Á 700 millj­óna eignir Eyþór Arnalds á 700 millj­óna króna eignir inni í fjár­fest­ing­ar­fé­lagi sínu en það hagn­að­ist um tæp­lega 500 millj­ónir króna árið 2015, meðal ann­ars vegna sölu hluta­bréfa í álþynnu­verk­smiðj­unni Becromal á Akureyri. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ekki kominn tími til að ég brenni allar veraldlegar eigur mínar“

Eyþór Arnalds, stjórn­mála­maður og fjár­festir, er stjórn­ar­maður í 26 eign­ar­halds­fé­lögum og fyr­ir­tækjum. Hann vill verða næsti borg­ar­stjóri í Reykja­vík og sæk­ist eftir odd­vita­sæt­inu hjá Sjálf­stæð­is­flokknum. Eyþór ætlar að hætta öllum afskiptum af við­skipta­líf­inu ef hann verður odd­viti.

Eyþór Arnalds, stjórn­mála­maður og fjár­festir, sem býður sig fram til að leiða lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, er stjórn­ar­maður í 26 eign­ar­halds­fé­lögum og fyr­ir­tækjum. Fullyrða má að eng­inn virkur þátt­tak­andi í stjórn­málum á Íslandi, kjör­inn full­trúi eða ein­stak­lingur, sem hefur gefið það út að hann vilji verða kjör­inn full­trúi, sé eins stór­tækur í atvinnu­líf­inu og Eyþór Arnalds. Meðal ann­arra fram­bjóð­enda sem vilja odd­vita­sæti Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru Kjartan Magn­ús­son, Áslaug Frið­riks­dóttir og Vil­hjálmur Bjarna­son. 

Eyþór var áður, frá 2010 til 2014, odd­viti sjálf­stæð­is­manna í sveit­ar­stjórn Árborgar á Suð­ur­landi og sinnti hann þar stjórn­málum og við­skiptum sam­hliða. Slíkt tíðk­að­ist í nokkrum til­fellum meðal stjórn­mála­manna á Íslandi á árunum fyrir hrunið 2008 og má meðal ann­ars nefna Bjarna Bene­dikts­son, þáver­andi þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem var stofn­andi og stjórn­ar­for­maður stærsta olíu­fé­lags lands­ins, N1, sam­hliða starfi sínu á Alþingi. Bjarni hætti hins vegar form­legum afskiptum af við­skiptum og stjórnum fyr­ir­tækja eftir hrunið 2008 og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Egill hefur litla trú á nýja meirihlutanum: „Borgarstjórnin er ekki sérlega vel mönnuð“
InnlentReykjavíkurborg

Egill hefur litla trú á nýja meiri­hlut­anum: „Borg­ar­stjórnin er ekki sér­lega vel mönnuð“

Egill Helgason hefur litla trú á nýjum borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­anum sem kynnt verður í dag. Fjöl­miðla­mað­ur­inn víð­lesni, Egill Helgason skrif­aði Facebook-færslu í gær­kvöldi þar sem hann óskar nýjum meiri­hluta í borg­inni vel­farn­aðar en seg­ist um leið ekki hafa mikla trú á henni. Segir hann að borg­ar­stjórnin sé ein­fald­lega ekki vel mönnum og að hæfi­leika­fólk lað­ist ekki að setu í borg­inni. Spáir hann...
Kryddpíurnar í borginni byrjaðar að skrifa sáttmála: „Þetta eru auðvitað bara lykiláhersluatriði“
InnlentReykjavíkurborg

Kryddp­í­urnar í borg­inni byrj­aðar að skrifa sátt­mála: „Þetta eru auð­vitað bara lyk­ilá­herslu­at­riði“

Oddviti Pírata í Reykja­vík­ur­borg, Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, segir að meiri­hluta­við­ræður gangi vel á milli þeirra fimm stjór­mála­flokka sem rætt hafa saman und­an­farið en þær hafa haldið áfram í dag. Dóra segir að fundað hafi verið til 18 í dag en haldið verður áfram á morgun. Segist hún í sam­tali við RÚV vona að það dragi til tíð­inda á allra næstu...
Árshátíð borgarstjórnar kostaði Reykvíkinga tæpar tvær milljónir króna
InnlentReykjavíkurborg

Árshátíð borg­ar­stjórnar kost­aði Reyk­vík­inga tæpar tvær millj­ónir króna

Árshátíð borg­ar­stjórnar Reykja­víkur þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn kost­aði borg­ar­búa rúm­lega 1,8 millj­ónir króna. Árshátíð borg­ar­stjórnar Reykja­víkur var haldin með pompi og prakt á Kjar­vals­stöðum þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá borg­inni voru 91 gestur á hátíð­inni. Borgaði hver um sig 9.500 krónur í aðgangs­eyri, jafnt makar sem aðrir gestir. Eft­ir­stand­andi kostn­aður vegna hátíð­ar­innar hljóð­aði upp á 1.806.301 króna...
Sanna útilokar ekki borgarstjórastólinn: „Bara eitt skref í einu“
InnlentReykjavíkurborg

Sanna úti­lokar ekki borg­ar­stjóra­stól­inn: „Bara eitt skref í einu“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir seg­ist taka eitt skref í einu en úti­loki ekki borg­ar­stjóra­stól­inn. Nú þegar Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri kom öllum að óvörum og sleit meiri­hluta­sam­starfi sínu í borg­ar­stjórn, eru ýmsar þreif­ingar í gangi meðal flokk­anna í borg­inni. Nokkuð ólík­legt verður að telj­ast að Fram­sókn­ar­flokkur Einars verði í næsta meiri­hluta, eftir að Inga Sæland lýsti því yfir að Flokkur fólks­ins hefði...
Glittir í aðgerðaráætlun varðandi heimilisleysi: „Borgin er í mikilli skuld í þessum málaflokki“
InnlentReykjavíkurborg

Glittir í aðgerð­ar­á­ætlun varð­andi heim­il­is­leysi: „Borgin er í mik­illi skuld í þessum mála­flokki“

Stefán Pálsson segir Reykja­vík­ur­borg í mik­illi skuld við heim­il­is­lausa en nú glitti í betri tíð í þeim mála­flokki. Sagn­fræð­ing­ur­inn og vara­borg­ar­full­trú­inn Stefán Pálsson segir að borg­ar­stjórn Reykja­víkur sé við það að sam­þykkja aðgerð­ar­á­ætlun í mál­efnum heim­il­is­lausra. Segir hann borg­ina vera í milli skuld við mála­flokk­inn en að gangi áætl­unin eftir verði staðan miklu betri í náinni fram­tíð. „Í borg­ar­stjórn erum...

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár