Vindorkuver í Garpsdal fari í nýtingarflokk

Jóhann Páll Jóhanns­son ráð­herra vill færa eitt vind­orku­ver af 10 úr bið­flokki í nýt­ing­ar­flokk vegna jákvæðra umsagna frá fag­hópum. „Við tökum eitt skref í einu í vind­orkunni,“ segir ráð­herra.

Vindorkuver í Garpsdal fari í nýtingarflokk
Jóhann Páll Jóhanns­son Umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra vill breyta til­lögu verk­efn­is­stjórnar verndar- og orku­nýt­inga­á­ætl­unar svo eitt vind­orku­ver fari í nýt­ing­ar­flokk. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Jóhann Páll Jóhanns­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, leggur til að virkj­un­ar­kost­ur­inn Garps­dalur í Reyk­hóla­hreppi verði settur í orku­nýt­ing­ar­flokk ramma­á­ætl­unar.

Tillagan hefur verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Með henni yrði breytt til­laga verk­efn­is­stjórnar verndar- og orku­nýt­inga­á­ætl­unar sem lagði til við ráð­herra í maí síð­ast­liðnum að allir 10 vind­orku­kost­irnir í 5. áfanga ramma­á­ætl­unar færu í bið­flokk. Er þetta í fyrsta skipti sem ráð­herra leggur til þá breyt­ingu á til­lögu verk­efn­is­stjórnar að virkj­un­ar­kostur fari í nýt­ing­ar­flokk, að því kemur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Í rök­stuðn­ingi sínum segir ráð­herra að virkj­unin í Garpsdal hafi fengið jákvæð­ari umsagnir frá fag­hópum ramma­á­ætl­unar en aðrir kostir sem voru til umfjöll­unar, bæði hvað varðar áhrif á nátt­úru og sam­fé­lag, og að meiri sátt virð­ist ríkja um kost­inn í nær­sam­fé­lag­inu en um aðra vind­orku­kosti.

Vísað er í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins þar sem áhersla er lögð á aukna orku­öflun í þágu orku­ör­yggis, orku­skipta og verð­mæta­sköp­unar um allt land. Að mati ráð­herra eiga þeir virkj­un­ar­kostir að ganga fyrir sem eru í senn hag­kvæmir og fela í sér minnstu umhverf­is­á­hrifin.

Aðrir vindorkukostir bíði umfjöllunar verkefnisstjórnar

„Við tökum eitt skref í einu í vind­orkunni og gefum ekki grænt ljós á frek­ari fram­kvæmdir fyrr en skýr rammi og lagaum­gjörð liggur fyrir,“ er haft eftir Jóhanni Páli. „Þar verður lögð áhersla á að verja nátt­úru­verð­mætin sem við eigum hérna saman og tryggja sátt og sam­stöðu í nær­sam­fé­lag­inu.“

„Gefum ekki grænt ljós á frek­ari fram­kvæmdir fyrr en skýr rammi og lagaum­gjörð liggur fyrir“

Stefnir hann að því að leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis að Garps­dalur fari í orku­nýt­ing­ar­flokk ramma­á­ætl­unar sam­hliða kynn­ingu á vind­orku­stefnu og breyttri lagaum­gjörð um vind­orku­nýt­ingu á næsta lög­gjaf­ar­þingi.

„Aðrir vind­orku­kostir í til­lögum verk­efn­is­stjórn­ar­innar munu fá áfram­hald­andi umfjöllun hjá nýrri verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar sem skipuð var 12. júní 2025, en í skip­un­ar­bréfi hennar kemur fram að við til­lögu­gerð skuli tekið mið af mark­miðum rík­is­stjórnar Kristrúnar Frosta­dóttur um aukna raf­orku­öflun í þágu orku­ör­yggis, orku­skipta og verð­mæta­sköp­unar um allt land,“ segir Jóhann Páll.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    HVAÐ GÆTUM VIÐ GERT VIÐ 100 MILLJÖRÐUM HÆRRI TEKJUR RÍKISINS AF AUÐLINDUM? Nú er vindorkuver í Garpsdal á leið í nýtingarflokk. Þá vænkast hagur landans vonandi þegar virkjanir fara að snúast. Nú fer fyrst að reyna á hvort eitthvað gagn er af öllum skýrslunum sem hafa streymt frá ráðuneytum um vindorkuna. Þar ber hæst skýrslan „Skattlagning orkuvinnslu“ frá febrúar 2024. En skýrslan er því miður hrein skelfing og myndi stórskaða ríkissjóð ef henni yrði fylgt. Einkum er í skýrslunni horft til Noregs sem er útí hött. Í Noregi er, gjörólíkt hér, allar náttúruauðlindir sem nýttar eru til orkuframleiðslu í eigu ríkisins og nýttar í þágu þjóðarinnar „i Norge er naturressursene ansett som en felles ressurs som forvaltes av staten på vegne av folket”. Hér og víðast annars staðar, t.d. í Svíþjóð, Finnlandi, eru orkuauðlindir í flestum tilvikum eign landeigandans. Í Noregi er því lagt auðlindarentugjald á t.d. vindorku óháð því hver landeigandinn er. Í t.d. Svíþjóð, Finnlandi og hérlendis þá er landeigandi vindorku oftast í einkaeign. Í Svíþjóð og Finnlandi þá er af þessari ástæðu, í stað auðlindarentugjalds lagður raforkuskattur á sölu raforku. Tilgangurinn er þó hin sami og með auðlindarentugjaldinu í Noregi. Þessi mistök og margt fleira í skýrslunni lýsir fádæma vanþekkingu á orkumálum erlendis og á raforkumörkuðum almennt. Til að kóróna vitleysuna þá eru tillögur skýrslunnar takmarkaðar við raforkuframleiðslu. Þetta kemur endanlega í veg fyrir notagildi skýrslunnar, því í ljósi eignarhalds á orkuauðlindum vindorku á Íslandi þá kemur þessi afmörkun í raun í veg fyrir umfjöllun um raforkuskatt á sölu, sem er sú leið sem farinn er í Svíþjóð og Finnlandi þar sem eignarhald orkuauðlinda er líkt og á Íslandi.
    Nú er spáð að í tengslum við orkuskipti o.fl. þá muni raforkuframleiðsla meir en tvöfaldast á næstu 20-30 árum. Eftirspurn í Evrópu líkt og hér mun aukast verulega með orkuskiptum o.fl. . Nýir raforkunotendur, t.d. gagnaver þrýsta verðinu upp og jafna verð milli landa. Öll lönd munu reyna að stýra umsvifum og vexti raforkugeirans og auðlindanýtingar á þann hátt að geirinn skapi sem mest velsæld fyrir þegnana. Raforkuskattur er mikilvægur þáttur þar í. Á Íslandi er allur undirbúningur varðandi raforkuskatt í skötulíki, að mestu ónothæfur, m.a. vegna vondrar vinnu við undirbúning skattlagningar. Þessi mistök í “Skattlagning orkuvinnslu” skýrslunni gætu leitt til þess að ríkissjóður yrði af 100 MILLJÖRÐUM í tekjum á ári að einhverjum tíma liðnum og er þá horft til hvort sem er raforkuskatts í Svíþjóð eða Finnlandi og víðar. Þetta er auðvitað upplagt að hugleiða í ljósi ræðuhalda þessa daganna á Alþingi um auðlindagjöld af sjávarútveginum sem eru nú bara einn tíundi af því sem orkugeirinn gæti skilað okkur ef betur væri vandað til verka.
    Sjá einnig umsögn mína frá í maí í samráðsgátt stjórnvalda um “Stefnu stjórnvalda um öflun raforku”
    0
    • Guðjón Jensson skrifaði
      Vindorkuver við Breiðafjörð verður til að fækka mjög fuglum sem haferninum sem víða á sér óðul þar. Þetta er eins og hvert annað glapyrði en í Noregi hafa þessar vindmyllur verið byggðar og snarfækkað fuglum eins og örnum. Það væri mjög miður ef græðgisöflin verði náttúrusjónarmiðum yfirsterkari. Eg átti von á ýmsu öðru skynsamlegra en þessu hjá ráðherranum.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár