Evrópa var aldrei í röð og reglu

Pró­fessor í mann­fræði segir orð­ræðu um hæl­is­leit­endur ekki í sam­ræmi við stað­reyndir en dregið hefur úr umsóknum í ár. Hún segir múslima hafa verið hluta af evr­ópsku sam­fé­lagi í hund­ruð ára. Ekki sé þó gagn­legt að kalla alla sem áhyggjur hafa af mála­flokknum ras­ista.

Evrópa var aldrei í röð og reglu
Kristín Lofts­dóttir Pró­fessor í mann­fræði segir að þó fólk geti sýnt af sér rasíska hegðun sé ekki endi­lega ástæða til að stimpla það sem ras­ista. Mynd: Golli

Kristín Lofts­dóttir, pró­fessor í mann­fræði við Háskóla Íslands, hvetur stjórn­mála­fólk til að sýna ábyrgð þegar það talar um mál­efni umsækj­enda um alþjóð­lega vernd, sem gjarnan eru kall­aðir hæl­is­leit­endur. Umfang meintrar „flóð­bylgju“ hæl­is­leit­enda sem skollið hafi á Evrópu sé í engu sam­ræmi við raun­veru­leik­ann.

Mála­flokkur þeirra hefur kom­ist í hámæli nýverið, meðal ann­ars vegna hóps­ins Ísland – þvert á flokka sem hefur staðið fyrir tveimur úti­fundum á Aust­ur­velli og kallað eftir breyttri stefnu. Hópurinn krefst fimm ára hlés á nýjum hæl­is­um­sóknum, því að hæl­is­leit­endur verði vistaðir í lok­uðu úrræði eða sendir úr landi og að fjöl­skyldu­sam­ein­ingar verði aflagðar. Þá vill hóp­ur­inn senda erlenda brota­menn til afplán­unar erlendis, að dval­ar­leyfi og rík­is­borg­ara­réttur verði aft­ur­kölluð við alvar­leg brot og að stuðn­ingur við fólk í neyð sé betur veittur heima fyrir.

Kristín hefur í rann­sóknum sínum fjallað mikið um kyn­þátta­hyggju á Íslandi og skrif­aði meðal ann­ars bók­ina Kyn­þátta­for­dómar í stuttu …

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Ágæt umfjöllun en þó ekki gallalaus.

    Fullyrðingin "Við sjáum aukna misskiptingu auðs í heiminum öllum" stenst náttúrulega ekki. Við höfum á undanförnum áratugum upplifað einstaka tíma í heimssögunni þar milljarðar manna hafa brotist úr sárri fátækt og aldrei fyrr býr jafnlágt hlutfalla mannskyns við sáran skort. Misskipting auðs hefur reyndar aukist undanfarnar áratugi innan nokkura þróaðra ríkja eins og USA og Bretlands en á heimsvísu hefur misskipting minnkað mikið. Þetta ætti mannfræðingurinn að vita. Reyndar er núna bakslag í heimsvæðingu efnahagslífsins sem kann að breyta þessu ferli í framtíðinni.

    Varðandi "En hér gleymist auðvitað að múslimar, rétt eins og gyðingar, hafa verið hluti af sögu og landslagi Evrópu í fleiri hundruð ár. " þá eru forsendurnar sögunnar allt aðrar hjá þessum hópum. Gyðingar voru neyddir til dreifða sér um heimsbyggðina af Rómverjum fyrir nærri 2000 árum síðan eftir uppreisnartilraun. Eldri tilvist múslima í Evrópu er hins vegar vegna hernaðar innrása Mára og Ottómanna í Evrópu þar sem m.a. ein höfuðborg kristninnar, Konstantínópel (Mikligarður/Instanbúl) var lögð undir Íslam og hræddust menn um hríð að öll Evrópa myndi leggjast undir ok spámannsins.

    Varðandi umræðu um þjóðríki sem sannanlega er tillölulega er nýlegt fyrirbæri í sögu Evrópu þá fellst í því hugtaki að innan hvers ríkis sé ein þjóð að lang stærstum hluta. Við myndun þjóðríkja fylgdu oft grimmilegar þjóðernishreynsanir sem ekki skal gleyma. Heimsvæðing efnahagslífsins síðsustu áratugi með frjálsri för vinnuafls ógnar tilvist þjóðríkisins sem slíks og er t.d. Brexit viðbrögð við að reyna að verja þjóðríkið. Það skal því ekki gera lítið úr því að sumum frumbyggjum Íslands finnst þeim ógnað þegar hlutfall útlendinga hækkar jafn hratt og hefur verið undanfarin áratug.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár