Hann var búinn að öskra á hjálp

Hjalti Snær Árnason hvarf laug­ar­dag­inn 22. mars. For­eldrar hans lásu fyrst um það í fréttum að hans væri leitað í sjónum, fyrir það héldu þau að hann væri bara í göngutúr. En hann hafði liðið sál­arkvalir, það vissu þau. Móðir Hjalta, Gerður Ósk Hjalta­dóttir, lýsir því hvernig ein­hverfur sonur hennar gekk á veggi allt sitt líf, og hvernig hann veikt­ist svo mikið and­lega að þau voru byrjuð að syrgja hann löngu áður en hann var dáinn.

Hann var búinn að öskra á hjálp

Snemma að morgni laug­ar­dags­ins 22. mars fékk Gerður Ósk Hjalta­dóttir sím­tal frá lög­regl­unni: „Ert þú móðir Hjalta?“ Þar var henni sagt að föt, taska og sími sonar hennar hefðu fund­ist á bekk við Kirkju­sand. Sonur hennar, Hjalti Snær Árnason, var vistaður á Laug­ar­ásnum í Reykja­vík, sér­hæfðri deild á vegum Land­spít­al­ans fyrir ungt fólk með geð­rofs­sjúk­dóm á byrj­un­ar­stigi, en fjöl­skyldan er búsett á Akureyri.

Klukkan var átta þegar Gerður fékk sím­talið frá lög­regl­unni en hún var hvött til að halda ró sinni. Hún hringdi í kjöl­farið á Laugarás þar sem hún fékk þau svör að Hjalti hefði farið út í göngutúr um klukkan sex og að hann hafi sagst vera vænt­an­legur aftur um hádegið. Það var ekk­ert óvenju­legt að Hjalti nyti þess að fara í langa göngut­úra, það vissi Gerður, og starfs­fólk Laug­ar­áss hvatti hana líka til að bíða bara róleg: „Þau sögðu: Hann kemur. Ég ákvað að ég þyrfti …

Kjósa
57
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár