Þurfa að fækka starfsmönnum vegna úrsagnar Guðmundar

Flokkur fólks­ins má hafa færra starfs­fólk í vinnu á kostnað Alþingis eftir að Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­maður gekk úr flokknum. Fjöldi starfs­manna ræðst af þing­styrk hvers flokks og riðlar úrsögnin skipt­ingu aðstoð­ar­manna á milli flokka. Framsókn má í staðin bæta við sig.

Þurfa að fækka starfsmönnum vegna úrsagnar Guðmundar
Ráðherra Guð­mundur Ingi var vara­for­maður Flokks fólks­ins og um tíma ráð­herra flokks­ins. Brott­hvarf hans úr flokknum þýðir að breyt­ing er á skipt­ingu starfs­fólks á kostnað þings­ins á milli flokka. Mynd: Golli

Brott­hvarf Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar, þing­manns og fyrr­ver­andi ráð­herra, úr Flokki fólks­ins felur það í sér að starfs­mönnum flokks­ins fækkar um einn.

„Það lá alveg fyrir,“ segir Heimir Már Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks og upp­lýs­inga­full­trúi Flokks fólks­ins, sem var á þing­flokks­fundi þegar náð­ist í hann og sagð­ist ekki geta tjáð sig. „Það fækkar um einn hjá okkur og fjölgar hjá Framsókn.“

Flokk­arnir mega ráða sér starfs­fólk á kostnað Alþingis út frá þing­manna­fjölda hvers flokks. Eftir að Guð­mundur Ingi helt­ist úr lest­inni hjá Flokki fólks­ins breytt­ist þessi útreikn­ingur Framsókn í hag.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn má því ráða sér nýjan starfs­kraft. Annar af tveimur núver­andi starfs­mönnum Fram­sóknar er Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, for­maður flokks­ins, sem var tíma­bundið ráðin hjá þing­flokknum.

Ekki liggur fyrir hver mun láta af störfum hjá Flokki fólks­ins. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Arnar Guðmundsson skrifaði
    Ætli það hafi verið meining og vilji Guðmundar af styrkja Framsókn?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár