðingjadrottningu
Þótt flest sé á huldu um Tómyris drottn­ingu, þá er þó nokkuð ljóst að svona gekk hún ekki til fara. Svona sá hol­lenski málar­inn Peter Paul Rubens það hins vegar fyrir sér þegar hún drekkti höfði Kýrusar í blóði – Rubens notar skál en ekki skinn­skjóðu eins og Heródótus talar um.

Þar var komið sögu (hér síð­ustu grein hér) að Kýrus Kambý­ses­ar­son hafði hrifsað völdin í Íran af afa sínum árið 559 FT (fyrir upp­haf tíma­tals okkar) og stofnað nýtt veldi, Persa­veldi. Hann var af ætt­bálki Persa í föð­ur­ætt og Meda í móð­ur­ætt. Kýrus hafði svo stækkað ríkið með því að leggja undir sig alla Anatólíu (Tyrkland) og svo ríki Babýlons-manna í Mesópótamíu (Írak) en því fylgdu auk þess Sýrland, Fönikía (Líbanon) og Palest­ína.

Eftir um þrjá ára­tugi á valda­stóli sneri Kýrus sér að hér­uðum sínum í austri en þar – senni­lega í Baktríu – voru Persar raunar upp­runnir áður en þeir flutt­ust til Vestur-Írans kringum árið 1000 FT.

Villimenn?

Þótt Kýrus væri þá kom­inn um sjö­tugt var ekki úr honum allur þróttur enn og hann byrj­aði að leggja undir sig ýmis svæði kringum Baktríu. Margt er á huldu um þessar her­ferðir og hvað vakti í raun fyrir Kýrusi – var það ein­skær græðgi í fleiri lönd eða var hann að bregð­ast við ráns­ferðum íbúa inn á lendur sem Medar og síðan Persar höfðu kastað eign sinni á?

Íbúarnir til­heyrðu flestir indóírönskum hirð­ingja­þjóðum rétt eins og Persar sjálfir höfðu gert upp­haf­lega og voru alls ekki frum­stæðir „villi­menn“ miðað við þá, ef ein­hver skyldi nú halda það. Þarna inni á sléttum Mið-Asíu bjuggu ætt­flokkar svo­nefndra Skýþa og þar á meðal, skrif­aði gríski sagna­rit­ar­inn Heródótus, var þjóð Massa­geta.

Persakóngur hryggbrotinn

Kýrus ein­setti sér að vinna Massa­geta og próf­aði fyrst að gera það með frið­sam­legum hætti. Svo vildi til að kon­ungur Massa­geta var nýlát­inn og ekkja hans Tómyris ríkti sem drottn­ing yfir sléttu­búum.

Kýrus lét nú gera henni orð og bað hana gift­ast sér en drottn­ing hrygg­braut hann umhugs­un­ar­laust, enda kvaðst hún gera sér fulla grein fyrir að hann girntist ekki hana, heldur land hennar.

Og hún bað hann láta sér nægja að stýra sínu eigin landi en leyfa henni að stýra sínu í friði.

Ríkis Kýrusar um það leyti sem hann lést.Heiti nútíma­ríkja eru skráð þarna með rauðu. Ekki er vitað nákvm­lega hvar Kýrus féll en sé eitt­hvað hæft í sögu Heródótusar yfir­leitt, þá hefur það að lík­indum gerst nokkuð í námunda við rauða hring­inn.

Ljóst er því að þótt Kýrus og hið Persa­veldi hafi gott orð á sér í sög­unni og hafi alls ekki kúgað her­teknar þjóðir illi­lega, svo ýmsar þjóðir töldu raunar skárra en ekki að til­heyra Persa­veldi, þá voru aðrar sem vildu heldur halda frelsi sínu.

Og þar á meðal voru ber­sýni­lega Massa­getar.

Kýrus lét sér ekki segj­ast og stefndi nú miklum her til lands Massa­geta sem bjugg­ust til varnar.

Annálaðar bogaskyttur

Raunar sneru þeir vörn í sókn, enda ann­ál­aðir her­menn og boga­skyttur svo að rómað var, eins og oft var raunin um hirð­ingja­þjóðir. Horfði um stund ekki vel fyrir Persum.

En Kýrus lagði þá kæn­lega gildru fyrir Massa­geta, og fylgir sög­unni að gildr­una hafi spennt eng­inn annar en Krösus Lydíu­kóngur sem hafi verið í ráð­herra­ráði Kýrusar. Að ráði Krösusar skip­aði Kýrus her sínum að hörfa skyndi­lega og þegar Massa­getar sendu stóran her til að kanna hvað hefði gerst, þá komu þeir að her­búðum Grikkja yfir­gefnum.

Þar hafði verið búið til veislu og voru til­búin mat­föng mikil og vín­föng voða­leg.

Massa­getar, undir stjórn Spargapísesar sonar Tómyris, sett­ust þá nátt­úr­lega að veisl­unni.

Viltu fylli þína af blóði?

Og þar sem þessir sléttu­menn voru alls ekki vanir vínum, þótt þeir drykkju gerjaða hrossa­mjólk sér til nautar (og reyktu ef til vill val­múa!), þá drukku þeir sig nú dauða­drukkna og steinsofn­uðu svo allir eftir dýr­legan drykkju­skap.

Hermenn Massa­getavoru engin lömb að leika sér við eins og Persar komust að. Þessi dáti var af bræðra­þjóð Massa­geta er bjó í hinu núver­andi Kasakstan.

En árla morg­uns sneru Persar aftur og brytj­uðu nú her­menn Massa­geta niður þar sem þeir lágu ofurölvi en hand­tóku suma, þar á meðal Spargapíses. Er Tómyris frétti þetta gerði hún Kýrusi þegar orð og krafð­ist þess að hann léti son hennar lausan.

„En gerir þú það ekki,“ bætti hún við, „þá sver ég við sól­ina, guð Massa­geta, að þar sem þig þyrstir svo í blóð þá skal ég gefa þér fylli þína af því.“

Kýrus hafði kröfu drottn­ingar að engu og þegar Sparapíses vakn­aði úr áfeng­is­vímunni og sá hvað orðið var svipti hann sig lífi af skömm.

Höfuðlaus konungur

Tómyris kom nú með ógrynni liðs og réð­ist gegn Kýrusi. Eftir ógur­lega orr­ustu beið íranski her­inn ósigur, ekki síst fyrir örva­hríð hirð­ingj­anna, og meðal þeirra sem féllu var Kýrus sjálfur.

Tómyris drottn­ing lét nú fylla skinn­skjóðu af manna­blóði og þegar lík Kýrus fannst í valnum var höfuð hans höggvið af búknum og því komið fyrir í skjóð­unni.

Og mælti Tómyris þá eftir Kýrus hinn mikla á þessa leið:

„Þótt ég lifi og hafi sigrað þig, þá hefur þú grafið undan mér með því að svipta mig syni sínum með kænsku­brögðum, en líkt og ég hót­aði þér, þá mun ég nú í stað­inn sjá þér fyrir fylli þinni af blóði.“

Þar með var Kýrus hinn mikli allur.

Heródótus og heimildagildið

Taka verður fram að engar íranskar eða pers­neskar sam­tíma­heim­ildir stað­festa þessa frá­sögn Heródótusar um enda­lok kon­ungs­ins knáa. Aðrar grískir heim­ildir eru þó til sem segja Kýrusar hafa dáið eftir bar­daga við aðrar miða­sískar þjóðir eða jafn­vel ind­verskar.

Og ber að geta þess að hvergi nema hjá Heródótusi er yfir­höfuð minnst á þjóð sem kölluð hafi verið Massa­getar.

En hann sat raunar að skriftum aðeins um 100 árum eftir dauða Kýrusar. Það er nán­ast sam­tíma­heim­ild í forn­ald­ar­sögu.

Svo þótt Heródótus hafi ekki verið sagn­fræð­ingur á nútíma­vísu og hafi aug­ljós­lega verið heldur trú­gjarn, þá er samt engin ástæða til að efast um allt sem hann segir.

Undarleg þögn

Í pers­neskum heim­ildum ríkir raunar und­ar­leg þögn um dauða Kýrusar. Meira að segja á sjálfu graf­hýsi hans er ekki minnst á hvernig dauða kon­ungs­ins bar að höndum. Það bendir á sinn hátt til þess að enda­lok hans hafi ekki þótt nógu hetju­leg til að þeim yrði haldið á lofti.

Og það rennir vissu­lega stoðum undir að hann gæti hafa dáið í skærum við ein­hverja „frum­stæða“ ætt­bálka í Mið-Asíu. Persum hafi ekki þótt vegs­auki að því fyrir mann­inn, sem hafði sigrað Meda, Babýlon­íu­menn, Lydíu­menn og grísku borg­irnar í Anatólíu, að hafa lotið í lægra haldi fyrir sléttu­hirð­ingjum.

Þess má svo að lokum geta að fyrir fimm árum flutti ég þátt af Frjálsum höndum um Persíu og las ýmis­legt skrýtið og skemmti­legt sem Heródótus hafði um Kýrus og ríki hans að segja.

Hlaðvarp Morg­un­blaðs­ins varð­veitir þátt­inn hér!

En hér er svona næsta grein sem fjallar um frum­leg­asta trú­ar­höf­unda hinna írönsku þjóða, og jafn­vel heims­ins alls: Zaraþústra.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár