Saga Írans 6: Áfallið mikla við Maraþon – Νενικήκαμεν!

Persar virt­ust ósigr­andi og Daríus verð­skuld­aði ekki síður en Kýrus frændi hans nafn­bót­ina „hinn mikli“. En nokkur fámenn borg­ríki í Grikk­landi voru farin að fara veru­lega í taug­arnar á Persum.

Saga Írans 6: Áfallið mikla við Maraþon – Νενικήκαμεν!
Pers­neska hern­að­ar­vélin hafði verið nær ósigr­andi þangað til hún lenti and­spænis hinum fag­ur­bryn­hos­uðu Akkeum – eins og Hómer orð­aði það.

Þar var komið sög­unni af Íran að Kýrus stofn­andi Persa­veldis féll í val­inn langt austur í Mið-Asíu árið 530 FT. (Sjá um það hér.) Þá tók sonur hans Kambýses 2. við af honum. Hann vildi auka við dýrð veld­is­ins og árið 525 hélt hann með her gegn Egiftum.

Egiftar höfðu haldið úti einu elsta og helsta menn­ing­ar­ríki heims­ins í 2.000 ár og lengst af þess tíma jafn­framt verið eitt öfl­ug­asta her­veldi heims­ins.

Egiftaland ekki svipur hjá sjón

En í 500 ár hafði Egifta­landi hnignað smátt og smátt. Árið 525 urðu Egiftar því fremur auð­veld bráð fyrir hinn met­orða­gjarna Kambýses sem var ráð­inn í að sanna að hann væri ekki minni maður en Kýrus faðir hans.

Þegar hann var svo kom­inn til Egifta­lands frétti hann af því af í suðri væri annað land auð­ugt og ríkt er nefnd­ist Eþíópía og þá tók hann að ágirn­ast það. Her­ferðin til Eþíópíu mistókst hins vegar hrapal­lega og þótt Kýrus næði stóru flæmi þar sem nú er Súdan, þá varð hann að lokum uppi­skroppa með vistir er enn sunnar varð komið og varð að snúa við.

Niðurfelling skatta

Þegar Kambýses kom aftur til Egifta­lands frétti hann að Bardía bróðir hans hefði gert upp­reisn gegn honum og fjöldi máls­met­andi höfð­ingja gengið til liðs við hann.

Ástæður þess hve margir gengu til liðs við upp­reisn­ar­mann­inn voru sagðar þær að Kambýses hefði verið alltof duttl­unga­fullur stjórn­ar­herra og auk þess misst tengslin við valda­kjarn­ann heima í Íran vegna fjar­veru sinnar í nokkur ár sam­fleytt eða síðan hann hélt brott til Egifta­lands.

Mestu mun þó hafa ráðið að upp­reisn­ar­mað­ur­inn lof­aði að inn­heimta enga skatta í þrjú ár.

Bróðurmorð

Kambýses sá í hendi sér að þetta var einn blekk­ing­ar­leikur því hann hafði sjálfur látið drepa Bardía á laun, er hann und­ir­bjó ferð sína til Egifta­lands, af því hann ótt­að­ist einmitt að litli bróðir reyndi að hrifsa af honum völdin.

Daríus var að sumu leyti enn aðsóps­mesti stjórn­andi en Kýrus, stofn­andi íranska stór­veld­is­ins.

Í raun­inni var þessi gervi-Bardía prestur einn sem Gaumata hét og var medískur að ætt, ekki Persi. Honum tókst ber­sýni­lega að blekkja furðu marga furðu lengi. Aðrir, sem vissu sann­leik­ann, þorðu ekki að stíga fram því Gaumata sýndi and­stæð­ingum sínum strax mikla hörku.

Athygl­is­vert er að Gaumata virð­ist hafa notið mest stuðn­ings í Medíu, Persíu og Baktríu, sem sé í hinu núver­andi Íran, eða þeim aust­ur­hluta hins nýja heims­veldis er fætt hafði Persa sjálfa.

Hvað kom fyrir kónginn?

Kambýses lagði af stað heim­leiðis til að ganga á hólm við gervi-Bardía en er hann var kom­inn til Sýrlands dó hann snögg­lega. Sumar heim­ildir að hann hafi svipt sig lífi af örvænt­ingu yfir því hvernig komið væri, aðrar að hann hafi verið myrtur en lík­leg­ast er að hann hafi ein­fald­lega fengið blóð­eitrun eftir að hafa sært lít­il­lega á fæti.

Nú tók við óvissu­tími á æðstu stöðum. Gaumata virt­ist hafa alla þræði í hendi sér en sjö pers­neskir aðals­menn ákváðu að við búið mætti ekki standa. Þeir héldu á fund Gaumata og í kast­ala einum í Medíu hjuggu þeir hann í spað.

„Endurreisti sannleikann“

Einn þeirra, Daríus að nafni, tók sér síðan tign kon­ungs yfir rík­inu í krafti þess að hann var fjar­skyldur frændi Kýrusar hins mikla. Þeir voru báðir af svo­nefndi Aka­menída, en ættin var kennd við for­föður sinn Aka­menídes nokkurn.

Það var síðla árs 522 sem Daríus lýsti sig kon­ung „með vilja Ahura Mazda“ eins og segir í einni áletrun frá þeim tíma. Það er í raun fyrsta áþreif­an­lega sönnun þess að trú Zaraþústra var orðin eins konar rík­is­trú í Persa­veldi. Og Daríus kvaðst hafa „end­ur­reist sann­leik­ann“.

Um upp­haf trú­ar­innar skrif­aði ég í gær, sjá hérna.

Skylt er að geta þess að þó Zaraþústra-trúin yrði smátt og smátt æ fyr­ir­ferð­ar­meiri í hug­mynda­heimi rík­is­ins var þó ætíð fullt trú­frelsi við lýði í Persa­veldi og nálega aldrei amast neitt við ann­ari trú en Zaraþústra hafði boðað.

Uppreisnir um allt

Daríus þurfti að byrja á því að bæla niður upp­reisnir sem brut­ust út um nálega allt ríki hans. Þrátt fyrir að Persar væru milt yfir­vald miðað við sum fyrri (og síð­ari!) heims­veldi vildu þó margar þjóðir greini­lega vera án þeirra. 

En það kom ekki til greina. Daríus var í raun­inni, líkt og Kýrus, mildur stjórn­andi sem lagði sig í raun­inni fram um að efla vel­ferð þegna sinna en hann var þó alltaf og ævin­lega sann­færður um að ekki kæmi annað til mála en þeir væru undir pers­neskri stjórn.

Og að Persum væri guð­legur réttur til að ríkja yfir öðrum þjóðum.

Daríus var ekki síðri upp­bygg­ing­ar­maður en Kýrus. Hann efldi mjög skipt­ingu rík­is­ins í fylki þar sem satrap­arnir, eða fylk­is­stjór­arnir, höfðu heil­mikla sjálf­stjórn.

Konungsvegurinn

Hann lét sam­ræma og skrá­setja lög og skatt­heimtu í fylkj­unum og kom þannig á meiri festu og fyr­ir­sjá­an­leika í stjórn rík­is­ins. Til að greiða fyrir við­skiptum og styrkja efna­hags­lífið inn­leiddi hann sam­eig­in­lega mynt, hinn svo­nefnda dar­íus úr gulli og silfri.

Persa­veldi var víð­áttu­mesta ríki heims­ins er Persar gerðu þau mis­tök að fara að abb­ast upp á grísku borg­ríkin á meg­in­land­inu. – Þegar best lét náði Persa­veldi yfir eða inn í eft­ir­talin nútíma­ríki: Líbíu, Egifta­land, Súdan, Eritreu, Eþíópíu, Djíbútí, Sómalíu, Óman, Sádi Arabíu, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmin, Katar, Bahrein, Kúveit, Jórdaníu, Ísrael, Palest­ínu, Líbanon, Sýrland, Írak, Kýpur, Tyrkland, Grikk­land, Norður Makedóníu, Búlgaríu, Rúmeníu, Moldovu, Úkraínu, Rússland, Aserbædjan, Armeníu, Georgíu, Kasakstan, Túrk­menistan, Úsbekistan, Kyrgyzstan, Tajikistan, Afganistan, Pakistan, Kína, Indland – og Íran! – Íranir réðu því meiri eða minni hlutum af 40 nútíma­ríkjum, eða einum fimmta af öllum sjálf­stæðum ríkjum heims 2025, þótt hlutur þeirra af löndum eins og Rúss­landi, Kína og Indlandi væri vissu­lega ekki stór.

Hann skip­aði fyrir lagn­ingu vega­kerfis sem tengdi hin fjar­lægu fylki saman. Frægastur veg­anna er Kon­ungs­veg­ur­inn sem lá frá höf­uð­borg­inni Susa til Sardeis vest­ast í Anatólíu (Tyrk­landi), og kom einnig upp kerfi hrað­boða sem gerði mögu­legt að flytja boð leift­ur­hratt um allt veldið. Póst­þjón­ustan mun hafa verið til fyr­ir­myndar.

Daríus  lét reisa stór­feng­leg hof og hallir, einkum í Súsa, en líka í nýrri borg er hann hóf að reisa, Persepolis sem skyldi verða and­leg og trú­ar­leg mið­stöð rík­is­ins fremur en stjórn­sýslu­mið­stöð.

Útþenslumaður

Daríus reynd­ist þannig vera mik­ill skipu­lags­kall og umbóta­maður, sem leit­að­ist við að nið­ur­njörva völd Persa í öllu veld­inu með öfl­ugri stjórn­sýslu, skil­virkum lögum, sveigj­an­legu efna­hags­lífi og miklum verk­legum fram­kvæmdum.

Hann verð­skuldar ekki síður en Kýrus nafn­bót­ina „hinn mikli“ enda var fljót­lega farið að kalla hann það.

En Daríus var líka útþenslu­maður og her­for­ingi. Hann sótti inn í Mið-Asíu, þar sem Kýrus hafði verið að velli lagður, og treysti tök Persa langt inn í Indland (aðal­lega hið núver­andi Pakistan).

Hann hugð­ist líka kné­setja hina stoltu ridd­ara­þjóð Skýþa sem bjuggu í Úkraínu og bjuggu yfir auð­ugum gull­námum auk róm­aðrar færni í hesta­mennsku. Sú inn­rás heppn­að­ist ekki sem skyldi en Daríus náði þó norð­ur­strönd Svarta­hafs Krím­skaga, Búlgaríu og Makedóníu.

Heill floti ferst

Daríus virð­ist ekki endi­lega hafa haft í huga að ráð­ast inn á Grikk­land sjálft en eftir að nokkrar grískar borgir á Anatól­íu­strönd Eyjahafs gerðu upp­reisn árið 494 gegn yfir­ráðum Persa og fengu stuðn­ing frá borg­ríkj­unum Eretríu og Aþenu handan hafs­ins, þá ákvað hann að hann yrði að refsa Grikkjum.

Innrás Daríusar.

Árið 492 sendi Daríus því flota yfir Eyja­hafið en hann fórst í miklu ofviðri undan ströndum Makedóníu.

Tveim árum seinna sendi Per­sa­kóngur annan flota og komst hann klakk­laust yfir hið fagra en við­sjála Eyjahaf. Daríus stýrði hernum ekki sjálfur heldur beið frétta í Súsa.

Sendiboði hleypur til Spörtu

Fyrst gekk allt eins og í sögu og 30.000 manna her hans lagði Eretríu í rúst ein­hvern fyrstu dag­ana sept­em­ber.

Síðan skyldi mar­serað til Aþenu.

Aþen­ingar höfðu aðeins 10.000 manna lið og gerðu nú út sendi­boða til borg­rík­is­ins Spörtu á Pelóps­skaga. Spart­verjar voru róm­uð­ustu her­menn allra Grikkja. Sendi­boð­inn, Phil­ippidés að nafni, hljóp með liðs­bón Aþeninga 240 kíló­metra leið yfir stokka, steina og veg­leysur á aðeins tveim sól­ar­hringum.

Þegar hann náði til Spörtu kváð­ust Spart­verjar gjarnan vilja hjálpa en trú þeirra bann­aði þeim að senda her af stað fyrr en á fullu tungli og fullt tungl var ekki fyrr en 7. sept­em­ber.

Foringi Grikkja þekkti vel til Persa

Strax dag­inn eftir myndu þeir leggja af stað. Phil­ippidés hljóp til baka og tjáði Aþen­ingum þetta og þeir sáu að þeir yrðu einir að glíma við ógn­ar­vald Persa. Spart­verski her­inn var vel þjálf­aður en þung­vopn­aðir dát­arnir yrðu aldrei nógu fljótir norður til Aþenu.

Því yrðu Aþen­ingar einir að standa gegn ógn­ar­valdi Persa. Og það gerðu þeir þannig að frægt varð og frægt er enn í dag.

Þann 12. sept­em­ber gengu 10.000 Grikkir fylktu liði gegn 30.000 Persum á sléttu ofan við sjó­inn norð­austan Aþenu. Sléttan var kennd var við lítið þorp þar, Maraþon.

Þúsund af hinum tíu þús­und grísku her­mönnum komu raunar frá smá­borg­inni Plataeu, skammt frá Aþenu svo því sé nú til haga haldið.

Það var Milti­ades nokkur sem leiddi aþenska her­inn og þótti sýna mikla her­kænsku og hug­rekki. Hann þekkti raunar vel til Persa því hann hafði gegnt virð­ing­aremb­ætti fyrir þá í borg­inni Kher­so­nesos i Þrakíu (Búlgaríu) og barist meira að sega með pers­neska hernum um tíma. Þekking hans á pers­neskum hern­að­ar­að­gerðum reynd­ist lyk­il­at­riði.

Gildra Miltiadesar

Milti­ades lagði til að ráð­ist yrði strax á Persa á slétt­unni, áður en þeir kæmust til skipa sinna og gætu ógnað Aþenu af sjó, eins og þeir ætl­uðu sér. Hann skipu­lagði her­sveit Aþeninga þannig að hún var öfl­ug­ust á vængj­unum til hlið­anna en veik­ust í miðj­unni  — og þegar miðjan gaf eftir og Persar rudd­ust þar fram, þá lok­uð­ust vængirnir um Persana eins og gildra.

Grískur hop­lít­arnirvoru svaka­leg­ustu stríðs­menn síns tíma.

Þeir voru umkringdir hinum þung­vopn­uðu grísku hop­lítum á alla vega.

Þetta var þá óvenju­leg og snjöll aðferð í hern­aði og tryggði Aþen­ingum sigur gegn mun fjöl­menn­ari her Persa.

Sagt var að 6.400 Persar hefðu verið brytj­aðir niður í svörð­inn á Maraþon-slétt­unni en aðeins 192 Grikkir látið lífið.

Hið fyrsta Maraþon-hlaup

Hvort sem þær tölur eru réttar eða ekki, þá hafði hið mikla pers­neska her­veldi beðið þarna auð­mýkj­andi ósigur.

Löngu seinna var sú saga sögð að Milti­ades hefði gert út sendi­boða til Aþenu að til­kynna um sig­ur­inn og sá hljóp af svo miklu ofur­kappi hina 42 kíló­metra leið að þegar hann komst til Aþenu og náði að hrópa upp: „Νενικήκαμεν! Við höfum sigrað!“ – þá hneig hann dauður niður.

Sumar heim­ildir segja að þessi hlaup­ari hafi líka verið Phil­ippidés.

En hvað sem satt er um það, þá gramd­ist Daríusi mjög þegar hinir róm­uðu hrað­boðar hans færðu honum frétt­ina af orr­ust­unni við Maraþon alla leið til Súsa.

Og hann sór þess eið að þess­arar nið­ur­læg­ingar skyldi hefnt – grimmi­lega.

Og þegar var farið að safna í nýjan her úr öllum hornum heims­veld­is­ins.

Tíu árum seinna hófst árásin.

Frá því segir hérna!

 

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár