Saga Írans 5: Kameldýrakarl frá Baktríu, frumlegasti trúarhöfundur sögunnar

Saga Írans 5: Kameldýrakarl frá Baktríu, frumlegasti trúarhöfundur sögunnar
Eld-hof eða eld-hús í Yazd í Íran. Þarna má sjá eitt helsta trú­ar­tákn Zaraþústra-trú­ar­innar sem yfir­leitt sem talið sýna Ahura Mazda og sólar-hring­inn.

Í síð­ustu grein (sjá hana hér) var þar komið sögu að stofn­andi Persa­veldis, Kýrus hinn mikli, var horf­inn úr heimi. Það gerð­ist árið 530 FT en áhrifa hans átti eftir að gæta mjög lengi enn og má vel segja að Kýrus sé enn afar vold­ugur í hug­ar­heimi Írana.

En nú spóla ég aðeins aftur í tím­ann og dreg fram annan Írana sem var jafn­vel enn áhrifa­meiri þegar fram í sótti og er senni­lega ein­hver merkasti Írani sög­unnar bæði fyrr og síðar.

Zaraþústra.

Hver var Zaraþústra? Von að spurt sé. Flest allt varð­andi þennan mann er hulið mistri þjóð­sagna sem goð­sagna, svo sumir hafa jafn­vel leyft sér að efast um að hann hafi verið til.

En það er óþarfi. Zaraþústra var svo frum­legur og óvæntur hug­s­uður að eng­inn hefði getað fundið hann upp.

Hann hlýtur að hafa verið til.

Eins og ég fjall­aði um í fyrstu grein­inni um sögu Írans (sjá hér) þá er upp­runi Írana ein­hvers staðar í Mið-Asíu eða millum Kaspí­hafs og Svarta­hafs og þaðan dreifð­ust skyldar þjóðir um víð­áttu­mikið svæði, allt frá Íslandi (að lokum) til Indlands.

Duttlungafullir guðir

Þessar þjóðir fluttu með sér trú­brögð sín sem voru í grunn­inn fjöl­gyð­is­trú, guð­irnir voru hold­gerv­ingar nátt­úru­afla, þeir gerðu miklar kröfur um fórnir sér til handa og voru í flesta staði mjög mann­legir í hugsun og hátt­erni, þar á meðal afar duttl­unga­fullir.

Og guð­irnir voru alls ekki til fyr­ir­myndar í sið­ferð­is­málum. Þeir voru sem sé ekki „góðir“ í neinum skiln­ingi.

Hvernig fólki farn­að­ist í líf­inu réð­ist fyrst og fremst af því hvort því tókst að koma sér í náð­ina hjá guð­unum. „Hið illa“ var ekki til sem sér­stakt afl heldur staf­aði allt illt sem fyrir kom umfram af óreiðu trufl­unum á sam­bandi 

Einhvern tíma um það bil í kringum árið 1000 FT (kannski svo­lítið fyrr), þá bjó indóíranskur ætt­bálkur í fjöll­unum nyrst í Baktríu eða kannski alla leið norður í Tajikistan sem nú heitir.

Sá-sem-á-gráa-hesta og Mjaltastúlka

Nákvæm­lega hvar og hvenær er sem sagt ekki vitað en hjá þessum ætt­bálki kom spá­mað­ur­inn Zaraþústra fram.

Baktría er ekki innan núver­andi landamæra Íransog hefur raunar sjaldn­ast verið það, en var þó tryggi­lega innan íransks menn­ing­ar­svæðis í aldir.

Ævi hans er sveipuð mót­sagna­kenndum þjóð­sögum sem hefur litla þýð­ingu að reyna að elt­ast við. Samkvæmt einni þeirra var Zaraþústra höfð­ingja­sonur sem steig fram um þrí­tugt og ger­breytti trú þjóðar sinnar, bæði að inni­haldi og trú­ar­siðum öllum.

Það er reyndar engin sér­stök ástæða til að ætla að hann hafi verið höfð­ingi. Nafnið hans virð­ist þýða „kamel­dýra­hirðir“ (kannski „sá-sem-á-geð­vond-kamel­dýr“) og nöfn for­eldra hans (sem er að finna í einni sæmi­lega sann­fær­andi heim­ild) munu þýða „sá-sem-á-gráa-hesta“ og „mjalta­stúlka“.

Þessar nafna­túlk­anir eru þó ekki alveg óum­deildar.

Mikil bylting

Sem sagt venju­leg fjöl­skylda af ætt­bálki hirð­ingja eins og indó­evr­ópsku og indóírönsku ætt­bálk­arnir voru upp­haf­lega.

Óhætt er að segja að nýja trú Zaraþústra, sem hann tók að boða þjóð sinni eða ætt­bálki, var mikil bylt­ing. Í stað fjöl­gyð­is­trú­ar­innar var í raun um að sið­ferði­lega ein­gyð­is­trú, þótt málið væri raunar ögn flókn­ara en það. Zaraþústra boð­aði trú á einn algóðan skap­ara sem hann kall­aði Ahura Mazda er þýðir í raun „hinn vitri herra“.

Í fyrsta sinn – eftir því sem best er vitað – kom til sög­unnar guð sem var ekki aðeins mátt­ugur eða almátt­ugur, heldur líka góður og hann vildi ekki aðeins láta þjóna sér með und­ir­gefni og hlýðni, heldur einnig með því að menn­irnir tækju líka upp góða siðu og gott líf­erni. 

Hvers vegna gengur ekki allt upp?

Og mað­ur­inn bar per­sónu­lega ábyrgð á sjálfum sér og því að breyta í sam­ræmi við óskir hins góða guðs – góðar hugs­anir, góð orð og góð verk, þetta þrennt átti að vera þunga­miðjan í lífi fylgj­enda Ahura Mazda.

En um leið og gerð er krafa um sið­legt líf og gott, þá rís spurn­ingin, hvers vegna gengur ekki allt upp hjá þeim sem fylgja kenn­ingum Zaraþústra?

Hvers vegna er hið illa til? var í raun sú spurn­ing sem Zaraþústra stóð nú frammi fyrir.

Fyrri trú­ar­brögð höfðu svarað þeirri spurn­ingu með því að um duttl­unga guð­anna væri að ræða. Þeim hefði gramist að fólk sýndi þeim ekki nægi­lega und­ir­gefni, færði ekki fram réttu fórn­irnar, eða eitt­hvað þvíum­líkt. Siðlegt líf­erni fólks sjálfs skipti þessa guði í raun litlu sem engu máli.

Hið illa

En var hins vegar höf­uð­atriði í hinni nýju trú Zaraþústra. Til þess að skýra hið illa mót­aði hann hug­mynd um fjanda guðs, Angra Mainyu eða Ahriman, illt afl sem leit­ast við að eyði­leggja, brjóta niður og ginna fólk af hinni réttu og góðu leið.

En til þess að halda sér á réttu leiðnni er ekki nóg að sýna Ahura Mazda und­ir­gefni og hlýðni heldur varð mað­ur­inn sjálfur að taka ábyrgð á hegðun sinni og sið­ferði.

Hann hefur sem sagt frjálst val og getur með hugs­unum, orðum og gjörðum stuðlað að vexti hins góða. Krist­in­dóm­ur­inn tók mjög svip­aða hugsun upp frá trú Zaraþústra en þó var mik­il­vægur munur á.

Ekki refsiglaður guð

Í trú Zaraþústra var guð ekki ref­sigl­aður eins og guð krist­inna manna var og er enn í sumum kirkju­deildum. Ef fólk villt­ist frá leið Ahura Mazda stóð hann ekki yfir því með svip­una á lofti eins og guð hinna kristnu gerði lengst af.

Fólk bar bara sjálft ábyrgð á sið­ferði­legri veg­ferð sinni og að stand­ast til­raunir Ahrimans til að leiða það afvega.

Athugið að ofan­greindur texti er tölu­verð ein­földun á trúnni sem Zaraþústra boð­aði. Hún varð líka flókn­ari með árum og öldum og fleiri goð­mögn blönd­uðu sér í viður­eign Ahura Mazda og Ahrimans.

En í höf­uð­atriðum var þetta nokkurn veg­inn svona og það er auð­velt að færa rök að því að Zaraþústra hafi verið og sé enn ein­hver frum­leg­asti og rót­tæk­asti trú­ar­bragða­höf­undur sög­unnar.

Það er til dæmis óhætt að segja að Zaraþústra, sem sneri bein­línis á hvolf fyrri trú­ar­hug­myndum síns fólks, var í sjálfu sér frum­legri en til dæmis Jesúa frá Nasaret eða Páll post­uli, sem báðir unnu innan trú­ar­hefðar Gyðinga (sem þá hafði reyndar orðið fyrir meiri eða minni áhrifum frá trú og speki Zaraþústra).

Því svo mikil var sú umbylt­ing sem Zaraþústra stóð fyrir – í trú­ar­legri hugsun, sið­ferði­legum þanka­gangi og helgi- og trú­ar­siðum öllum.

Trúin breiðist út

Hvernig hin nýja trú breidd­ist út frá Baktríu og/eða Mið-Asíu er ekki öld­ungis á hreinu, frekar en svo margt annað sem varðar upp­runa þess­ara trú­ar­bragða.

Séu gerðar myndir af Zaraþústraer hann yfir­leitt sýndur svona. Ekki er vitað hver örlög hans urðu en flestar þjóð­sögur herma að hann hafi lifað til elli en þá verið drep­inn af fylg­is­manni gömlu trú­ar­innar sem hann bylti.

Persar fluttu sig frá Baktr­íu­fjöllum vestur á bóg­inn til Perses við mynni Persaflóa, en það er alls ekki víst að þeir hafi þá verið farnir að aðhyll­ast þessa nýju trú.

Svo mikið er víst að Medar, syst­ur­þjóð Persa (sjá fyrstu grein­ina um sögu Írans), gerðu það áreið­an­lega ekki er þeir flutt­ust vestur.

Það er í raun alls ekki ósenni­legt að Persar hafi þá fyrst kom­ist í kynni við trú Zaraþústra eftir að þeir urðu stór­veldi á tíð Kýrusar mikla og lögðu undir sig Baktr­íu­fjöllin og aðrar slóðir þar eystra.

Svo mikið er víst að þegar Íranir hófu næstu útrás sína, þá var Zaraþústra með í för – að minnsta kosti í anda.

Það var þegar Persar réð­ust inn í Grikk­land. Í næstu grein kemur meðal ann­ars að frægri orr­ustu við Maraþon ...

***

Hér er sú grein.

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár