Lánið frá Samherja sem sýndi „eitraða þræði“ stórútgerðar og stjórnmála

Eftir fjöl­miðla­um­ræðu og spurn­ingar í nærri fimm ár hefur eign­ar­halds­fé­lag Eyþórs Arnalds loks­ins afskrifað að fullu selj­anda­lán sem fyr­ir­tækið fékk frá Sam­herj­a­fé­lagi til að kaupa hluta­bréf útgerð­ar­innar í Morg­un­blað­inu. Eyþór þrætti alltaf fyrir það á meðan hann var borg­ar­full­trúi að við­skiptin með hluta­bréfin væru sýnd­ar­við­skipti.

Lánið frá Samherja sem sýndi „eitraða þræði“ stórútgerðar og stjórnmála
Við­skipti sem snér­ust ekki um pen­inga Við­skipti Eyþórs Arnalds og Samherja benda til að þau hafi snú­ist um annað en pen­inga þar sem útgerðin lán­aði félagi Eyþórs fyrir bréf­unum. Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja.

Eign­ar­halds­fé­lag Eyþórs Arnalds, fjár­festis og fyrr­ver­andi odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, hefur loks­ins afskrifað lán upp á rúm­lega 370 millj­ónir króna sem fyr­ir­tækið fékk frá félagi í eigu Samherja til að kaupa hluta­bréf útgerð­ar­innar í Morg­un­blað­inu árið 2017. Með þess­ari afskrift lýkur 5 ára löngu ferli þar sem reynt var að kom­ast að því af hverju og hvernig Eyþór Arnalds fjár­magn­aði kaup félags síns á stórum hluta í Morg­un­blað­inu. Tekið skal fram að Eyþór var ekki orð­inn fram­bjóð­andi og hvað þá kjör­inn full­trúi almenn­ings í Reykja­vík þegar hann keypti hluta­bréfin. 

Afskriftin á lán­inu frá dótt­ur­fé­lagi Samherja, Katt­ar­nefi ehf., kemur fram í árs­reikn­ingi eign­ar­halds­fé­lags Eyþórs, Ramses II ehf., og var nýlega greint frá honum í fjöl­miðlum. Umrædd afskrift þarf ekki að koma á óvart þegar litið er til þess að í síð­asta árs­reikn­ingi Katt­ar­nefs ehf. var það …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Manni líður eins og maður sé að vakna eftir martröð í turninum í katrínartúni við að lesa þetta, þarna eru Bin laden ,Halldór Ásgrímsson og Eyþór ásamt rússum
    0
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Eyþór er greinilega falur en hver er verðmiðinn?
    0
  • Kári Jónsson skrifaði
    Samherji á nýjan miðbæ í Árborg, Eyþór Arnalds (Samherja-dindill) var bæjarstjóri Árborgar þá var undirbúningur að nýjum miðbæ Árborgar (Selfoss) settur á stað, það vekur óneitanlega fjölmargar spurningar sem hefur ekki verið svarað.
    1
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Þar með er það upplýst - og skal engan undra - að Morgunblaðið er einskis virði jafvel svo að menn telja sig ekki geta losnað við eignarhlut í því fyrir ekki neitt nema með blekkingarleik.
    Afskrift á láni eru tekjur sem greiða skal skatt af. Skyldi félag Eyþórs hafa greitt skattinn? Ég er hræddur um ekki.
    5
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Ekki þessa öfund !
    Hermaurar og skæruliðadeildir eru mjög eðlilegir útgjaldaliðir í nánast öllum fyrirtækjarekstri.
    1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    En voru ekki fleiri hlutir undir í þessum viðskiptum. Mig minnir að Eyþór hafi verið líka eitthvað munstraður inn í virkjanaréttindi upp við langjökul í einhverju samkrulli með Samherja. Man þetta ekki alveg en man samt eftir einhverjum skrifum á sínum tíma. Þar var eitthvað verið að leika sér með og verið að reyna að fela eignarhald.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eyþór Arnalds og Moggabréfin

Viðskipti Eyþórs og Samherja: Gögn benda til að kaupverðið hafi verið ekkert
FréttirEyþór Arnalds og Moggabréfin

Við­skipti Eyþórs og Samherja: Gögn benda til að kaup­verðið hafi verið ekk­ert

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill ekki svara því hvernig hann gerði upp nærri 390 millj­óna króna við­skipti með kröfur á hendur félagi hans sem Samherji átti. Samherji afskrif­aði lánið til félags Eyþórs árið 2019. Eyþór sagði við Stundina árið 2018 að við­skipti hans og Samherja værui mögu­leg vegna sterkar eig­in­fjár­stöðu eign­ar­halds­fé­lags í hans eigu.
Samherji afskrifar stóran hluta  225 milljóna láns Eyþórs Arnalds
FréttirEyþór Arnalds og Moggabréfin

Samherji afskrifar stóran hluta 225 millj­óna láns Eyþórs Arnalds

Fjár­fest­ing­ar­fé­lag Samherja hefur fært niður lán­veit­ingu til dótt­ur­fé­lags síns sem svo lán­aði Eyþóri Arnalds borg­ar­full­trúa fyrir hluta­bréfum í Morg­un­blað­inu. Félag Eyþórs fékk 225 millj­óna kúlúlán fyrir hluta­bréf­unum og stendur það svo illa að end­ur­skoð­andi þess kemur með ábend­ingu um rekstr­ar­hæfi þess.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár